Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 38

Fréttablaðið - 10.03.2018, Side 38
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 , Hafi einhver efast um að Martin Hermannsson væri nýr leiðtogi íslenska karla- landsliðsins í körfubolta staðfestist það heldur betur í síðustu tveimur leikjum liðsins í lok febrúar. Martin átti stórleik gegn Finnlandi og Tékk- landi og leiðir íslenska liðið í bæði stigaskorun og stoðsendingum í undankeppninni fyrir HM í körfu- bolta sem haldin verður í Kína 2019. Eftir þessa tvo sætu sigra er íslenska liðið komið í annað sæti riðilsins og á góða möguleika á að komast í aðra umferð riðlakeppn- innar sem hefst í september. Martin leikur með Champagne Châlons-Reims Basket í frönsku Pro A deildinni og hefur leikið afar vel í vetur og m.a. vakið athygli stærri klúbba í Evrópu. En það er ekki bara innan vallar sem góðir hlutir gerast. Fyrr í þessum mánuði kynntu hann og unnusta hans, Anna María Bjarnadóttir, að þau ættu von á sínu fyrsta barni sem fæðist um mitt sumar. Það er því óhætt að segja að árið 2018 verði annasamt og eftir- minnilegt ár hjá Martin. Mikill léttir Hann segir sigrana tvo í febrúar hafa verið risastóra á alla vegu. „Það er búið að liggja þungt á okkur að skila sigri í hús og ekki var verra að gera það á móti svona sterkum þjóðum fyrir framan stuðnings- menn okkar. Þetta léttir helling á okkur en aftur á móti þurfum við að vera fljótir niður á jörðina því leikurinn við Búlgaríu í júní er léttur úrslitaleikur fyrir framhaldið.“ Tímabilið í Frakklandi er langt og strangt að sögn Martins og því hafi verið kærkomið að brjóta það aðeins upp með landsleikjunum tveimur. „Mér leið mjög vel eftir þessa leiki og vildi helst ekki fara aftur til Frakklands heldur bara halda áfram að spila með strák- unum. Ég er mjög bjartsýnn á fram- haldið hjá landsliðinu. Auðvitað verður mikill missir að Jóni Arnóri, Hlyni, Jakobi og Loga. Þeir eru búnir að vera klettarnir í liðinu í langan tíma og fyrirmyndir okkar yngri leikmannanna. En ég er mjög þakk- látur fyrir að hafa komið ungur inn í landsliðið og náð öllum þessum árum með þeim því þeir hafa kennt mér mjög mikið. En á sama tíma eigum við mikið af góðum og efnilegum leikmönnum sem eiga vonandi eftir að passa vel inn í þennan kjarna sem þegar er farinn að myndast.“ Finnur fyrir athygli Martin hefur spilað vel í vetur með liði sínu. Hann segist þó alltaf vilja gera betur og bæta sig enn frekar enda setur hann sjálfur mestu pressuna á sig að eigin sögn. „Ég gleymi samt oft að ég er bara 23 ára og spila á móti mönnum sem hafa verið í þessu í mörg ár og spilað um allan heim. Deildin er mjög sterk en fimm Bandaríkjamenn mega spila með hverju liði. Að vera svona ungur og stýra liði í þessari deild er sjaldgæft og ég á margt eftir Jón Arnór Stefánsson (nr. 9) og Martin faðmast eftir Tékkaleikinn. Kynslóða- skipti eru að verða í landsliðinu og mun Martin taka við kyndlinum. Það er strákur! Fyrsta barn Martins og Önnu Maríu fæðist í sumar. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ „Markmið mitt hefur alltaf verið að komast í eitt af bestu liðum í Evrópu og spila í Euroleague og stefnan er að vera kominn þangað innan þriggja ára,“ segir Martin sem er hér með unn- ustu sinni, Önnu Maríu Bjarna- dóttur. ólært. En mér finnst ég vera að bæta mig og þá sérstaklega líkamlega og varnarlega og það er það sem skiptir mestu máli.