Alþýðublaðið - 19.12.1919, Side 1
Alþýðublaðið
Crefið itt af Alþýðuflokknum.
1919
Föstudaginn 19. desember
45. tölubl.
iSt&iRningsmmn
og aðra gamla og nýja viðskiftavini vildi eg vinsamlegast áminna um
að senda mér pantanir sínar sem fyrst, því vel getur farið svo, 'að
jólaös verði hjá mér, eins og hinum drengjunum, fyrir jólin.
Sumar vörur líka á förum.
Virðingarfylst
60
éóR. (Bgm. (Béósson,
Laugaveg 63. Sími 339.
6eorg granðes.
Enginn mun frægari af núlif-
andi dönskum mönnum, en Georg
Brandes. Hann mun einnig vera
lang áhrifamestur þeirra út á við.
Þó Brandes sé nú kominn hátt
á áttræðisaldur, sjást ennþá engin
ellimörk á honum; þvert á móti
fekur nú hver bókin eftir hann
aðra, örar en áður, og það bæknr,
Sem alment að dómi ritskýrara
eru eins góðar eins og þær beztu,
sem áður hafa birzt eftir hann.
Danska tímaritið „Tilskueren"
hefir nú um hiíð flutt grein eftir
Brandes í hverjum mánuði, — alt
greinar um það, sem er að gerast
í heimspólitíkinni nú um þessar
mundir.
í einu af síðustu heftum „Til-
skueren" er grein hans sú um
Rússlbnd, sem birtist nú hér í
biaðinu í íslenzkri þýðingu.
Rússland.
Eftir Georg Brandes.
Þessar línur eiga öllu heldur að
vera ávarp en timaritsgrein.
Þær eru ekki ritaðar í mínu
haíni, heldur í nafni hinna beztu
manna í hinu ógæfusama Rúss-
landi.
Orðum mínum boini eg eigi til
Dana því þeir eru of máttarvana.
Bg beini þeim til valdhafanna ut-
an Danaveldis, eða öllu heldur til
beirra sem vinna á móti valdhöf-
hnum og vilja steypa þeim er nú
hafa völdin úr stóli.
En rödd einstaklingsins heyrist
eigi langt enda þótt hún sé að-
eius talfæri.
Blöðin voru au forminu til gefin
írjáls 0i- friður var saminn, en
Samt sem áður eru þau þó bund-
Sn í báða skó af svo afarmörgu
sem þau verða að taka tillit til,
sannleikurinn er jafn keflaður og
bundinn sem hann var á stríðs-
tímunum.
Hvernig mátti það ske sem vér
nú sjáum fyrir augliti voru?
Pyrir hálfu ári síðan var næst-
um búið að svelta Rússland til
dauða, hvað mun þá vera nú.
Út frá þessu ber að dæma um
það hvaða afleiðingar þetta ómann-
lega, hástórpólitiska, djöfullega
hafnbann muni hafa, sem mestu
menningarþjóðir heimsins hafa sett
á Rússland.
Rússland er nú á sama stigi
sem Frakkland var undir stjórn
Jakabínanna frá því í september
1792 þangað tii í júli 1793 að
því þó viðbættu, að rússneska
byltingin er „social“ í eðli sínu.
Glappaskot Jakobínanna var
ógnaralræði þeirra, sem ekki gat
leitt til varanlegs skipulags og
hafði því afturköst í för með sér.
En Jakobínarnir afnámu samt sem
áður lénsréttindin sem hvorki stjórn-
gjafar- eða löggjafarþingið hafði
getað- afnumið. Beir kendu að all-
ir ættu að hafa pólitískt jafnrétti
— en það bar 19. öldin fram til
sigurs.
Svipað er nú um Rússa.
Bolsivíkar hafa tekið sér alræði
til að koma á jafnaðarsteúiu hvað
snertir jörðina og iðnaðinn.
En aðferð þeirra minnir því mið-
ur á aðferð Babeufs, er bann ætl-
aði að koma „Kommurisma“ á
áður en nokkurn varði. Eann var
svo skammsýnn að halda að hægt
væri að koma á „Kommunisma"
með því að leynifélag fárra manna
næði stjórninni á vald sitt.
Á .svipaðan hátt hafa Bolsiv.
gefið út ósköpin öll af tilskipun-
um, sem hafa lamað hæflleika
þjóðarinnar til þess að reisa nýtt
þjóðfélag úr rústum þess gamla.
Að aðferðir þeirra séu óheppi-
legar er vafalaust, hvað svo sem
sagt verður um grundvallarreglu
þeirra. Samt hefir Lenin komið
auga á þetta og mundi lagfæra ef
hann fengi tíma og ráðrúm til.
Það versta er að Bolsivíkar hafa
með ákafa sínum rutt römmustu
afturhaldsgagnbyltingu braut. í vor
ætluðu gagnbyltingamenn að nota
sér það hve þjóðin var orðin þreytt
og koma á gagnbyltingu. Þessi
þréyta stafaði ekki eingöngu af
innanlandsstríðinu, heldur af mat-
vælaskorti sem eykst stöðugt síð-
an að framleiðslu og vöruskiftum
hnignaði.
í Vestur-Evrópu er talað um
að koma á „reglu“ í Rússlandi
með því að kúga Rússa með vopn-
um. Þýzku herferðirnar til Rúss-
lands höfðu ægilegar afleiðingar og
byltingamennirnir rússnesku hata
þýzkan imperialisma ekki af því
að það sé þýzkt heldur af því að
það er imperialismi. Frá sömu
mönnunum koma nú öflug and-
mæli gegn því að Bandamenn
blandi sér inn í innanlandsmál
Rússlands með vopnuðu liði, hve
I