Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2018, Qupperneq 102

Fréttablaðið - 10.03.2018, Qupperneq 102
hér sit ég í hádeg- inu marga daga ársins, þegar ég hef tök á, og hitti félaga mína. Ég er búinn að mála lengi og þar er ég ekki að finna upp hjólið, stundum er ég að rifja upp eitthvað sem ég hef gert áður og en ég er líka í leit,“ segir mynd- listarmaðurinn Daði Guðbjörnsson sem sýnir ný verk sín á kaffihúsinu Mokka á Skólavörðustíg. Sýningin ber heitið Eftirleit. Meðal mynda á sýningunni er ein sem heitir Eitill og sýnir samnefndan Hrút úr Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. „Í þeirri sögu fer karlinn einmitt í eftirleit,“ segir Daði og bætir við: „Það má líka túlka þessa mynd á annan hátt. Í nútímanum á karlmennskan undir högg að sækja og karlmönnum, sér- staklega eldri karlmönnum, er oft líkt við hrúta.“ Daði segir að myndlist sín teng- ist að hluta til andlegri leit. „Þótt maður sé búinn að öðlast tilfinn- ingalegt jafnvægi þá hættir hin andlega leit aldrei. Ég tengi listina alltaf við sálarlíf og tilfinningar. Mér finnst að listin sé til fyrir tilfinninga- líf okkar. Þessi sýning mín held ég að endurspegli andlega ró. Það er ákveðið jafnvægi í verkunum og þau eru hnitmiðaðri en áður.“ Blaðamaður hefur á orði að áber- andi gleði sé í þessum myndum Daða og hann samsinnir því. „Ef maður finnur sig andlega verður maður miklu sáttari við sjálfan sig og umhverfið. Uppsprettan í okkur er gleði og jákvæðni. Ég hef sótt mjög mikið í þessa gleði og vil koma henni til skila í myndum mínum.“ Litadýrð er við völd og þar er blái liturinn sem fyrr mjög áberandi. „Ætli við séum ekki öll með ein- hvern lit í uppáhaldi og hjá mér er það blái liturinn,“ segir Daði. Strax sautján ára gamall fékk Daði þá hugmynd að sýna á Mokka. Ég sagði Hring Jóhannessyni mynd- listarmanni frá þeirri hugmynd en hann réð mér frá því. Þetta voru holl og fín ráð sem ég fór eftir. Þannig að það liðu áratugir þar til ég hélt fyrst sýningu á Mokka. Ég hef haldið einkasýningar í stórum sölum, eins og Kjarvalsstöðum, og þá sýni ég stórar myndir. En mér finnst líka afskaplega gaman að sýna smærri myndir í almenningsrými, eins og hér á Mokka. Svo er engin tilviljun að ég sýni hérna því hér sit ég í hádeginu marga daga ársins, þegar ég hef tök á, og hitti félaga mína.“ kolbrunb@frettabladid.is Listin er til fyrir tilfinningar okkar og sálarlíf daði guðbjörnsson segir að myndlistarsýning hans á mokka endurspegli andlega ró og jafnvægi. fékk sautján ára gamall þá hugmynd að sýna á mokka en hringur Jóhannesson fékk hann ofan af því. Það er ákveðið jafnvægi í verkunum og þau eru hnitmiðaðri en áður, segir Daði. Fréttablaðið/anton brink TónlisT söngtónleikar HHHHH Sigríður Freyja Ingimarsdóttir mezzósópran og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari fluttu tónlist eftir ýmsa höfunda. kaldalón í Hörpu fimmtudaginn 8. mars Kaldalón í Hörpu er fallegur, lítill salur sem hentar prýði-lega fyrir raftónleika. Endur- ómunin er afar lítil og því er ekkert við salinn sjálfan sem truflar hljóm- gæðin. Bergmál er erfitt við að eiga, það bjagar tónlist úr hátölurum. Fyrir órafmagnaðan, klassískan söng er Kaldalón hins vegar ekki góður salur. Söngur þarf endur- ómun til að öðlast nauðsynlega fyllingu. Án hennar er hann nakinn og hrár. Það er til marks um hæfileika Sigríðar Freyju Ingimarsdóttur mezzósóprans, að henni tókst að lyfta a.m.k. sumum lögunum upp í hæstu hæðir á tónleikum á fimmtu- dagskvöldið án þess að takmarkanir salarins trufluðu of mikið. Sigríður hóf tónlistarferilinn sem píanóleikari, en hún starfar sem píanókennari við Tónlistarskóla Garðarbæjar. Hún hefur þó einnig menntað sig í söng, bæði við New England Conservatory í Boston og undir handleiðslu Alinu Dubik. Ekki er ljóst hvort tónleikarnir sem hér um ræðir voru svokallaðir