Land & synir - 01.02.1996, Page 2

Land & synir - 01.02.1996, Page 2
Land&syrar Nr. 2-1. tbl. 2. árg. 1996 Útgefandi: Félag kvikmymlagcrðar- tnánna, Laugavegi 24,101 R\ík. Ritstjóri: Ásgrímur Sverrisson (552-3204). Ábyrgðarmaður: Böðvar Bjarki Pétursson (551-0940 & 554-2931). Ritnefnd: Böðvar Bjarki Pétursson, Eríendur Sveinsson, Hildur I.oftsdóttir, Sigurður Hr. Sigurðsson, Þorsteinn Jónsson. Útlit: Ágúst Loftsson Prentun: Steinmark Land & synir kenn.r út annan hvern iiiánuð, Væntingar og vonbrigði Eitthvað stemmir ekki. Á sania tímá og fram kemur í könnun l'K að þjoðin vill veg íslenskrar kvik- mvndagerðar sem mestan, lætur hún sig vanta þegar boðið er uppá íslenskt bíó. Á þessu ári hafa verið frumsýndar sjö íslenskar tnyndir og ein til viðbótar birtist á fyrstu mán- uðum nýs árs. Sú nýjasta, Ag/ies, er reyndar nýfrumsýnd þegar þetta er skrifað og því óhægt utn vik að segja til ttm aðsókn. Þó er ijóst að aðsóknin að íslensku myndiinum hefur ekki orðið í samræmi við væntingar - stnndum þrátt íyrir ein- ninia lof gagnrýnenda sem og á- horfenda. Eftilvill hafa væntingamar verið of mikiar, Kltilvill er markaðurinn að komast í einhverskonar „jafn- vægi“ eftír frumbýlingsárin. Eftilvill heyra lölur á borð við 60-70 þús- timl mamis og yfir, sögunni til nema í algjöfuni uiidantekniiigartii- felium. Slíkar tölur eru reyndar með öllu óþekktar annarsstaðar en sýndu að jslendingar praktísera höfðatölnregluna af miklum móð. Nxi er ekki allt fólgið í mikilli að- sókn en engu að síður er nauðsyn- legt fyrtr kvikmyndaiðnaðinn (sem velti vel á annan milljarð 1995.) að eiga óskrifaða viðmiðunarþrösk- ulda um velgengni, auk þess að finna fyrir velvilja þjóðarinnar í veskinu. Spurningin er, hvar liggur viðmiöunin á „aðsóknarmynd“?. Þurfa t.d. myndir á borð við Ein stór Jjölskylda, Ingaló eða Hin heigu ré að teljast flopp í aðsókn þó aðeins fáein þúsund hafi séð þær? Á alþjóölegutn markaði væru menn nokkuð sáttir við sambæri- lega aðsókn. Samkvæmt þessari skilgreiningu er t.d. Tár úr steini „metaðsóknarmynd". Á liinn bóginn kann að vera níésti óþarfi að lækka viðmiðun- ina. Alltof fáir Evrópúraenn sjá evr- ópskar myndir, Því þarf að breyta. Og þrátt fyrir allt hafa landsmenn sýnt innlendri framleiðslu meiri á- huga gegnum tíðina en gengur og gerist með öðrum þjóðunt. Þcnmm áliuga þarf að rækta dag og nótt. Bókvit í Bóksölu stúdenta óksala stúdenta við Hringbraut fær hér með þrefalt húrra fýrir viðleitni sína. Það góða fólk hefur nefnilega komið upp hilfu í versluninni sem undirlögð er bókmenntum um kvikmyndir og kvikmyndagerð. Hingað til hafa bókaormar sem lesa vilja þesskonar bækur orðið að fara utan og fylla pjöhkur og pinkla með tilheyrandi kostnaði og erfiði. Úr- vahð mætti að vísu vera ögn meira en ekki skal lastað þetta framtak, sem tekur langt fram öllum öðrum bókaverslunum hér á landi. Ekki skemmir heldur fyrir að vísdóm- urinn er yfirleitt seldur á nokkuð skaplegu verði. Dæmi um nýlegar bækur: • The Branded Eye eftir Jenaro Talens. Vangaveltur um Andalúsíuhundinn eftir Bunuel. • Movie-made America, a Cultural hi- story ofAmerican movies eftir Robert Sklar. Sklar þessi er einn af virtari fræðimönnum á sviði kvikmynda í vesturvegi. • The Road to Xanadu eftir breska ieik- arann og feikstjórann Simon Callow. Fyrra bindi ævisögu Orson Welles. Þessi bók hefur fengið afar góðar viðtökur. • The Encyclopedia of European Cinema, ritstjóri Genette Vincend Eau. Brit- ish Film Institute gefur út þetta þarfa rit. • The Critics Film Guide. Umsagnir virtra gagnrýnenda beggja vegna Atlantshafs um