“ Góður leikur Martins með félags- liði sínu og landsliði hefur vakið athygli víða og hann finnur fyrir henni. „Ég hef alveg fundið fyrir athyglinni, sérstaklega á þessu ári. En þetta er harður heimur og hlut- irnir geta breyst fljótt. En ef maður heldur bara áfram að gera sitt besta og leggja hart að sér, þá gerast góðir hlutir. Markmiðið mitt hefur alltaf verið að komast í eitt af bestu liðum í Evrópu og spila í Euroleague og stefnan er að vera kominn þangað innan þriggja ára. NBA er svo auð- vitað draumur allra körfubolta- manna en ég hugsa lítið um það. Ef tækifærið kemur, þá kemur það bara.“ Dýrmæt reynsla Þrátt fyrir ungan aldur hefur Martin tvisvar tekið þátt í Evrópumótinu í körfubolta (Eurobasket), fyrst í Berlín árið 2015 og svo aftur í Helsinki tveimur árum síðar. „Það eru auðvitað algjör forréttindi að vera 23 ára Íslendingur og hafa farið tvisvar á Eurobasket. Ég grínast oft með það að ég þekki ekkert annað og skilji ekki af hverju eldri leik- menn voru ekki löngu búnir að gera það. Þessi tvö mót hafa mótað mig mikið sem leikmann og hjálpað mér að sjá hvar ég stend á móti þeim bestu í Evrópu og heiminum. Þau fara bæði djúpt í reynslubank- ann og eiga vonandi eftir að koma að góðum notum í framtíðinni.“ Á Eurobasket hefur Martin leikið gegn mörgum af bestu leikmönnum Evrópu. „Það er erfitt að gera upp á milli þeirra leikmanna sem ég hef spilað gegn en þeir sem standa helst upp úr eru t.d. Nowitzki, Dragic og Pau Gasol. Svo held ég að Luka Doncic verði það seinna meir en hann verður líklega valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar á næsta ári.“ Aldrei einmana Hann segir lífið í Frakklandi vera mjög gott og nú þegar styttist í vorið verður hægt að verja enn meiri tíma úti við. „Ég er svo heppinn að hafa kærustuna mína hérna hjá mér og því er ég aldrei einmana. Á síðasta ári voru leikdagar á föstudögum og þá fengum við frí um helgar. Þá vorum við dugleg að heimsækja París í helgarfríinu og einnig Brussel og Lúxemborg sem voru í tveggja tíma fjarlægð. Á þessu tímabili spilum við á laugardögum og því eru ekki eins margir frídagar. Við fáum þó margar heimsóknir og nánast allar helgar eru uppbókaðar hjá okkur. En annars venst Frakk- land bara vel en tungumálið er reyndar önnur saga.“ Æðisleg tilfinning Í upphafi þessa mánaðar tilkynntu Martin og Anna María að þau ættu von á sínu fyrsta barni og segir Martin tilfinninguna vera æðislega. „Þessi spenningur sem ég er að upp- lifa núna toppar alla aðra spennu sem ég hef upplifað í gegnum tíðina. Pabbi var 22 ára þegar hann átti mig og mamma 24 ára og því hefur planið alltaf verið að verða ungur pabbi. Það eru forréttindi að eiga svona unga foreldra sem eiga sömu áhugamál og maður sjálfur og eru fyrirmyndir manns í lífinu. Ég veit hversu mikilvægt það er að eiga gott bakland og tek fullt af því sem þau hafa kennt mér inn í þetta nýja hlut- verk. Ef þetta verður körfubolta- eða fótboltagaur kem ég sterkur inn. Ef þetta verður handbolta- maður er mamma hans algjörlega á heimavelli.“ HEIMILI OG SKÓLI ÓSKA EFTIR TILNEFNINGUM TIL FORELDRAVERÐLAUNA 2018 Tilnefningar sendist með því að fylla út rafrænt eyðublað á heimiliogskoli.is. Hægt er að tilnefna til Foreldraverðlauna en einnig má tilnefna dugnaðarfork Heimilis og skóla. Síðasti skiladagur tilnefninga er 10. apríl 2018. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -F C C 8 1 F 2 9 -F B 8 C 1 F 2 9 -F A 5 0 1 F 2 9 -F 9 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.