Tíminn - 13.02.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.02.1983, Blaðsíða 12
12___________ starfskynning SUNNUDAGUR U. FEBRÚAR 1983. Ragnhildur Fjelsteð Garðar Ingi Olafsson Guðbjörg Helga Erlingsdóttir Rætt við fimm unglinga um samræmdu prófin: Jóhann Þ. Jóhannsson ■ Jónína B. Birgisdóttir Tímamyndir: Árni. „FINNST FARANLEGT AD HAFA EINNIG VORPRÓF” ■ Þau Jónas Þór Þorvaldsson og Sif Sigfúsdóttir, nemendur í 9. bekk Hóla- brekkuskóla, voru í starfskynningu á Helgar-Tímanum í síðustu viku. Þau þreyttu samræmd próf fyrir skömmu og fannst við hæfi að spyrja nokkur skólasystkini sín um álit á þessum prófum. Þau lögðu fimm spurningar fyrir krakkana. Fyrsta spurningin var: Hvern- ig gekk þér í samræmdu prófunum og viltu giska á hvað þú fékkst? Önnur spurningin var: Telur þú eðlilegt að hafa prófin svo snemma árinu eða hefur þú aðra uppástungu? Þriðja spurningin var: lélurðu að rétt sé að fella inn í samræmdu prófin verklegar greinar og þa hverjar? Fjórða spurningin var: Hvað hyggstu fyrir næsta vetur og hvaða starf gætir þú hugsað þér í framtíðinni? Fimmta og síðasta spurningin var: Nú þegar prófin er yfirstaðin, heldurðu þá að þú komir til með að slaka á fram að vorprófum? Fyrsta hittu þau fyrir Guðbjörgu Helgu Erlingsdóltir. Mér gekk ágætlega og ég hugsa að ég fái fjögur C. Ég tel eðlilegt að hafa prófin á þessum tíma árs og mér finnst rétt að bæta inn í verklegum greinum, eins og t.d. handa- vinnu. Ég býst við að fara í Fjölbrautar- skólann í Breiðholti næsta vetur, og ég gæti hugsað mér að starfa í framtíðinni eitthvað í sambandi við sjúkrahús. Ég ætla að reyna að halda mér við námið næstu vikurnar elida þótt samræmdu prófin séu að baki.“ Jóhann Þ. Jóhannsson sagði: Mér gekk vel í prófunum og vonast til að fá þrjú B og eitt A. Mér finnst að það ætti að hafa samræmd próf á þeim tíma sem vorprófin eru núna og sleppa þá bara alveg vorprófum. Mér finnst ekki rétt að fella inn í samræmdu prófin verklegar greinar. Næsta vetur langar mig í M.R., en ég veit ekki um framtíðarstarf. Ég hugsa að ég slaki örugglega á fyrst um sinn.“ Ragnhildur Fjelsteð sagði: „Mér gekk ágætlega. Ég vonast til að fá eitt A, tvö B og eitt C. Mér finnst að prófin mættu vera á vorin. Ég sé ekki ástæðu til að bæta inn í samræmdu prófin verklegum greinum. Á næsta ári langar mig til að komast í Verslunarskólann, annars er allt óákveðið varðandi framtíðarstarf mitt. Ég ætla mér ekkert að slaka á enda þótt samræmdu prófin séu búin. Gurðar Ingi Ólafsson sagði að sér hefði bara gengið vel. „Ég býst við að fá tvö A og tvö B („Joke of the year“ bætti hann við). En ég vildi færa prófin fram á vor. Verklegar greinar finnst mér ekki viðeigandi á samræmdum prófum. Ég hygg á nám í húsasmíð.og gæti vel hugsað mér að verða húsasmiður í framtíðinni. Ég ætla mér alls ekki að slaka á þótt prófin séu yfirstaðin.“ Jónína B. Birgisdóttir sagði: „Mér gekk ágætlega. Um að gera að vera nógu bjartsýn og ég giska á að ég fái tvö A og tvö B. Eg tel prófin núna vera á ágætum tíma, en mér finnst fáránlegt að hafa einnig vorpróf. Verklegar greinar vil ég ekki hafa með. Ég ætla mér að fara á heilsugæslubraut í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og gæti hugsað mér að starfa sem sjúkraliði í framtíðinni. Ég slaka sennilega eitthvað á í náminu, en reyni svo að halda áfram af krafti." Islenskir ungtemplarar: Alþjóðamót haldið á Islandi á næsta ári Mætli fella niður samræmd próf í ensku og dönsku — Rætt við Áslaugu Brynjólfs- dóttur, fræðslnstjóra aðeins fámennur hópur nemenda sem tók landsprófið. en allir nemendur í 9. bckk taka aítur á móti samræmd róf núna.“ Hvers vegna eru einkunnir á sam- ræmdum prófum gefnar í bókstöfunum A-E, en ekki í tölum eins og algengast hefur verið? „Fyrir því er einföld ástæða. Hún er sú að samræmdum prófum er fyrst og frentst ætlað að skipta nemendum í hópa. Minna rnáli skiptir hvaða ein- kunnir þeir hafa nákvæmlega fengið í tölustöfum." Er það ákveðið fyrirfram hvernig cinkunnir skiptast? „Já það er gert. Við miðum við ákveðna kúrfu og hlutfallið er þannig að 7% nemenda fá A, 24% fá B, 38% fá C. 24% fá D og 7% fá E.