Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 18

Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þeir eru helsti höfuðverkur þvottasnúrunnar. Sam-einaðir standa þeir – sundraðir þorna þeir. Sokkar. Svo erfitt er að sameina sokka í pör eftir þvott að kenningar eru uppi um handanheim stakra sokka sem hafa horfið með dularfullum hætti. Við gefum sokkum sjaldan gaum. Það er kannski helst þegar við eigum ekki hreint par að við veltum fyrir okkur tilvist þeirra. En talið er að sokkar hafi fylgt manninum lengst alls fatnaðar. Sögu sokksins má rekja allt aftur til steinaldar. Forn- leifar og hellamyndir benda til þess að 5000 árum f. Kr. hafi forfeður okkar bundið skinn af dýrum um fætur sér í eins konar sokka. Fyrsta skriflega heimildin um sokka er kvæðið Verk og dagar eftir gríska skáldið Hesíódos sem uppi var um 700 f. Kr. Um er að ræða eins konar sjálfshjálpar-kveðskap þar sem Hesíódos leggur samtíðarmönnum sínum lífsreglurn- ar og hvetur þá meðal annars til að klæðast flíkinni „piloi“, fléttuðum sokkum úr dýrahári, með sandölum sínum. Elstu ullarsokkar sögunnar fundust við fornleifauppgröft á Norður-Englandi við rústir rómverska virkisins Vindo- landa. Parið er saumað úr ullarefni og er frá annarri öld e. Kr. Ekki langt frá sokkunum fannst rómversk viðartafla, eins konar sendibréf, þar sem hermaður biður fyrir kveðju heim ásamt orðunum: „Sendið fleiri pör af sokkum.“ Bylting átti sér stað í sokkagerð árið 1589 þegar William Lee, enskur klerkur, fann upp prjónavélina. Með henni var hægt að prjóna sokka sex sinnum hraðar en í höndunum. Fer tvennum sögum af því hvers vegna Lee smíðaði vélina. Sumir segja að hann hafi viljað létta undir með ástkærri eiginkonu sinni sem þurfti að prjóna sokka til að drýgja heimilistekjurnar. Aðrir segja að hvati Lee hafi verið gremja. Hann hafi átt ástkonu sem hafði svo mikla unun af því að prjóna að hún hafði ekki tíma til að sinna honum. Lee vildi koma áhugamáli hennar fyrir kattarnef. Banvæn blaðra En hvers vegna klæðumst við sokkum? Jú, auðvitað til að halda á okkur hita. Það er þó ekki eina ástæðan. Í fótum okkar eru 250.000 svitakirtlar. Fætur geta svitnað allt að 250 millilítrum af vökva á dag en sokkar hjálpa til við að draga svitann í sig. Enn eru ástæðurnar þó ekki taldar. Calvin Coolidge var yngri sonur þrítugasta forseta Bandaríkjanna sem einnig hét Calvin Coolidge. Dag einn, sumarið 1924, hirti Calvin yngri, þá sextán ára, ekki um að klæða sig í sokka áður en hann hélt út í garð Hvíta hússins til að leika tennis. En sokkar verja fætur okkar undan núningi við skó. Ekki leið á löngu uns Calvin fékk blöðru undan öðrum skóm sínum. Þetta var fyrir tíma sýklalyfja. Sýking komst í blöðruna og dró meinið drenginn til dauða. Íslenskir sokkar í skotgröfum Árið 1915 gekk Gunnar Richardsson, nítján ára Íslending- ur, í kanadíska herinn svo hann mætti berjast í fyrri heims- styrjöldinni. Í bréfum til fjölskyldu sinnar heima á Íslandi lýsir Gunnar vígstöðvunum sem ógnvekjandi stað, fullum af „dauðum mönnum, hestum, múldýrum, brotnum vögnum, byssum, rifflum, og fleiru“. Verst þótti honum þó „regnið og forin“. „Skotgrafirnar eru upp fyrir hné í for og vatni, hvergi staður til að setjast eða leggjast. Forin er um allt, hvergi gras, allt landið tætt af sprengikúlum, stráð dauðra manna búkum.