yfir fimm þúsund bíómyndir. Nokkrir dómar um hverja mynd. • Video Watchdog. Tímarit sem kemur út 5-6 sinnum á ári og sinnir eiiikum nýjum myndbanda- og laserdiskaútgáfum af klass- ískum myndum og kvikmyndum utan Ilollywood. Gagnrýnl og ítarlegar greinar. Frá og með næsta blaði munum við hefja reglulega umfjöllun um ýmsar þær bækur sem á boðstólum eru í Bóksölunni. Styr um úthlutunarnefnd Nokkrar væringar hafa verið meðal kvikmyndagerðarmanna vegna úthlut- unarnefndar Kvikmyndasjóðs. Kvikmyndafélögin hafa gert athugasemdir vegna setu Laufeyjar Guðjónsdóttur í nefndinni, þar sem hún er dagskrárstjóri hjá Stöð 3. Stöð 3 hefur haft stór orð um væntanlega innlenda dagskrárgerð, og þar með er augljós hætta á hagsmunaárekstri. Laufey sagði af sér í nefndinni í kjölfar þessara athugasemda en stjórn Kvikmyndá- sjóðs samþykkti að biðja hana að um að taka stöðu sína aftur, og varð hún við því. Þess má geta að FK gerði strax þegar úthlutunarnefnd var valin, athugasemd við setu Markúsar Arnar Antonssonar í nefndinni. f ljósi þess að RUV tengist mjög mörgum umsóknum í sjóðinn þá taldi t'K að óeðlilegt að fastráðinn starfsmaður þeirrar stofnunar sæti í úthlutunarnefnd. Stjórn Kvikmyndasjóðs sá ekki ástæðu til að taka þessa athugasemd til greina. Stjórn FK hefur ákveðið að láta málið fy'rrt liggja en beita sér fyrir því í framtíðinni að kornið verði á skýrum siðareglum við val á úthlutunarnefnd. Eg á mér margar hjart- kærar myndir, eins og vini, sem ég hef eignast á vegferð minni, allt frá þeim árum er ég horfði draumstolnum augum á Rauða sjóræningjann, Roy Rogers og Trigger, snögghærður sópari í landsbyggðarbíói, sem sá ítllar myndir í það minn- sla 5 sinnum. Alltaf var rnaður jafn dolfallinn og burthrifinn af töfr- um þessara flöktandi ímynda, fullkomlega meðvirkandi í framvindunni, „Passaðu þig Roy! Hann er fýrir aftan þig!.“ Alltaf jafn sæil að leikslokum er Roy reið sönglandi inn í sólarlagið. Fullnægður fýrir hans hönd. Frjáls hið innra. Þannig legg ég enn mat mitt á góðar bíómynd- ir. Hrífur sagan mig á brott, svo ég gleymi ó- þægilegum sætunum og skrjáfinu í salnum? Finn ég samsömun og samúð með aðalper- sónunum, svo líkamsstarfsemi mín örvast eða slævist í takt við framvindu sögunnar? Felli ég tár? Verð ég réttlátlega reiður? Sit ég eftir að sýningu lokinni, og virðist lesa kreditlistann, þegar ég er í rauninni að bíða eftir að heimur myndarinnar sleppi mér lausum? Sumar þessara mynda eldast illa og aðrar standast misjafnlega hertar kröfur mínar, hvað varðar tæknilega og listræna úrvinnslu. Sérstaklega eftir að ég hóf að starfa við kvik- myndagerð og aldurinn forpokaði mig. Ein mynd er mér þó ávallt ofarlega í huga: Það er „BRAZIL" eftir Terry Gilliam (1984). Fyrir þá, sem ekki þekkja til, þá var Terry Gilliam Ameríkaninn í Monthy Python genginu breska. Hann hóf feril sinn sem teiknimynda- sagnahöfundur og for- vinnur hann oftast myndir sínar og hug- myndir í því formi. (Story board). Hann teiknaði t.d. hinar drep- fyndnu teiknimyndir, sem eru undanfari allra þátta Python hópsins. Það sem einkennir Giifiam einna helst er hin taumlausa leikgleði hans og hugmyndaauðgi, sem oftar en ekki er ljóður á myndum hans. En í Brasil tekst honum þó að hemja sig við efnið og er árangur- inn kvikmynd í gullinsniði. Óhagganlega faglegt meist- arastykki, jafnt hvað varðar handrit, kvikmyndatöku, klippingu, hljóðsetningu, tónlist, leikmynd, leik og leikaraval. Allt í réttum hlutföllum og engu ofaukið á kostnað annars. Myndin er yndislega kaldhæðin og engin von til annars en að finna til samsömunar