Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 68

Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 68
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is MATSVEINN – MATARTÆKNIR HEILSA OG MATUR Ertu að vinna í mötuneyti? Viltu auka möguleika þína í starfi? Þá er þetta nám fyrir þig: Matsveina-og matartæknanám er fyrir þá sem starfa eða vilja starfa við matreiðslu og stjórnun í eldhúsum leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaða og heilbrigðisstofnana. Námið er einnig heppilegt fyrir þá sem starfa á fiski- og flutningaskipum og í ferðaþjónustu. INNRITUN STENDUR YFIR Á MENNTAGATT.IS TIL 31. MAÍ. Menntaskólinn í Kópavogi Sími: 594 4000 Ragna Sigríður Bjarnadóttir fatahönnuður útskrifaðist með mastersgráðu í fata- hönnun frá hinum virta danska listaháskóla KADK á síðasta ári. Hún hefur verið búsett í Kaup- mannahöfn undanfarin ár og starfar nú hjá danska fatamerkinu Part Two sem aðstoðarhönnuður. Alþjóðlegi fatahönnunarbransinn er krefjandi en þrátt fyrir það er lífið ljúft í Kaupmannahöfn þar sem hún nýtur lífsins með kærasta sínum Þráni Halldórssyni og kett- inum Skeggja. Það sást snemma hvert hugur Rögnu stefndi enda segist hún hafa haft sterkar skoðanir á fötum eins lengi og hún man eftir sér, bæði eigin fötum og annarra. „Ég fékk mjög snemma áhuga á að búa til föt og gat t.d. staðið fyrir framan spegil tímunum saman að vefja sjali utan um mig á mismunandi hátt. Einnig fannst mér miklu skemmtilegra að búa til ný föt fyrir dúkkulísurnar mínar heldur en að klæða þær í þau sem fylgdu með þeim. Þessu fylgdi svo sterkur áhugi á sauma- og prjónaskap og þegar ég vissi að það væri hægt að læra fatahönnun og vinna við hana varð ekki aftur snúið.“ Stefndi alltaf út Áður en Ragna hélt til Kaup- mannahafnar útskrifaðist hún frá Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í fatahönnun. Hún segist alltaf hafa stefnt á frekara nám og að stækka sjóndeildarhringinn. „KADK er mjög virtur á alþjóð- legum vettvangi og því eru mikil tækifæri fólgin í því að útskrifast þaðan. Aðstaðan þar er á allt öðru plani en ég hafði kynnst áður, námið var mjög frjálslegt sem hentaði mér vel því ég veit hvað ég vil og er góð í að vinna sjálfstætt. Eftir útskrift vildi ég vinna hér í Danmörku sem hönnuður og læra meira um praktísku hliðina og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í alvörunni.“ Frá útskrift og þar til Ragna hóf störf hjá Part Two í lok febrúar leið tæpt ár sem hún líkir við langa rússíbanaferð. „Sú ferð byrjaði í rauninni viku fyrir lokayfir- ferðina mína en þá var ég stödd í Mílanó að taka þátt í alþjóðlegri Engir tveir dagar eru eins Fatahönnuðurinn Ragna Sigríður Bjarnadóttir hóf nýlega störf hjá danska fatamerkinu Part Two í Kaupmannahöfn. Eftir annasama vinnudaga nýtur hún lífsins í borginni með kærastanum. Ragna Sigríður við hönnun sína við opnun útskriftarsýningarinnar í júlí 2017. Jakki sem Ragna hannaði og saumaði fyrir Pura Utz meðan hún var í starfs- námi þar síðasta haust. Frá útskriftarsýningu Rögnu í KADK. fatahönnunarsamkeppni ásamt ungum hönnuðum alls staðar að úr heiminum. Bekkurinn minn stóð síðan fyrir eigin tískusýningu sem hluta af dönsku tískuvikunni í ágúst og í kjölfarið var mér boðið að sýna lokaverkefnið mitt þrisvar síðasta haust, einu sinni í London og tvisvar í Kaupmannahöfn.“ Samhliða þessu var Ragna að fínpússa útskriftarmöppuna sína, setja upp heimasíðu og sækja um störf. „Þótt fatabransinn sé stærri hér í Danmörku en heima er samt mjög erfitt að fá vinnu því að það eru svo margir um hituna auk þess sem störf eru almennt ekki aug- lýst.“ Seinna um haustið tók við starfsnám hjá Pura Utz og í upp- hafi þessa árs hjá Stine Goya þar sem hún hand- og tölvuteiknaði munstur sem koma á flíkur í sumar- og vorlínunni 2019. Góð samvinna Starfið hjá Part Two er mjög fjöl- breytt að hennar sögn og engir tveir dagar eins. „Part Two er ekki mjög stórt merki á danskan mæli- kvarða en samt er hönnunarteym- ið stærra en hjá nokkru fatamerki á Íslandi. Vörur okkar eru seldar út um alla Evrópu, m.a. á Íslandi, og einnig í Kanada en við framleiðum sex fatalínur á hverju ári.” Ragna er í teymi með fjórum öðrum hönnuðum og einum munsturhönnuði. „Sem aðstoðar- hönnuður er ég m.a. að tækni- teikna flíkur fyrir framleiðslu og setja upp útskýringaskjöl sem fylgja með hverjum stíl fyrir sig. Einnig sé ég um grafíska vinnu fyrir hvert söluferli, set upp svokallaða sölubók fyrir hverja línu þar sem allar upplýsingar um flíkurnar koma fram og set upp kynn- ingarpakka með innblæstrinum, svokallað „moodboard“, litakort og hvaða fókus við höfðum við hönnun línunnar.“ Hún segist mjög heppin að vera á vinnustað þar sem hún fái að vera með í flestum ákvörðunum. „Það er mikil samvinna og hug- myndum er kastað fram og til baka, t.d. hvaða flík eigi að vera með hvaða munstri, hvort ermi eigi að vera stutt eða síð eða hvaða liti við notum hverju sinni. Þannig verða engir tveir vinnudagar eins og ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi. Helsti munurinn á brans- anum heima og hér úti er sá að í Danmörku er hann stór hluti af atvinnulífinu og miklu meiri virð- ing borin fyrir þessum iðnaði en heima. Í Danmörku eru líka stærri fatamerki og mörg þeirra eru búin að vera til í langan tíma og um leið með stöðugan kúnnahóp.“ Þægilegt líf Lífið í Kaupmannahöfn er annars mjög ljúft. „Bara þessar auka 5-10 hitagráður og það að getað hjólað um allt gerir mjög mikið fyrir geð- heilsuna. Ég og kærastinn erum búin að vera mjög dugleg að nýta okkur það sem borgin hefur upp á að bjóða auk þess sem við erum líka dugleg að fara út fyrir borgina. Við eigum allra þjóða vini hérna úr skóla og vinnu og ég á minn íslenska hóp í kvennakórnum Dóttur sem ég syng og slúðra með einu sinni í viku. Þessi helgi fer annars í matarboð með vinum, prjónaskap úti á svölum í sólinni, kaffihúsahangs, flóamarkaði og mögulega bíóferð.“ Hönnun Rögnu má skoða á ragnabjarna.com. 12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . m A í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -A 7 E 8 1 F B 2 -A 6 A C 1 F B 2 -A 5 7 0 1 F B 2 -A 4 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.