“ Gunnar fékk stundum senda pakka að heiman með alls kyns kræsingum og þörfum hlutum. Þakklátastur var Gunnar fyrir „þann besta hlut sem við gátum óskað, þurra sokka“. Hann sagði íslensku ullarsokkana miklu betri en sokkana sem herinn skaffaði. Vantar þig sokka? Sokkar. Máttur þeirra er mikill. Og enn geta sokkar bjargað mannslífum. Mottumars er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameins félagsins tileinkað baráttunni gegn krabba- meini í körlum. Krabbameinsfélagið selur nú sérdeilis glæsilega sokka til styrktar baráttunni gegn krabbameini í blöðruhálskirtli. Þeir sem vilja leggja átakinu lið – eða eiga ekki lengur samstæða sokka – geta keypt sér par á slóðinni www.mottumars.is. Sokkar sem bjarga mannslífumÞar myndi strax muna miklu ef stærsti vinnustaður landsins, Landspítal- inn, flyttist í austurborg- ina. Heilbrigðiseftirlitið sendi á fimmtudag frá sér viðvörun vegna magns svifryks í lofti í Reykjavík. Fólki sem er við-kvæmt í öndunarfærum og börnum var ráðlagt að forðast útivist í nágrenni umferðaræða. Þessi síðari setning er um margt lýsandi fyrir umferðarborgina Reykjavík. Lausnin við mengunar- vandanum er ekki að hvetja fólk til taka almenn- ingssamgöngur eða til að sameinast um bílferðir heldur eiga gangandi vegfarendur og börn að víkja. Forsvarsmenn Vesturbæjarskóla tóku heilbrigðis- yfirvöld á orðinu og héldu börnunum inni. Til að gæta fullrar sanngirni, sá eftirlitið nú að sér og sendi frá sér skilaboð um að vitaskuld væri heillavænlegast ef ökumenn legðu einkabílnum meðan mesta mengunin gengi yfir. Auðvitað er það mergurinn málsins. Það getur varla gengið upp að börn og gangandi eigi að mæta afgangi svo fólk geti ferðast eitt í sínum einkabíl. Það gengur heldur ekki upp að í Reykjavík og nágrenni, með sína tvö hundruð þúsund íbúa, mælist meira svifryk í lofti en í margfalt stærri iðn- aðarborgum annars staðar í heiminum. Augljóst er að eitthvað þarf að gera í málinu. Það varðar ekki bara eldri kynslóðir sem vanar eru að geta farið allra sinna ferða á sínum einkabíl, heldur ekki síður yngri kynslóðir sem erfa munu borgina. Mengunin er ekki einkamál bílstjóra, og vandamálið fer einungis vaxandi ef ekkert er að gert. Heilsa næstu kynslóða hlýtur að skipta meira máli en bílar. Björn Teitsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, telur að stjórnmálamenn skorti hugrekki til að taka á málinu. Það er auðvitað hárrétt. Stjórnmálamenn eiga að sjá til þess að hér séu boðlegar samgöngur. Þeir eiga líka að hafa kjark til að hvetja fólk og fyrirtæki til að skilja bílana eftir heima, og nýta hverja ferð betur en nú er gert. Jafn- vel þótt slíkt kunni að vera óvinsælt. Fólki er hins vegar að einhverju leyti vorkunn. Almenningssamgöngur í Reykjavík eru ekki nógu góður kostur fyrir alla höfuðborgarbúa. Vonandi stendur það til bóta með einhverri útgáfu af Borgar- línu. Lýðskrum um fríar strætóferðir er ekki lausnin. Þjónustuna þarf að bæta og nýtingin ætti að fylgja í kjölfarið. Sömuleiðis þarf að ræða það af alvöru að banna nagladekk sem valda miklu um svifryksmengunina. Síðast en ekki síst þarf að dreifa áfangastöðum betur um borgina. Þar myndi strax muna miklu ef stærsti vinnustaður landsins, Landspítalinn, flyttist í austurborgina. Til dæmis að Keldum. Lýst er eftir alvöru lausnum á samgönguvandan- um, og þeirri þjóðarskömm sem svifryksmengunin er. Stórborgir eins og London og Tókýó hafa tekið til í eigin garði og dregið stórlega úr mengun, meðal annars með því að draga úr bílaumferð. Smáborg eins og Reykjavík ætti að geta gripið í taumana. Vilji og leiðtogahæfileikar er allt sem þarf. Þjóðarskömm Hönnun&Merkingar 1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -9 0 2 8 1 F 2 9 -8 E E C 1 F 2 9 -8 D B 0 1 F 2 9 -8 C 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.