Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 10

Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 10
Orkumál Rangárvallalína 1, raflína frá Blönduvirkjun að Rangárvöllum ofan Akureyrar, flutti rafmagn yfir stöðugleikamörkum helming árs- ins í fyrra sem eykur líkurnar á raf- orkutruflunum til muna á svæðinu. Eyfirðingar búa enn við afar tak- markað framboð á raforku á svæðinu og hafa fyrirtæki þurft frá að hverfa á síðustu árum vegna skorts á raforku á svæðinu. Málþing Byggðastofnunar um raf- orkumál á Íslandi var haldið í Hofi í fyrradag. Átta einstaklingar, þar af sjö karlar, fluttu erindi um raforkumálin í víðu samhengi en umfjöllunarefnið var um orkuþörf og afhendingaröryggi raforku. Verkfræðiskrifstofan Lota vann fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyja- fjarðar skýrslu um raforkuskort við Eyjafjörð. Þar kom fram að raforku- notkun var yfir 80 MW í tæplega 25.000 klukkustundir eða 42 prósent þess tíma sem skoðaður var í fyrra. Flutningurinn inn til Rangárvalla fór yfir 100 MW í heila tvo sólarhringa. „Aflflutningur hefur ítrekað farið upp að og yfir stöðugleikamörk línunnar. Þetta ástand býður hætt- unni heim fyrir raforkukerfið í heild sinni og kemur einnig í veg fyrir að hægt sé að mæta nýrri eða aukinni eftirspurn eftir raforku á svæðinu án þess að ganga á raforkuöryggi,“ segir í skýrslu Lotu. Sigurður Ingi Jóhannsson, ráð- herra byggðamála, setti málþing Byggðastofnunar. Sagði hann mikil- vægt að tryggja aðgang landsmanna allra að raforku og það sé kirfi- lega sett í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar að forgangsverkefni sé að nýta þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þurfi að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykil- svæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Guðmundur Ingi Ásmundsson, framkvæmdastjóri Landsnets, sagði í erindi sínu á þinginu að raforka væri uppseld nánast alls staðar annars staðar en á suðvesturhorni landsins einungis vegna getuleysis kerfisins til að dreifa raforku nægilega um landið. Sagði Guðmundur Ingi að með tilkomu nýrrar Blöndulínu 3 frá Blöndu til Akureyrar, Kröflulínu sem tengir Kröflu við Fljótsdalsstöð ásamt Hólasandslínu áfram til Akur- eyrar, myndi staðan strax batna. sveinn@frettabladid.is Tryggja þarf dreifingu orku Alveg einstakt tækifæri! Hólanesvegur 11 er til sölu eða leigu. Skagaströnd vex og dafnar, meðal annars vegna aukinnar ferðaþjónustu. Með fjölbreyttri afþreyingu, útivist og aukinnar eftirspurnar ferðamanna, teljum við kosti eignarinnar augljósa. Hafirðu áhuga á eða reynslu af ferðaþjónustu og veitingarekstri og vilt njóta þess að starfa og búa á Norðurlandi er í boði bjálkahús sem er afar athyglisvert. Hvort sem þú kýst að kaupa eða leigja Hólanesveg 11 er þetta einstakt tækifæri. Bæði grunnskóli og leikskóli eru á Skagaströnd. Námsstofa fyrir m.a. háskólaborgara, góð líkamsræktarstöð, sundlaug, félagsheimili, bókasafn, verslun, apótek og heilsugæsla. Um eignina: 2 hæðir, 383 m2 Byggingarár er 1998 Nánari upplýsingar í síma 869-1709 eða 847-6622 tölvupóstur - gshal0306@gmail.com Hólanesvegur 11 er til sölu eða leigu. Skagaströnd vex og dafnar, meðal annars vegna aukinnar ferðaþjónustu, því ný gisting hefur hafið starfsemi í bænum. Með fjöl reyttri afþreyingu, útivist og aukinnar eftirspurnar ferðamanna, teljum við kosti eignarinnar augljósa. Hafirðu áhuga á eða reynslu af ferðaþjónustu og veitingarekstri og vilt njóta þess að starfa og búa á Norðurlandi er í boði bjálkahús sem er afar athyglisvert. Hvort sem