Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 42

Fréttablaðið - 10.03.2018, Síða 42
Anna Birgis hefur verið í kvenfélögum í þremur heimsálfum og bakar sænska prinsessuköku fyrir kökubasar- inn á morgun. MYND/STEFÁN Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Það er dýrmætt að vera í kven­félagi. Félagsskapurinn er frábær og það er gefandi að geta látið gott af sér leiða,“ segir Anna Birgis Hannesson, formaður Kvenfélags Langholtssóknar. Anna er nýbúin að setja súkku­ laðikrem, rjóma og ávexti á dýr­ indis Pavlovu fyrir kökubasarinn og í ofninum er sænsk prinsessukaka. „Prinsessukökuna lærði ég að baka í Svíþjóð og hún er mikil spariterta innan fjölskyldunnar. Ég hef bakað hana fyrir skírnarveislur barnabarnanna og mér þykir gaman að koma með aðeins öðru­ vísi bakkelsi á basarinn. Prinsessu­ kakan er úr svampbotni sem er skorinn í þrennt, sett er sulta á milli tveggja laga og svo frómas yfir allt saman og marsipan yfir.“ Kökubasarinn er upphitun fyrir Listahátíð Langholtskirkju, Sungið fyrir sætum, sem er átak til að safna fé svo mögulegt sé að klæða að nýju sæti kirkjunnar, og eru tvennir stór­ tónleikar fyrirhugaðir sunnudaginn 18. mars. „Sætin hafa sannarlega skilað sínu enda hafa hátt í milljón manns tyllt sér og notið fagurra tóna þá áratugi sem liðnir eru,“ segir Anna. Hlýlegar móttökur kvenna Anna tók að sér formennsku í kven­ félaginu árið 2016 eftir að hafa búið um veröld víða sem sendiráðsfrú í nær fjóra áratugi. Eiginmaður hennar er Hjálmar Waag Hannes­ son, fyrrverandi sendiherra. „Við störfuðum fyrst fyrir utan­ ríkisþjónustuna í Brussel og Svíþjóð en svo varð Hjálmar sendiherra í Þýskalandi þar sem við bjuggum í sex ár. Við opnuðum svo sendiráð Íslands í Kína og líka í Ottawa í Kanada, unnum hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og enduðum í Winnipeg, samfélagi Vestur­ Íslendinga. Nú erum við komin á eftirlaun og þá þarf maður að hafa eitthvað að gera, eins og kvenfélag­ ið,“ segir Anna kát. Í þeim þremur heimsálfum þar sem Anna hefur búið hafa kven­ félög boðið hana velkomna á öllum stöðum. „Þegar maður kemur á nýjan stað og þekkir engan tekur kvenfélagið á móti manni, hjálpar manni að kynnast öðrum konum og sýnir manni áhugaverða staði. Það hef ég upplifað alls staðar og er mjög nota­ legt og mikilvægt. Ég hef því alltaf verið þátttakandi í kvenfélögum þar sem áherslan er alls staðar sú sama; að bindast vinaböndum, hjálpast að og láta gott af sér leiða.“ Hjá Sameinuðu þjóðunum voru kvenfélagsfundir einu sinni í mán­ uði, einn fyrir sendiherrafrúrnar og annar fyrir allar konur innan SÞ. „Oftast hittumst við yfir morgun­ kaffi og konurnar kynntu land sitt, þjóð og menningu. Margar höfðu verið útivinnandi áður en þær komu í sendiráðin og við tók tóma­ rúm yfir daginn sem þurfti að fylla. Í New York er mjög auðvelt að vera einn þótt þar sé mikið af fólki, og til þess voru kvenfélögin hugsuð; að kynnast hver annarri, ólíkri menn­ ingu og þjóðum,“ útskýrir Anna sem á margar kærar vinkonur frá áratugunum ytra. „Mínar kærustu vinkonur í gegnum kvenfélagsstarfið eignaðist ég í Þýskalandi og Svíþjóð, en eigin­ lega á ég alls staðar vinkonur sem voru mínar bestu í hverju landi fyrir sig. Það er sannarlega fallegt og mikilvægt veganesti. Margar hafa komið og heimsótt okkur til Íslands og þótt það séu ekki nema jóla­ kortasamskipti í dag er enn munað eftir manni og maður fær fréttir af þessum góðu konum og því sem þær aðhafast í dag.“ Konur sjálfstæðari nú Anna segir öll löndin sem þau Hjálmar settust að í hafa verið áhugaverð og góð til búsetu. „Það var mjög gott að vera í Belgíu og Svíþjóð með unga krakka, og svo allt öðruvísi og áhugavert að vera í Kína. Þar var margt að læra í fyrstu og stundum erfitt, en þegar kallið kom vildum við helst ekki fara þaðan. Okkur finnst New York líka vera mjög skemmtilegur staður, áhugaverður og líflegur, og við kunnum mjög vel við okkur í Winnipeg, sem var svolítið eins og að vera innan um fjölskylduna þar sem Vestur­Íslendingar droppuðu inn í kaffi, sem var yfirleitt ekki gert í sendiráðunum nema að melda sig fyrst. En satt að segja hefðum við helst vilja vera lengur á öllum stöðum.