Fréttablaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 0 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 2 . M a Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKoðun Ásmundur Einar Daða-
son, félags- og jafnréttismála-
ráðherra, skrifar um að styrkja
fjölskyldur og börn í áhættu. 10
sport Góðar líkur á markaleik í
Rómaborg. 12
Menning Þegar Mozart
var drepinn og Sálar-
innar svörtu göng:
tónlistar- og leik-
húsdómar. 20
lÍfið Ímynduð sjón-
varpsdagskrá
næsta
hausts. 24
Vantar smurolíu
í augun?
Vertu viss með
Svissnesk gervitár við augnþurrki
Fást í öllum helstu apótekum
NETTÓ Á NETINU
- ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT -plús 2 sérblöð l fólK l MarKaðurinn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
ViðsKipti Ríkið mun falla að hluta
frá forkaupsrétti sínum að bréfum
Kaupþings í Arion banka, sem virkj-
ast að öðrum kosti ef þau eru seld
á genginu 0,8 eða lægra miðað við
eigið fé, upp að ákveðnum eignar-
hluta og í tiltekinn tíma þegar ráðist
verður í hlutafjárútboð og skrán-
ingu bankans, samkvæmt heim-
ildum Markaðarins.
Slík aðlögun á forkaupsréttinum
hefur verið talin nauðsynleg til að
tryggja góðan framgang útboðsins.
Annars er talin hætta á því að hann
myndi valda óvissu og draga úr þátt-
töku fjárfesta í útboðinu og þá um
leið aftra því að raunverulegt mark-
aðsverð á bankanum yrði leitt fram.
Ríkið verður þó áfram með for-
kaupsrétt að þeim hluta sem ekki
selst í útboðinu og verður enn í
eigu Kaupþings eftir skráningu
bankans. Kaupþing mun að líkind-
um selja minni eignarhlut en ella í
fyrsta kasti í útboðinu, mögulega í
kringum 30 prósenta hlut, en félagið
á samtals 55,6 prósent í bankanum.
Samkomulag við stjórnvöld um
endurskoðun á forkaupsréttinum
hefur verið á meðal þess sem helst
hefur staðið í vegi fyrir margboðuðu
útboði Arion banka. Áformað er að
tilkynna um að formlegt útboðs-
ferli sé hafið, mögulega strax í næstu
viku, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins. Sjálft útboðið, og í fram-
haldi tvíhliða skráning bankans á
Íslandi og í Svíþjóð, færi þá fram á
fyrri helmingi júnímánaðar.
Af hálfu stjórnvalda kemur einn-
ig til greina að Kaupþingi verði gert
að greiða ríkinu mismuninn ef sölu-
gengið í útboðinu á þeim bréfum.
sem ríkið mun falla frá forkaupsrétti
sínum að. verður lægra en 0,8. Kaup-
þing ábyrgist þannig að sú fjárhæð
sem ríkið fær verði aldrei lægri en
sem það fengi í sinn hlut miðað við
sölu bréfa á genginu 0,8 í útboðinu.
Ráðherranefnd um efnahagsmál
ræddi málið á fundi sínum í fyrra-
dag, samkvæmt heimildum, en ekki
hefur náðst endanlegt samkomulag
um þetta atriði í viðræðum fulltrúa
stjórnvalda og Kaupþings.
– hae / sjá Markaðinn
Ríkið fellur að hluta frá forkaupsrétti
Ríkið fellur tímabundið frá forkaupsrétti að bréfum Kaupþings í Arion upp að ákveðnum hluta við útboð bankans. Kaupþing
gæti þurft að greiða ríkinu mismuninn ef útboðsgengið verður undir 0,8. Hlutafjárútboð og skráning bankans verður í júní.
55
milljarðar myndu fást ef
30 prósenta hlutur í Arion
seldist á genginu 0,8.
lÍfið Fatahönnuðurinn Ýr Þrastar-
dóttir hannar fötin sem íslenski
Eurovision hópurinn mun klæðast
í Lissabon. Ýr segir að hún hafi þurft
að vinna hratt og örugglega enda lítill
tími sem hún fékk. „Ég fékk tiltölu-
lega frjálsar hendur við úrvinnsluna
á búningunum sem er alveg æðislegt.“
Hópurinn breytti
atriðinu tveimur
dögum áður en
hann hélt til
Portúgals sem
varð til þess
að fötin sem
V i g n i r o g
Gunnar voru í
pössuðu ekki alveg
inn í myndina. „Ég þurfti aldeilis að
spýta í lófana til þess að þetta myndi
allt saman ganga upp, sem það rétt svo
gerði.“ – bb / Sjá síðu 26
Fötin klár degi
fyrir brottför
Kröfugöngur og baráttufundir voru fjölmennir víða um land í tilefni á alþjóðlega baráttudegi verkalýðsins í gær. Við Ingólfstorg í Reykjavík var fjölmenni sem hlýddi á vígreifa verkalýðs-
foringja stála hnífa sína og leggja línurnar fyrir komandi átök, sem allir virðast sammála um að verði hörð. Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, boðar breyttar og róttækar aðferðir til að
ná fram kjarabót á meðan Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, varar við byltingaleiðinni sem sögulega hafi leit kjarabaráttuna í ógöngur og skert lífskjör. Sjá síðu 2 Fréttablaðið/Sigtryggur ari
0
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
4
-5
E
7
4
1
F
A
4
-5
D
3
8
1
F
A
4
-5
B
F
C
1
F
A
4
-5
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K