debút- tónleikar, en undirritaður hefur a.m.k. ekki heyrt í henni áður. Fyrst á dagskránni voru þrjú lög eftir Rakhmanínoff. Túlkun Sigríðar var hrífandi, full af myrkum tilfinn- ingum. Röddin einkenndist af mjög öru en fókuseruðu víbratói. Radd- hljómurinn var fallega mótaður, fínlegur og mjúkur, með kraftmikilli hæð. Meðleikur Ástríðar Öldu Sig- urðardóttur var hér, sem og í öðrum atriðum efnisskrárinnar, þéttur og hreinn, og fylgdi söngnum fullkom- lega. Næst í röðinni voru þrjú íslensk lög, Betlikerlingin eftir Sigvalda Kaldalóns, Í fjarlægð eftir Karl Ó. Runólfsson og Vor hinsti dagur eftir Jón Ásgeirsson. Lögin voru frábær- lega flutt, söngurinn var þrunginn einlægni og næmri tilfinningu fyrir inntaki ljóðanna. Hver einasti tónn, hvert einasta orð var þrungið merkingu. Sömu sögu er að segja um íslensku lögin eftir hlé, sem og tvö sænsk lög. Tvö sígaunalög eftir Dvorák, sem og aríur úr Il trovatore eftir Verdi, Samson og Dalilu eftir Saint-Saëns og Dido og Aeneas eftir Purcell voru hins vegar ekki eins sannfærandi. Hér vantaði stærðina, bæði í hljóm salarins, sem og í röddina sjálfa. Volduga rödd þarf í slíka tónlist, kraftmikla og breiða. Sigríður hefur hana ekki enn á valdi sínu, ef marka má frammistöðuna á þessum einu tónleikum. Þess má þó geta að einir tónleikar eru ekki alltaf marktækir! En söngvarar þurfa ekki allir að vera eins. Sumir eru einfaldlega ekki óperusöngvarar, ljóðasöngur hentar þeim miklu betur. Það var þetta litla og einfalda sem Sigríður gerði svo vel að maður gleymir því varla í bráð. Vonandi kemur hún fram með þannig efnisskrá í betri sal næst, og helst sem fyrst. Jónas Sen niðursTaða: Túlkunin einkenndist af fágun og listfengi en dagskráin hentaði röddinni misvel. Dásamleg lög, dásamlega sungin lögin voru frábærlega flutt, söngurinn var þrunginn einlægni og næmri til- finningu fyrir inntaki ljóðanna” segir í dómi um flutning Sigríðar Freyju. Næturljóð er yfirskrift tónleika Camerarctica í 15.15 tónleikaröð Norræna hússins á morgun, 11. mars. Verkin bera keim af húmi næturinn- ar, að sögn Ármanns Helgasonar, klarínettuleikara og kennara, sem er einn flytjenda. „Þetta eru allt stemningsverk, mjög ólík þó þau hafi öll tengingu við nóttina.  Það er kyrrð og ró yfir sumum þeirra en líka andstæður, eins og fuglasöngur og villtur tangó- rytmi í síðasta verkinu,“ segir hann og lýsir dagskránni nánar. „Elsta verkið er nætursöngur eftir Max Bruch, unaðslega falleg tónlist, en  stærsta verkið er kvartett eftir Paul Hindemith, þungamiðja tón- leikanna og ótrúlega flottur, með því besta sem ég hef heyrt eftir meistara Hindemith, við fluttum hann 1995 á 100 ára ártíð tónskáldsins. Eðal kammertónlist.“ Sjálfur leikur Ármann einleiks- sóló í verkinu  Hyldýpi fuglanna eftir Oliv ier Messiaen. „Það verk er samið í seinni heimsstyrjöldinni þegar  tónskáldið dvaldi í fanga- búðum nasista.  Gert fyrir klarín- ettu, selló, fiðlu og píanó og í miðju verkinu birtist þessi einleiksþáttur sem fjallar um tímann og eilífðina en á móti kemur fuglasöngur, tákn um frelsi og tímaleysi hjá höfund- inum,“ lýsir Ármann. „Svo endum við á seiðandi tangó eftir Miguel del Aquila, þar er suðuramerískur rytmi og mikið fjör.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 15.15 og taka um klukkutíma. Miðaverð er 2.000 krónur en 1.000 fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. – gun Ólík verk en öll tengjast nóttinni Camerarctica skipa að þessu sinni þau ingunn Hildur Hauksdóttir, Hildigunn- ur Halldórsdóttir, Sigurgeir agnarsson, og Ármann Halldórsson. svo endum við á seiðandi tangó eftir miguel del aquila 1 0 . m a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r54 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 9 -9 E F 8 1 F 2 9 -9 D B C 1 F 2 9 -9 C 8 0 1 F 2 9 -9 B 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.