“ Heimþráin gerði stundum vart við sig hjá Önnu en þó ekki svo að það plagaði hana. „Við komum til Íslands einu sinni til tvisvar á ári og vorum alltaf heima tvo mánuði á sumrin þegar börnin voru í sumarfríi í skólunum, segir Anna en þau Hjálmar eiga þrjú uppkomin börn sem öll upp­ skáru mikla tungumálakunnáttu á búferlaflutningum fjölskyldunnar. Anna segir mun á konum í dag og þegar hún flutti fyrst utan til sendi­ ráðsstarfa árið 1977. „Aðalmunurinn er sá að konur voru ekki eins sjálfstæðar og þær eru í dag. Það fer þó eftir því hvar maður er staddur í heiminum og menningu staðarins. Í Arabalönd­ Sautján sortir af hnallþórum Kökusala í anda fröken Hnallþóru, ráðskonu Jóns Prímuss í Kristnihaldi undir Jökli, verður í Lang- holtskirkju á morgun til að vekja athygli á tónleikum og átaki til að klæða að nýju sæti kirkjunnar. unum eru konur yfirhöfuð ekki mjög sjálfstæðar en þegar þær hittust með konum annarra sendiráða, einar og sér, tóku þær niður slæðurnar og dönsuðu eins og við hinar í leikfimi og dansi. Það þótti mér sérstakt að upplifa.“ Í Kína var einnig kvenfélag á meðal sendiráðsfólksins. „Við ferðuðumst saman og auðvitað var meira gaman að fara saman í hóp að skoða Forboðnu borgina heldur en ein. Svo var alltaf farið í kaffi og spjall yfir kín­ verskum mat á eftir og virkilega gaman og gefandi stundir. Ég naut þess í botn að vera í Kína því þar var svo margt að sjá og kínverskar konur eru mjög sjálfstæðar. Þar ræður amman öllu á heimilinu og þar er borin virðing fyrir fullorðnu fólki,“ segir Anna. Þess má geta að Anna er stofn­ andi og fyrsti formaður UN Women for Peace, sem hafði að markmiði að hjálpa konum að komast í meist­ arapróf í Friðarháskólanum í Kosta­ ríku. Á fimmtudaginn, 8. mars, voru tíu ár síðan hreyfingin var stofnuð en hún hefur margfaldast í starfi sínu síðan. Byrjaði í Breiðholtinu Fyrstu kynni Önnu af kvenfélags­ störfum var á áttunda áratugnum í Efra­Breiðholtinu. „Þar áttum við hjónin okkar s fyrstu íbúð en hverfið var nýtt og því var stofnað framfarafélag, fótboltafélag, sóknarnefnd og kvenfélagið Fjallkonurnar sem er enn mjög öflugt í Breiðholtinu. Ég gekk auðvitað í það og var komin í sóknarnefndina rétt 25 ára,“ segir Anna sem vill einkum starfa í kven­ félögum vegna þess að henni þykir gaman að vasast í félagsstörfum og láta gott af sér leiða. „Konurnar eru góðar og hressar og félagsskapurinn frábær. Alls eru um 75 konur í Kvenfélagi Langholtssóknar og við erum sjö í stjórninni. Margar konurnar eru orðnar fullorðnar en undanfarin ár hafa bæst við yngri konur sem eru virkar í starfinu.“ Kvenfélagið er með margt á prjónunum yfir árið. Jóla­ og vorbasar eru haldnir til stuðnings góðgerðarmálum og starfandi eru gönguhópar, listhópur og hópur matgæðinga. Þá er prjónakaffi mjög vel sótt af yngri konum og á vorin er vinsæll vormarkaður sem er stór viðburður í hverfinu. „Við styrkjum enga með millj­ ónum en látum fé af hendi rakna til félaga sem munar um hverja krónu. Samveran er dýrmæt og við fáum til okkar góða gesti með áhugaverð erindi sem höfða til allra aldurs­ hópa. Þannig fengum við Guðrúnu Ágústsdóttur formann öldrunar­ ráðs Reykjavíkur, Önnu Steinsson þjálfara hjá Kvam, og Önnu Þóru Baldursdóttur, sem rekur mæðra­ heimili í Kenýa, á afmælisfundinn okkar á dögunum,“ segir Anna en kvenfélagið er 65 ára í ár. „Nokkrar af stofnfélögunum eru enn í félaginu og sú elsta er Aðalbjörg Jónsdóttir, fædd 1916 og orðin 102 ára. Hún er mörgum kunn fyrir prjónaða kjóla úr ein­ girni og var með sýningu á Akureyri í fyrra,“ útskýrir Anna. Hún segir samstöðu og sam­ kennd einkenna kvenfélagsstarfið. „Velflestar standa nú í bakstri fyrir kökubasarinn á morgun og við fáum konur til að lesa valda kafla úr Kristnihaldi undir Jökli og Kór Langholtskirkju kemur og syngur. Þetta snýst því ekki bara um að koma inn og kaupa köku heldur getur fólk tyllt sér niður með kaffi og kökusneið og upplifað skemmti­ legan viðburð í ró og næði.“ Kökubasarinn stendur yfir frá klukkan 12 til 15.30 á morgun, sunnudag. Allir velkomnir. Menntaskólinn í Kópavogi Hótel– og matvælaskólinn Ferðamálaskólinn og Leiðsöguskólinn Digranesvegi 51 Sími 594 4000 www.mk.is Þekking - þroski - þróun - þátttaka Menntaskólinn í Kópavogi OPIÐ HÚS Í MK Fimmtudag, 15. mars Kl.16.30-18.30 Alþjóðabraut Félagsgreinabraut Opin braut Raungreinabraut Viðskiptabraut Framhaldsskólabraut Starfsbraut fyrir einhverfa Bakstur - bakari Framreiðsla -þjónn Kjötiðn - kjötiðnaðarmaður Matreiðsla - kokkur Grunndeild matvæla– og ferðagreina Ferðamála– og leiðsögunám Matsveina– og matartæknanám Meistaranám í matvælagreinum 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 A -0 B 9 8 1 F 2 A -0 A 5 C 1 F 2 A -0 9 2 0 1 F 2 A -0 7 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.