Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 44

Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 44
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Búast má við að margir skelli sér á skíði um helgina en skíðatímabilið stendur nú sem hæst. Jóhann Jökull Sveins- son ætlar að vera í Bláfjöllum en þar kennir hann börnum og fullorðnum á skíði og snjóbretti. „Þetta er alveg frábær vinna. Besta vinna í heimi. Ég lifi fyrir að vera á snjóbretti og skíðum og það er ekki verra að fá að vera uppi í fjalli og vinna við það sem manni finnst skemmtilegast. Mér finnst bæði gaman og gefandi að kenna börnum og fullorðnum og sjá nýtt skíðafólk fara út í lífið,“ segir hann. Sjálfur byrjaði Jóhann Jökull að skíða þegar hann var fjögurra ára og fimm árum seinna fór hann í fyrsta sinn á snjóbretti og eftir það varð ekki aftur snúið. „Ég hef verið viðloðandi starf- semina í Bláfjöllum síðan 2009 og byrjaði að vinna á skíðaleigunni. Í fyrra fór ég að kenna á skíði og snjóbretti. Það sem mér finnst skemmtilegast við skíðin er úti- veran, frelsið og hraðinn og svo finnst mér gaman að stökkva og fá smá adrenalínkikk,“ segir Jóhann Jökull sem vinnur með fötluðum ungmennum þegar hlé er á skíðatímabilinu. Allir detta einu sinni Greinilegt er að áhugi fólks á skíðaíþróttinni er geysimikill og segir Jóhann Jökull mikla aðsókn að Skíðaskólanum í Bláfjöllum. „Við erum með námskeið um helgar fyrir krakka á aldrinum fimm til fjórtán ára og það er nær alltaf fullbókað á þau. Á virkum dögum erum við með einkatíma og þeir eru mjög vinsælir, sérstak- lega meðal fullorðinna. Í þá koma margir sem fóru á skíði þegar þeir voru kannski tíu, ellefu ára og hafa áhuga á að byrja aftur. Síðan eru margir sem koma á námskeið ein- faldlega til að bæta hjá sér skíða- stílinn,“ segir Jóhann Jökull. Hann mælir með að börn jafnt sem fullorðnir komi í tvo skíða- tíma til að ná góðum tökum á undirstöðuatriðunum og segir að eftir það ættu allir að hafa lært að beygja og bremsa, auk þess að kunna á barnalyftuna. Þegar hann er spurður hvort fólk sé ekkert feimið við að koma í skíðakennslu segir hann svo ekki vera. „Nei, ég hef ekki fundið mikið fyrir því. Ég reyni yfirleitt að stappa í fólk stálinu. Það detta allir einu sinni á skíðum og það er best að klára það bara sem fyrst,“ segir hann og bætir við að áhugi á snjóbrettum sé sífellt að aukast. „Við reynum að koma til móts við brettafólkið og búið er að setja upp park sem hefur aldrei litið jafn vel út og núna,“ upplýsir hann. Ferðamenn á skíðum Jóhann Jökull segir skíðaíþróttina vinsæla meðal fólks á öllum aldri og nefnir einnig að æ fleiri ferða- menn noti tækifærið og skelli sér á skíði hér á landi. „Ég held að fáir komi gagngert í skíðaferðir til Íslands en nota kannski hálfan eða heilan dag í brekkunum,“ segir hann. En hvaða ráð á Jóhann Jökull fyrir þá sem eru algjörir byrj- endur á skíðum? „Fyrst og fremst að klæða sig eftir veðri. Hægt er að leigja skíðabúnað hjá okkur. Svo mæli ég með að hafa góða skapið með í för og muna að það getur tekið smá tíma að ná fullum tökum á íþróttinni.“ Allir detta einu sinni á skíðum Jóhann Jökull Sveinsson vinnur við það skemmtilegasta sem hann veit. Að kenna á skíði og snjóbretti. „Það sem mér finnst skemmti- legast við skíðin er útiveran, frelsið, hraðinn og svo finnst mér gaman að stökkva og fá smá adrena- línkikk,“ segir Jóhann Jökull. „Ég lifi fyrir að vera á snjóbretti og skíðum og það er ekki verra að fá að vera uppi í fjalli og vinna við það sem manni finnst skemmtilegast,“ segir Jóhann Jökull. Jóhann Jökull mælir með að hafa góða skapið með í för og muna að það getur tekið smá tíma að ná fullum tökum á skíðaíþróttinni. Föstudaginn 16. mars mun Fréttablaðið gefa út aukablaðið ÍSLENSKUR STRANDBÚNAÐUR Blaðið er unnið að hluta til í samstarfi við Strandbúnað ehf sem er samstarfsvettvangur fyrirtækja í strandbúnaði á Íslandi. Í blaðinu er áhugaverð og fróðleg umfjöllun íslenskan strandbúnað. M. a. ítarleg umfjöllun um ráðstefnuna Strandbúnaður 2018 sem fer fram dagana 18 – 19. mars á Grand Hótel. Í þessu blaði bjóðum við öllum fyrirtækjum sem tengt eru íslenskum strandbúnaði að kynna sína starfsemi, vörur og þjónustu. Boðið er upp á hefðbundin auglýsingahólf af ýmsum stærðum gerðum. Einnig er hægt að panta kynningarumfjöllun þar sem gefst færi á að fara ítarlega fyrir vöru og þjónustuframboð ykkar fyrirtækis. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 512 5433 / olafurh@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -F 7 D 8 1 F 2 9 -F 6 9 C 1 F 2 9 -F 5 6 0 1 F 2 9 -F 4 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.