Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 24

Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 24
F jölmargir útskriftarnem-endur Listaháskólans eru staddir á Kjarvals-stöðum við undirbún-ing útskriftarsýningar í arkitektúr, hönnun og myndlist. Sýningin verður opnuð í dag og er óhætt að segja að hún sé einstaklega glæsileg í ár. Birta Fróðadóttir og Dorothée Maria Kirch mættu blaðamanni og ljós- myndara og sýndu þeim brot af sýningunni. Leiðsögnin hefst í sýningarrými nemenda í vöruhönnun. „Þau unnu með ákveðið þema, mennsku,“ segir Birta. „Þau hafa öll verið að kljást við ýmsa hluti á lífsleiðinni og mörg þeirra nýta hana í vinnu sinni.“  Birta staðnæmist fyrir framan verk eins  nemandans,  Kristínar Þorsteinsdóttur. Ljósmynd af konu sem fór í brjóstnám og ákvað að flúra yfir örið. „Það þykir sjálfsagður hlutur að fara í brjóstauppbyggingu eftir brjóstnám. Þessi kona ákvað að fara aðra leið og láta örið verða hluta af sér. Hún verður líka með hljóðverk þar sem gestir sýningar- innar hlusta á sögur. Það er mikil rannsóknarvinna sem einkennir verk nemenda í vöruhönnun. Það er svolítið verkefnið þeirra, að fara í rannsóknarvinnu.“ Úr rammanum Hún bendir á verk á gólfinu, sundurslitinn fótbolta á fleti. Slitrur úr fótboltunum vísa í tilfinningar. „Þetta verk er til dæmis eftir Þórð Jörundsson, sem samhliða námi starfaði í félagsmiðstöð. Þar vann hann með strákum í því að tala um tilfinningar sínar.  Verkið er sym- bólískt – eftir því sem við vinnum meira úr tilfinningunum, því heilli verðum við.“ Verk útskriftarnema í fata- hönnun  í einu rýminu hafa á sér sterkan heildarbrag. „Nemendur unnu með það hvernig við förum úr rammanum okkar, kynjaramm- anum, samfélagsrammanum. Það er mikið um unisex flíkur og á tísku- sýningunni notuðu þau karla sem fyrirsætur. Kvenlíkaminn er ekki lengur endilega það sem hannað er utan um, heldur er líkaminn óháður kyni,“ segir Birta frá og gengur með blaðamanni og ljósmyndara inn í sýningarrými grafískrar hönnunar. „Hér er sú deild sem fer um hvað víðastan völl. Hér eru teiknaðar sögur, leturgerðir, litróf, einn nem- andi gerði rannsókn á því hvað það er að vera tvítyngdur á Íslandi. Og svo er það hann Andri, sem vann algjörlega út frá eigin reynslu,“ segir Birta. Andri Þór Ingvarsson situr á bekk fyrir framan skjá með grafískri hreyfimynd sem byggir á reynslu hans af mjög alvarlegum veikindum sem hann tókst á við fyrir nokkrum árum. „Ég fékk svokallað tannrótaræxli. Veiktist árið 2009 og fékk lækn- ingu 2014. Ég hef farið í um þrjátíu aðgerðir og í þeirri síðustu var æxlið tekið og augað með,“ segir Andri frá. „Ég vinn verkið út frá þeim litlu minningarbrotum sem ég á úr þessu ferli. Mér fannst ágætt að takast á við þessa reynslu með því að vinna verk um hana. Kafa ofan í þetta. Ég rifjaði þetta allt saman upp. Ég hélt dagbók á Facebook þegar ég var úti í aðgerðinni, en bæði geislameð- ferðin og svo aðgerðin seinna meir var framkvæmd þar,“ segir Andri Þór um verk sitt. „Þetta er mjög áhrifamikið verk,“ segir Birta. „Þetta er ákveðinn þráð- ur í hönnun núna. Fólk er að líta sér nær, vinna með lífsreynslu, áföll.“ Við útgang salarins eru þau Andrea Sif, Ellert Björn og Kristín, nemendur í arkitektúrdeild og leggja lokahönd á innsetningu um verkefni deildarinnar í ár, lista- mannaathvarf í Hveragerði. „Arki- tektúrdeildin fær alltaf ákveðið verkefni og í þetta sinn áttu þau að gera Hveragerði skil, hanna þar listamannaathvarf,“ segir Birta frá. Dorothée Kirch tekur við leið- sögninni, hún aðstoðar 24 nemend- ur við að setja upp sýningu í öðrum enda safnsins. Einn nemenda í þetta sinn útskrifast úr tónlistardeild. Dorothée er ánægð með sýningar- rýmið sem er skipt í þrjá sali. „Ég var strax spennt fyrir því. Hér er hægt að stilla saman verkum sem tala svolítið saman. Í einum salnum eru til dæmis saman nokkur verk sem mörg byggja á tækni og gagnvirkni,“ segir Dorothée og sýnir blaðamanni kostulegan tölvuleik, Dag hinna lif- andi hrúta. Hann er í anda níunda áratugarins og karakterarnir litríkir. Fyrir utan salina eru nokkur verk. Katrín Helga xdóttir, ein Reykja- víkurdætra, hefur útbúið karókí- horn í safninu. „Lögin eru allt frá 10 sekúndum upp í 3 mínútur. Þau verða til sýnis hér en hún mun svo halda karókítónleika á hverjum degi klukkan fjögur. Almar í baðkari Listneminn Almar Atlason sem hefur vakið athygli á Íslandi og víðar fyrir það uppátæki sitt að sitja nakinn í kassa í marga daga er einn útskriftar- nema. „Hann situr í þessu baðkari íklæddur barnanáttfötum,“ útskýrir Dorothée. Fyrir framan baðkarið er sjónvarp þar sem er heldur drunga- legt barnaefni á skjánum. „Vinur hans verður með honum í þessu og leikur sér að lest sem virkar ekki alveg. Er alltaf að bila. Verkið fjallar um þunglyndi barna. Börn eiga að vera svo glöð og kraftmikil en geta verið þunglynd eins og fullorðið fólk. Almar minnist vinar síns sem talaði um sjálfsvígshugsanir sjö ára gamall. Fullorðna fólkið hrósaði hins vegar þessum sama strák fyrir hvað hann væri flottur og sjálfum sér nógur. Alltaf að dunda sér. En honum leið greinilega bara mjög illa.“ kristjana@frettabladid.is Litrík dagskrá og óvæntir atburðir Útskriftarsýning nema í arkitektúr, hönnun og myndlist verður opnuð í dag á Kjarvals- stöðum. Birta og Dor othée Maria Kirch sýn- ingarstjórar gáfu forsmekk að sýningunni. Birta og Dóra, sýningarstjórar útskriftarnemenda LHÍ á Kjarvalsstöðum. Andri Þór við verk sitt á Kjarvalsstöðum. FréttABLAðið/EyÞór Gestir geta spreytt sig á tölvuleikn- um Dagur hinna lifandi hrúta. Almar „í kassanum“ útskrifast. Verk hans fjallar um þunglyndi barna. Eitt af verkum Þórðar Jörundssonar um stráka og tilfinningaúrvinnslu. Sjá nánar á Fréttablaðið+ Lengri umfjöllun má lesa á frettabladid.is. 5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð helgin 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 2 -7 B 7 8 1 F B 2 -7 A 3 C 1 F B 2 -7 9 0 0 1 F B 2 -7 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.