og samúðar með Sam Lowry kallinum (Jonathan Pryce). Myndin er í senn gamanmynd, þjóð- félagsádeila, eldheit ástarsaga og spennu- tryllir. Ég set hana reglulega í tækið og undrast sjón- arspilið og samsetning- una, li'kt og væri maður að reyna að finna út kökuuppskrift með því að bragða á kökunni. Jú, efnisþættirnir eru þarna, en hlutföll þeirra innbyrðis, það fæ ég aldrei al- mennilega sett flngurinn á. f myndinni eru endalausar tilvitnanir í kvikmyndasöguna: Eisenstein, Welles og Kurosawa, en aldrei svo að það þjóni ekki efninu. Aldrei af hégóma einum saman. Gilliam er einn af fáum leikstjórum sam- tímans, að mínu mati, sein hefur skilning og vald á frásagnarmiðl- inum kvikmynd, sem sjálfstæðum miðli og ruglar honum aldrei við önnur gildi s.s. bókmenntir og leik- hús. llann fer ekki í langlokur með að skýra flókinn sögu- þráð, heldur leikur á ályktun áhorfandans í kenningaranda Kules- hov. Svo má ekki gleyma því að hann hefur temmilega geggjun til að bera og jafnvel ófyrirleitni, sem mér finnst vera mergur hvers lista- manns. Myndsýn hans er með ólíkindum, þekking hans á listasögu og kvikmyndasögu djúp og ástríðufull. Það er að minnsta kosti engum blöðum um það að fletta að Brazil er gerð af ákefð hjartans. Af þörf og uppreisnar- anda. Liljan, sem ég og fleiri vildum kveðið hafa. Gilliam hefur sagt að myndir hans séu leynt og ljóst myndir Ameríkumanns í útlegð. Ádeila á samfélag, sem hafnaði honum. Brazil er að hluta uppgjör hans við gamla heimalandið, enda fékk myndin ekki náð fyr- ir dreifingaraðilum þar vestra. Þeir vildu breyta endinum og stytta myndina. Trúr list sinni, neitaði Gilliam. Myndinni var stungið undir stól, þar til Gilliam tók sig til og keypti heila síðu í Variety þar sem hann spurði ein- faldlega hæstráðanda: „Dear Sid Sheinberg. When are you going to release my film BRAZIL? - Terry Gilliam". Þetta vakti athygli gagnrýnenda í L.A. á myndinni, sem nú sóttust í að sjá hana á lok- uðum einkasýn- ingum. Þetta leiddi svo til þess að gagnrýnendur útnefndu hana bestu mynd ársins auk þess að hafa besta handrit og bestu leikstjórn, þrátt fyrir að hún hafði ekki verið gefin út opinberlega! Stúdíóveldið gat því ekki spornað við lengur og myndinni var sleppt á markað, öllum sönnum kvikmyndasælkerum til mikillar gæfu. Þrátt fyrir þetta var dreifing og auglýs- ing takmörkuð við fyrrnefnt áhugaleysi og hlaut myndin aldrei þá dreifingu og athygli, sem hún átti skilið, m.a. hér á íslandi. Myndin er í stuttu máli um það að eiga sér draum í andsnúnu umhverfi. Um frelsis- þrá í bákni, sem miðar að því að hefta slíkt. E.t.v. um martröð hins misskilda listamanns. Hún var nánast spádómur um þær hremm- ingar sem Gilliam átti að lokum í við stúdíó- veldið og dreifingarbáknið í fyrrttm heima- landi sínu. Endir myndarinnar féll ekki í kramið. Gilliam segir hann „happy ending", sam- kvæmt formúlunni, þó á sinn kaldhæðna máta væri. Hvað gerir maður þegar umhverf- ið er að hafa hann undir og hann er um það bil að verða rændur hinu helgasta í lífinu, ástríðum sínum og draumnum? Þegar öll sund virðast lokuð, er þó alltaf ein undan- komuleið. Leiðin inn. Inn í hugskotið og drauminn. Inn í veröld, þar sem ekkert bákn getur rænt þig frelsi. Það iirðu sælleg örlög Sam Lowry í Brazil. Rétt eins og í góðri kvik- mynd, sem opnar þér frelsið hið innra? C. . Land & synir mun reglulega birta skrif kvikmyndagerðar- manna um kvikmyndir sem sótt hafa á hug þeirra og sitja þar sem fastast. Frelsiið innra eftirjón Steinar Ragnarsson. 2 Land&symr

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.