“ Getur komið til greina að leggja niður samræmd próf? „Já. hugmyndir unt að fella niður samræmd próf í ensku og dönsku hafa verið tii umræðu, og ég held að með árunum fari samræmdum prófunt fækkandi. í staðinn fyrir þau gætu þá komið kannanir á námsgetu þegar nemendur væru óundirbúnir, og svo lokapróf í öllum greinum í skólunum, þar sem kcnnararnir sjálfir gæfu ein- kunnir og bæru ábyrgð á þeim." Hvert er þitt eigið áiit á samræmdum prófum? „Það kæmi til greina að leggja niður samræmd próf í ensku og dönsku, m.a. vegna þess að nemendur standa mis- jafnlega að vígi þar sem sumir hafa íerðast til útlanda, og heyrt t.d. ensku og dönsku talaða. en aðrir hafa ekki átt þess kost. Hinir fyrrncfndu standa þá auðvitað betur að vígi í hlustunar- þáttum prófanna. Eins er ég þeirrar skoðunar að smá saman eigi að draga úr öðrum sam- ræmdum prófum, og staðinn kæmu kannanir yfir landið svo sjá mætti hvar einstakir skólar stæðu í samanburði við aðra. í þeim könnunum gætu kennarar sjálfir gefið einkunnir." Fræðslustjóri gat þess að lokum að töluverðar umræður væru um þessi mál, en vissulega væri erfitt að ná samkomulagi um skiputag sem allir væru fyllilega ánægðir með. ■ Sigurður Stefánsson í 9. hekk Snæ- landsskóla, sem var í starfskynningu á Helgar-Tínianum í síðustu viku, hefur verið félagi í ungteniplarahreyiingunni í eitt ár og kuus því að skrifa stutta frásögn af henni. Landssamtökin íslenskir ungtemplar- ar voru stofnuð 24. apríl 1958. Núver- andi formaður er Árni Einarsson. Innan samtakanna eru fimrn ungtemplarafé- lög: Hrönn, Hrollur, Trölli, Líf á Vopnafirði og Depill í Hafnarfirði, en starfsemi þess síðastnefnda hefur legið niðri að mcstu leyti. Starfsemi IUT er mjög fjölbreytt og má skipta henni í þrjá flokka: 1. Starfsemi innan félagsins 2. Fræðslu- starfsemi. 3. Kynningarstarfscmi. Eitt af baráttumálum samtakanna er útrýming vímuefna í þjóðfélaginu. Áfengisneysla er rótgróin í menningu okkar, einkum í skemmtanalífinu, og vilja samtökin vinna að því að brcyta því ástandi. Þau reyna að sýna fram á að áfengi cr ekki nauðsynlegt í félagslífi eða á öðrum vettvangi. Innan IUT er mjög blómleg útgáfu- starfsemi: Gefið cr út málgagn samtak- anna nokkrum sinnum á ári og fimm sinnum á ári er gefið út innanfélagsblað. Talsverð samskipti cru við Norður- lönd og alhcimsmót eru haldin annað hvert ár. Síðast var það haldið í Bergen í Noregi 1982 og næst verður það á íslandi 1984. Undirbúningur mótsins er þegar hafinn. Ungtemplarafélögin halda fundi reglulega einu sinni í viku, eða aðra hverja viku. Oft er farið í ferðalög saman, og engar reglur gilda nema þær að neyta ekki vímuefna. Á þessu ári eru 25 ár liðin frá því að Islenskir ungtemplarar hófu starfsemi sína, og ungtemplarafélagið Hrönn á einnig aldarfjórðungsafmæli. Stór hluti af starfseminni fer fram í Galtalæk þar sem er mjög góð aðstaða fyrir mótshöld. Ungtemplarar halda bindindismót þar á ári hverju í samvinnu við ýmsa aðila. Þeir sem óska eftir frekari upplýsing- um eða kynnum af samtökunum geta komið á Eiríksgötu 5 eða hringt í síma 21618. Kjörorð okkar eru: Bindindi - bræðralag - þjóðarheill. ■ Frá sumarmóti ungtemplara í Munaðamesi. ■ Samræmdum prófunt í 9. bekk grunnskólans er nýverið lokið. Prófin voru í t'slensku og stærðfræði, dönsku og ensku. Þessi próf eru ýmist árlegur höfuðverkur eða ánægjuefni nemenda unt land allt. Þrír strákar í starfskynn- ingu á Helgar-Tímanum, Bjarki Gestsson, Hrannar Hrantiarsson og Pétur Örn Sigurðsson, fóru á fund Áslaugar Brynjólfsdóttur, fræðslu- stjóra í Reykjavík, og spjölluðu við hana um samræntdu próftn. Fvrst spurðu þeir um ástæðuna fyrir því að prófin eru haldin. „Þessi próf koma í staðinn fyrir landsprófið gantla. en engar reglur giltu um það hverjir skyldu þreyta það og hverjir ekki. Þess vegna var það ■ Áslaug Biynjóifsdóttir fræðslustj óri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.