þú kýst að kaupa eða leigja Hólanesveg 11 er þetta einstakt tækifæri. Alveg einsta t tækifæri! B ði grun skóli og leiks óli eru á Skag strönd. Námsstofa fyrir m.a. háskólaborgara, góð líkamsræktarstöð, sundlaug, félagsheimili, bókasafn, verslun, apótek og heilsugæsla. Um eignina: 2 hæðir, 383 m2 Byggingarár er 1998 Nánari upplýsingar í síma 869-1709 eða 847-6622 tölvupóstur - gshal0306@gmail.com Flokkur fólksins Flokkur fólksins óskar eftir áhugasömum einstaklingum sem vilja í framboð fyrir flokkinn í komandi sveitastjórnakosningum. Ef þú telur þig eiga samleið með okkur og hefur brennandi áhuga á pólitísku starfi, þá hvetjum við þig til að senda upplýsingar um þig ásamt ferilskrá, á flokkurfolksins@flokkurfolksins.is Farið verður með allar upplýsingar af virðingu og trúnaði. Skilafrestur er til og með 19. mars n.k Flokkur fólksins er flokkurinn þinn www.flokkurfolksins.is Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Þórhildur Þórhallsdóttir Borgir þenjast út eða þéttast og breytast. En geta þær þróast án skipulags? Erum við að skipuleggja of mikið? Hverjir eru kostir og gallar skipulagðrar byggðar? Hvert er samhengið í skipulaginu? Breytir skipulag lífi fólks? Breytir skipulagsfræðin borgarmenningu? Hvar er fagurfræði óreiðunnar? Er skipulagsleysi andstætt hagsmunum almennings? Getur skipulag útilokað hópa? Hvernig getur skipulag lagt grunn að farsælu lífi borgarbúa? Til að ræða málin munu taka til máls: Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, Þórhildur Þórhallsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun, Haraldur Sigurðsson, skipulags- fræðingur og deildarstjóri aðalskipulags hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar ásamt Hjálmari Sveinssyni, formanni umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Haraldur Sigurðsson Til hvers skipulag? Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir gagnrýninni og hressilegri fundarröð um þróun og mótun borgarinnar H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Þriðjudaginn 13. mars 2018 kl. 20 á Kjarvalsstöðum Ásdís Hlökk Theodórsdóttir Hjálmar Sveinsson Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra byggðamála, sagði það mikilvægt að á þessu kjörtímabili yrði mikið lagt til raforkumála. FréttablaðIð/auðunn alþjóðamál Blaðakonan Vanessa Beeley flytur í dag fyrirlestur í Safna- húsinu um átökin í Sýrlandi  og fréttaflutning af stríðinu. Byggir hún á eigin reynslu af vettvangi á undan- förnum árum  að því er segir í til- kynningu. „Vanessa heldur því fram að fréttaflutningur frá Sýrlandi sé mjög tengdur hagsmunum stórveldanna og er hún þá sérstaklega gagnrýnin á Vesturveldin, Sádi-Arabíu og banda- lagsríki þeirra í Mið-Austurlöndum, ekki síst Ísrael. Segir hún þessi ríki einskis hafa svifist til að koma á stjórnarskiptum í Sýrlandi og hafi öfgahópum og herjum málaliða verið beitt í því skyni. Færir hún fyrir þessu rök og tilgreinir dæmi.“ Fundurinn hefst klukkan tólf. Fundarstjóri er Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra. – gar Varpar ljósi á Sýrlandsstríðið Raforka er uppseld víð­ ast hvar á landinu vegna getuleysis flutningskerfis raforku. Rangárvalla­ lína 1 flutti rafmagn yfir stöðugleikamörkum helming ársins í fyrra. Ráðherra segir að efla þurfi dreifikerfið. Blaðakonan heldur því fram að fréttaflutningur frá Sýrlandi sé mjög tengdur hagsmunum stórveldanna. 1 0 . m a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -B C 9 8 1 F 2 9 -B B 5 C 1 F 2 9 -B A 2 0 1 F 2 9 -B 8 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.