Fréttablaðið - 05.05.2018, Síða 24
F jölmargir útskriftarnem-endur Listaháskólans eru staddir á Kjarvals-stöðum við undirbún-ing útskriftarsýningar í arkitektúr, hönnun og
myndlist. Sýningin verður opnuð
í dag og er óhætt að segja að hún
sé einstaklega glæsileg í ár. Birta
Fróðadóttir og Dorothée Maria
Kirch mættu blaðamanni og ljós-
myndara og sýndu þeim brot af
sýningunni.
Leiðsögnin hefst í sýningarrými
nemenda í vöruhönnun. „Þau unnu
með ákveðið þema, mennsku,“ segir
Birta. „Þau hafa öll verið að kljást
við ýmsa hluti á lífsleiðinni og mörg
þeirra nýta hana í vinnu sinni.“
Birta staðnæmist fyrir framan
verk eins nemandans, Kristínar
Þorsteinsdóttur. Ljósmynd af konu
sem fór í brjóstnám og ákvað að
flúra yfir örið. „Það þykir sjálfsagður
hlutur að fara í brjóstauppbyggingu
eftir brjóstnám. Þessi kona ákvað
að fara aðra leið og láta örið verða
hluta af sér. Hún verður líka með
hljóðverk þar sem gestir sýningar-
innar hlusta á sögur. Það er mikil
rannsóknarvinna sem einkennir
verk nemenda í vöruhönnun. Það
er svolítið verkefnið þeirra, að fara
í rannsóknarvinnu.“
Úr rammanum
Hún bendir á verk á gólfinu,
sundurslitinn fótbolta á fleti. Slitrur
úr fótboltunum vísa í tilfinningar.
„Þetta verk er til dæmis eftir Þórð
Jörundsson, sem samhliða námi
starfaði í félagsmiðstöð. Þar vann
hann með strákum í því að tala um
tilfinningar sínar. Verkið er sym-
bólískt – eftir því sem við vinnum
meira úr tilfinningunum, því heilli
verðum við.“
Verk útskriftarnema í fata-
hönnun í einu rýminu hafa á sér
sterkan heildarbrag. „Nemendur
unnu með það hvernig við förum
úr rammanum okkar, kynjaramm-
anum, samfélagsrammanum. Það er
mikið um unisex flíkur og á tísku-
sýningunni notuðu þau karla sem
fyrirsætur. Kvenlíkaminn er ekki
lengur endilega það sem hannað er
utan um, heldur er líkaminn óháður
kyni,“ segir Birta frá og gengur með
blaðamanni og ljósmyndara inn í
sýningarrými grafískrar hönnunar.
„Hér er sú deild sem fer um hvað
víðastan völl. Hér eru teiknaðar
sögur, leturgerðir, litróf, einn nem-
andi gerði rannsókn á því hvað það
er að vera tvítyngdur á Íslandi. Og
svo er það hann Andri, sem vann
algjörlega út frá eigin reynslu,“ segir
Birta. Andri Þór Ingvarsson situr á
bekk fyrir framan skjá með grafískri
hreyfimynd sem byggir á reynslu
hans af mjög alvarlegum veikindum
sem hann tókst á við fyrir nokkrum
árum.
„Ég fékk svokallað tannrótaræxli.
Veiktist árið 2009 og fékk lækn-
ingu 2014. Ég hef farið í um þrjátíu
aðgerðir og í þeirri síðustu var æxlið
tekið og augað með,“ segir Andri
frá. „Ég vinn verkið út frá þeim litlu
minningarbrotum sem ég á úr þessu
ferli. Mér fannst ágætt að takast á
við þessa reynslu með því að vinna
verk um hana. Kafa ofan í þetta. Ég
rifjaði þetta allt saman upp. Ég hélt
dagbók á Facebook þegar ég var úti
í aðgerðinni, en bæði geislameð-
ferðin og svo aðgerðin seinna meir
var framkvæmd þar,“ segir Andri
Þór um verk sitt.
