Land & synir - 01.12.1995, Qupperneq 7

Land & synir - 01.12.1995, Qupperneq 7
Handritin heim undir öruggri leiðsögn Hildur Loftsdóttir skrifar um handritanámskeiö Michael Casale. I^ágústmánuði kom bandaríkjamaður- inn Michael Casale hingað til íslands. Michael þessi er aðstoðarprófessor í skapandi skrifum við New York University og þekktur um víða veröld sem “script-doctor”. Bauð hann því íslenskum kvikmyndagerðarmönnum að leita álits og ráða hjá honum varðandi hugmynd, handrit í smíðum eða seinustu drög. Margir nýttu sér þessa þjónustu og voru undan- tekningarh'tið mjög ánægðir með hana. Aðaltilgangur með dvöl Michaels hér var þó til að halda námskeið í kvik- myndahandritagerð, og er þetta í þriðja sinn sem hann kemur hingað þeirra erinda. Nemendur nám- skeiðsins voru 27 talsins, og höfðu mjög mismikla reynslu og kunnáttu á þessu sviði, en það kom ekki að sök; allir lærðu eitthvað nýtt. Handritatækni var af rökréttum ástæðum fyrsta viðfangsefni nám- skeiðsins; hvernig segja skuli sögu í myndum, og voru skoðuð verk nokkurra snillinga í því skyni að átta sig betur á hinum ýmsu möguleikum. Næsta þrep var svo skipulagningin. Allir vita að hugmynd að heilli kvikmynd getur í upphafi stuðst við einungis tvö orð, ljósmynd, ímyndaða persónu eða eitthvað annað sem hefur hreyft við einhverjum strengjum í listamanns- hjartanu. í kringum þessa hugmynd fæðast svo ótal aðrar hugmyndir að samtölum, römmum og öðrum atriðum. Lærðum við því að skipuleggja skrif og hugmyndir til að ná tökum á heildarmynd verksins, og einnig svo eitthvað yrði úr verki og að það verk yrði sem best. Nú höfðu tæknilegu hliðamar fengið sinn skammt, og var þá farið yfir í þær andlegu stellingar sem handrita- höfundar þurfa oft að setja sig í til að geta hreinlega hafist handa. Er það kallað “willed introversion” sem þetta skapandi og yfirleitt mjög svo “extravertifa” fólk þarf að temja sér. Undirbúningur undir skrifin enduðu á áhorfendunum (þessum elskum!), og þeim þáttum í uppbyggingu handritsins sem gætu haft áhrif á hluttekningu þeirra í myndinni, og þá samúð sem þeir ættu að bera til söguhetjanna. Nú hófust nemendur handa við listsköpunina. Alhr fengu klukkustunda einkaviðtal við kennarann til að ræða hugmynd sína, penninn var mundaður og að lokum voru snilldarverkin öll frumflutt af fjölhæfari nemendum námskeiðsins. Seinasta kvöldið var svo kallað “Film Appreciation Night”, þar sem nemendur sýndu hvor öðrum uppáhalds bíó- myndaatriðin sín, og allir fengu popp og kók. Mönnum hefúr verið tíðrætt um að í íslenskri kvikmyndagerð sé víða pottur brotinn í handritagerðinni, og að þar þurfi íslenskt kvikmyndagerðarfólk sérstaklega að taka á málum. Þykir því undarlegt að ekki fleiri skuli sækja námskeiðin hans Michaels, sem þykja mjög góð jafnt leikmönnum sem Iærðum. Að vísu hafa þau verið haldin yfir mesta annatímann í berjatínslunni ár hvert, og því skiljanlegt að margir sjái sér ekki fært að koma. 'Werk í vinnsÓM Kvikmyndagerðarmönnum sem vilja koma verkum sínum að í þessum dálki er hent á að hafa samband við aðstandendur blaðsins. DJÖFLAEYJAN. Eftir skáldsögum Einars Kárasonar um Braggafólkið. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Handrit: Einar Kárason og Friðrik Þór Friðriksson.. Framleiðandi: íslenska kvikmyndasamsteypan. • í undirbúningi, tökur íyrirhugaðar fyrri hluta árs 1996. BLOSSI /810551. Vegamyndum ungt par og stolið kreditkort. Leikstjóri: Júlíus Kemp. Handrit: Lars Emil Ámason, Júlíus Kemp. Framleiðandi: Vilhjálmur Ragnarsson / Kvikmyndafélag fslands, o.fl. • í undirbúningi, tökur fyrirhugaðar 1996. BENJAMÍN DÚFA. Eftir skáldsögu Friðriks Erlingssonar um ftóra unga drengi sem stofna riddarafélag til að berjastgegn óréttlœti. Leikstjóri: Gísh Snær Erhngsson. Handrit: Friðrik Erhngsson. Framleiðandi: Baldur Hrafnkelljónsson. • Á lokastigi eftirvinnslu. Frumsýning áætluð 2. nóvember 1995. UNGFRÚIN GÓÐA OG HÚSIÐ. Eftir smásögu Halldórs Laxness um tvcer systur með ólíka lífsssýn. Handrit og leikstjórn: Guðný Halldórsdóttir. Framleiðandi: Hahdór Þorgeirsson / Kvikmyndafélagið Umbi. • í undirbúningi, tökur fyrirhugaðar 1996. SÆTIR BANANAR.ffeg<WM)'«í/ um leigubílstjóra og blinda stúlku. Handrit og leikstjórn: Einar Þór Gunnlaugsson. Framleiðandi: Kvik- myndafélagið Umbi og Focus fllms U.K. • í undirbúningi, tökur fyrirhugaðar sumarið 1996. AGNES. Nítjándu aldar drama um atburðina sem leiddu til síðustu opinberu aftöku áíslandi. Leikstjóri: Egill Eðvarðsson. Handrit: Jón Ásgeir Hreinsson og Snorri Þórisson. Framleiðandi: Snorri Þórisson/Pegasus hf. • í eftirvinnslu, frumsýning áætluð um jól 1995. DRAUMADÍSIR. Kómedía um tvœr ungar Reykjavíkurdœtur sem dreymir um sama manninn. Handrit og leikstjóm: Ásdís Thoroddsen. Framleiðandi: Martin Schluter/Gjóla hf. og íslenska kvikmyndasamsteypan. • í eftirvinnslu, frumsýning áætluð fyrri hlutaárs 1996. SYSKON KÁRLEK (Systkinakærleikur). Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Handrit: Katarina von Bredow og Friðrik Þór Friðriksson. Framleiðandi: íslenska kvikmyndasamsteypan o.fl. • í undirbúningi. STEYPTIR DRAUMAR. Leikin heimildamynd um Samúeljónsson, listamann íSelárdal. Stjórn: Kári Schram. Handrit: Kári Schram og Ólafur Engilbertsson. Framleiðandi: Andrá hf. • í eftirvinnslu. Verklok áætluð fyrrihluta árs 1996. VIGUR (vinnuheiti). Um lífogstörf fólks í Vigur og nágrenni. JÖKULDALUR (vinnuheiti). Um mann- og dýralíf íJökiddal og nágrenni. SÚÐAVÍK (vinnuheiti). Um afleiðingar náttúruhamfaranna og uppbyggingu á staðnum. Stjórn og handrit þessara verkefna: Steinþór Birgisson. Framleiðandi: Víðsýn / Sjónvarpið. • Tökur standa yflr. Verklok áætluð á vormánuðum 1996. MAÐUR, FUGL OG VATN (vinnuheiti). Um líftð og tilveruna við Þingvallavatn. Stjórn: Valdimar Leifsson. Handrit: Einar Örn Stefánsson. Framleiðandi: Lífsmynd / Sjónvarpið. • Tökur standa yfir. Verklok áætluð haustið 1996. NORDSOL (vinnuheiti). Um einleikarakeppni Norðurlanda sem fram fór íoktóber. Stjórn: Hilmar Oddsson. Framleiðandi: Sjónvarpið. • I eftirvinnslu. GLIMA. Leikin heimildamynd um glímuna. Handrit og stjóm: Böðvar Bjarki Pétursson. Framleiðandi: Þorsteinn Bachmann og Böðvar Bjarki Pétursson. • í eftirvinnslu. Áætluð verklok í desember. NAUTN. Um ungtpar í Reykjavtk sem hristir uppí samferðafólki sínu með ögrandiframkomu. Handrit og leikstjórn: Stefán Árni Þorgeirsson og Sigurður Kjartansson. Framleiðandi: Baldur Stefánsson / Kjól og Anderson. • í eftirvinnslu. Frumsýning fyrirhuguð 10. nóvember 1995. BJÖRGUNIN. Leikin barnamynd, framlag Islands í samvinnuverkefni EBU-stöðvanna. Leikstjórn: Sigurbjörn Aðalsteinsson. Handrit: BergljótArnalds og Sigurbjöm Aðalsteinsson. Framleiðandi: Sjónvarpið. • Myndin er á lokasflgi eftirvinnslu. HREIÐARIIEIMSKI. Hreyfimynd. Stjórn: Sigurður Örn Brynjólfsson. Framleiðandi: Siggi Anima Studio, Talhn Eistlandi. • Myndin er á lokastigi vinnslu í Tallin. RIDDARARKÉTTLÆTISINS: Úr “Benjamín dúfu”sem frumsýnd verður þann 2. nóvember nœstkomandi. tjmöéksynir 7

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.