Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 78
Mikil eftirvænt-ing ríkir vegna v æ n t a n l e g s b r ú ð k a u p s Harry Breta-prins og hinnar bandarísku Meghan Markle, sem haldið verður hinn 19. maí. Fyrir einhverjum áratugum hefði verið óhugsandi að  bandarísk fráskilin kona, dóttir blökkukonu, giftist inn í bresku konungsfjölskylduna.  Athygli hefur vakið að engum þjóðarleiðtogum, hvorki núverandi né fyrrverandi, er boðið í brúðkaup- ið. Sagt er að Harry hafi viljað bjóða Barack Obama en vel hefur farið á með þeim. Breska ríkisstjórnin er sögð hafa lagst gegn því þar sem túlka hefði mátt það boð sem verið væri að gefa Donald Trump langt nef. Um 600 manns er boðið til brúð- kaupsins og 2.600 óbreyttum borg- urum er boðið í móttöku á þessum hátíðisdegi. Hin 36 ára gamla verðandi brúður er stöðugt umfjöllunarefni fjölmiðla og prýðir forsíður blaða og tímarita. Einnig hafa komið út bækur um hana, sú sem mesta athygli vekur er Meghan: A Hollywood Princess, en höfundurinn er Andrew Morton, höfundur metsölubókarinnar Diana: Her True Story. Meghan mun reyndar hafa lesið þá bók, enda lítur hún að sögn á Díönu prinsessu sem fyrirmynd sína og dáist að mann- úðarstörfum hennar. Á sínum tíma horfði hún á jarðarför Díönu með vinkonum sínum og tárin streymdu niður kinnar þeirra. Æskuvinkona hennar segir að Meghan hafi ætíð viljað verða Díana númer tvö. Sundruð fjölskylda Foreldrar hennar, blökkukonan Doria Ragland förðunarmeistari og faðirinn, Tom Markle ljósamaður, kynntust við gerð sjónvarpsþáttanna General Hospital. Tom á tvö börn af fyrra hjónabandi, Samönthu og Thomas. Meghan er einkabarn for- eldra sinna og varð strax augasteinn föður síns. Foreldrarnir skildu þegar Meghan var tveggja ára gömul og enn mun kalt á milli þeirra. Sú úlfúð er sögð hafa sett mark sitt á Meg- han. Undanfarin ár hefur Meghan lítið sem ekkert talað við hálfsystur sína og hálfbróður sinn sá hún síðast árið 2011. Samantha hefur lýst Meghan sem ofur metnaðargjarni og sjálfhverfri konu. Thomas sagði nýlega að Meg- han væri engin Díana, hún væri ekki ekta. Hann sagði hana vera að sundra fjölskyldunni með því að bjóða ekki nánum ættingjum til brúðkaupsins. Hvorki Samantha né Thomas hafa fengið boðskort, en talið er víst að faðir og móðir Meg- han muni verða í hópi boðs- gesta. Samantha og Thomas vinna, hvort í sínu lagi, að bók um hálfsystur sína. Skrifaði Hillary Clinton Móðir Meghan er sögð afar sjálfstæð kona sem láti engan vaða yfir sig. Meghan er sögð líkjast henni að því leyti. Meg- han var einungis ellefu ára þegar hún sá ástæðu til að bregðast við fullyrðingu í auglýsingu um uppþvottalög en varan var aug- lýst með orðunum: Konur um alla Ameríku  eiga í baráttu  við fituga potta og pönnur. Hún lét sér ekki einungis nægja að skrifa stjórnarformanni fyrirtækisins bréf heldur skrifaði einnig til forsetafrú- arinnar Hillary Clinton og fór fram á að setningunni yrði breytt í: Fólk um alla Ameríku á í baráttu við fit- uga potta og pönnur. Auglýsingunni var breytt eins og Meghan hafði lagt til. Þetta framtak Meghan varð til þess að sjónvarpsstöðvar gerðu sér ferð í skóla hennar til að taka viðtöl við hana. Mörgum árum síðar þegar Meghan var orðin þekkt fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt- unum Suits kvartaði hún undan því við framleiðendur þáttanna að of mörg óþörf atriði snerust um að sýna hana hálfnakta. Þessu var sam- stundis breytt. Vill verða Díana númer 2 Meghan og Harry ljóma venjulega af hamingju þegar þau sjást saman. Þau ganga í hjónaband 19. maí. NordiCPHotoS/getty Meghan Markle verður senn hluti af bresku konungsfjölskyldunni. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Kastljósið er á Meghan Markle sem senn gengur að eiga Harry Bretaprins. Hún kemur úr sundr- aðri fjölskyldu og ólíklegt er að systk- inum hennar verði boðið í brúðkaupið. Sendi giftingarhringinn í pósti Meghan ákvað að leggja fyrir sig leiklist. Þar þurfti hún að sýna þrautseigju og vann fyrir sér í Los Angeles sem þjónustustúlka á veitingahúsi og hraðritari milli þess sem hún lék smáhlutverk í sjónvarpi og kvikmyndum. Hún kynntist framleiðandanum Trevor Engelson og var trúlofuð honum þegar hún fékk hlutverk í sjón- varpsþáttunum Suits sem teknir voru upp í Kanada. Þetta kostaði miklar fjarvistir við unnustann sem þau settu ekki fyrir sig og gengu í hjónaband eftir að hafa verið í sambandi í sjö ár. Vinsældir þátt- anna jukust jafn og þétt og Meghan var orðin fræg og eftirsótt. Í ævi- sögu Andrew Morton kemur fram að Meghan sé afar metnaðargjörn og að vinir hennar í áraraðir hafi tekið eftir breytingu á henni þegar hún var farin að njóta velgengni því hún hafði ekki lengur tíma til að hitta þá. Meghan sagði eitt sinn að hún gæti ekki ímyndað sér lífið án Trevors. Það breyttist fljótlega eftir að þau gengu í hjónaband. Hún er að eigin sögn haldin fullkomn- unaráráttu en hann er þekktur fyrir kæruleysi, er til dæmis með endemum óstundvís. Meghan ákvað að skilja við mann sinn eftir tveggja ára hjónaband og sagt er að hún hafi undirstrikað þá ákvörð- un sína með því að senda honum giftingarhring sinn og trúlofunar- hring í ábyrgðarpósti. Ákvörðun Meghan kom Trevor mjög á óvart og sagt er að hann líti svo á að hún hafi komið afar illa fram við hann. Þegar fjölmiðlar leita hann uppi til að fá hann til að ræða um Meghan er viðkvæði hans: „Ég hef ekkert um hana að segja.“ Trevor virðist samt eiga ýmislegt ósagt en hann er um þessar mundir að framleiða sjónvarpsþætti um mann sem á fyrrverandi eiginkonu sem giftist inn í bresku konungsfjölskylduna. Kýs hamingjuna Mottó Meghan er: „Ég kýs ham- ingjuna.“ Hún virðist sannarlega hafa fundið hamingjuna með Harry Bretaprinsi en sameiginlegur vinur kynnti þau í júlímánuði 2016. Það var ást við fyrstu sýn. Eftir nokkurra mánaða kynni bauð Harry Meghan í safaríferð til Afríku. Hún var fjórða vinkonan sem hann bauð til Afríku. Þau bjuggu síðan saman á heimili Harrys, Nottingham Cottage, sem er í grennd við Kensington og mun vera mun minna en hús hennar í Toronto. Á síðustu vikum hafa sérfræð- ingar í líkamstjáningu annars vegar rýnt í myndir sem sýna Meghan með Trevor meðan þau voru gift og hins vegar í myndir af Meghan og Harry. Myndirnar  segja gjör- ólíka sögu. Ekki er hægt að ráða af myndum af Meghan og Trevor að hún sé ástfangin af honum, hún er uppstillt með frosið bros, meðan myndirnar af henni og Harry sýna afslappaða konu sem ljómar af hamingju. Meghan og Kate, eiginkona Vilhjálms prins, eru sagðar ná vel saman. Meghan virkaði yfirleitt mjög uppstillt á mynd-um með eiginmanninum trevor engelson. 5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R38 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -6 7 B 8 1 F B 2 -6 6 7 C 1 F B 2 -6 5 4 0 1 F B 2 -6 4 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.