„Þetta er mjög áhrifamikið verk,“
segir Birta. „Þetta er ákveðinn þráð-
ur í hönnun núna. Fólk er að líta sér
nær, vinna með lífsreynslu, áföll.“
Við útgang salarins eru þau
Andrea Sif, Ellert Björn og Kristín,
nemendur í arkitektúrdeild og
leggja lokahönd á innsetningu um
verkefni deildarinnar í ár, lista-
mannaathvarf í Hveragerði. „Arki-
tektúrdeildin fær alltaf ákveðið
verkefni og í þetta sinn áttu þau
að gera Hveragerði skil, hanna þar
listamannaathvarf,“ segir Birta frá.
Dorothée Kirch tekur við leið-
sögninni, hún aðstoðar 24 nemend-
ur við að setja upp sýningu í öðrum
enda safnsins. Einn nemenda í þetta
sinn útskrifast úr tónlistardeild.
Dorothée er ánægð með sýningar-
rýmið sem er skipt í þrjá sali. „Ég var
strax spennt fyrir því. Hér er hægt
að stilla saman verkum sem tala
svolítið saman. Í einum salnum eru
til dæmis saman nokkur verk sem
mörg byggja á tækni og gagnvirkni,“
segir Dorothée og sýnir blaðamanni
kostulegan tölvuleik, Dag hinna lif-
andi hrúta. Hann er í anda níunda
áratugarins og karakterarnir litríkir.
Fyrir utan salina eru nokkur verk.
Katrín Helga xdóttir, ein Reykja-
víkurdætra, hefur útbúið karókí-
horn í safninu. „Lögin eru allt frá
10 sekúndum upp í 3 mínútur. Þau
verða til sýnis hér en hún mun svo
halda karókítónleika á hverjum
degi klukkan fjögur.
Almar í baðkari
Listneminn Almar Atlason sem hefur
vakið athygli á Íslandi og víðar fyrir
það uppátæki sitt að sitja nakinn í
kassa í marga daga er einn útskriftar-
nema. „Hann situr í þessu baðkari
íklæddur barnanáttfötum,“ útskýrir
Dorothée. Fyrir framan baðkarið er
sjónvarp þar sem er heldur drunga-
legt barnaefni á skjánum. „Vinur
hans verður með honum í þessu
og leikur sér að lest sem virkar ekki
alveg. Er alltaf að bila. Verkið fjallar
um þunglyndi barna. Börn eiga að
vera svo glöð og kraftmikil en geta
verið þunglynd eins og fullorðið fólk.
Almar minnist vinar síns sem talaði
um sjálfsvígshugsanir sjö ára gamall.
Fullorðna fólkið hrósaði hins vegar
þessum sama strák fyrir hvað hann
væri flottur og sjálfum sér nógur.
Alltaf að dunda sér. En honum leið
greinilega bara mjög illa.“
kristjana@frettabladid.is
Litrík
dagskrá
og óvæntir
atburðir
Útskriftarsýning nema í arkitektúr, hönnun
og myndlist verður opnuð í dag á Kjarvals-
stöðum. Birta og Dor othée Maria Kirch sýn-
ingarstjórar gáfu forsmekk að sýningunni.
Birta og Dóra, sýningarstjórar útskriftarnemenda LHÍ á Kjarvalsstöðum.
Andri Þór við verk sitt á Kjarvalsstöðum. FréttABLAðið/EyÞór
Gestir geta spreytt sig á tölvuleikn-
um Dagur hinna lifandi hrúta.
Almar „í kassanum“ útskrifast. Verk hans fjallar um þunglyndi barna.
Eitt af verkum Þórðar Jörundssonar
um stráka og tilfinningaúrvinnslu.
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má lesa á
frettabladid.is.
5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
helgin
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
2
-7
B
7
8
1
F
B
2
-7
A
3
C
1
F
B
2
-7
9
0
0
1
F
B
2
-7
7
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K