Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 84

Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 84
Met var slegið í forsölu miða í íslensku leik-húsi fyrr á árinu þegar Borgar-leikhúsið hóf sölu á sýninguna Rocky Horror Show. Það kom í sjálfu sér ekki á óvart. Verkið hefur notið vinsælda víða um lönd allt frá því að var fyrst sett á svið í Lundúnum árið 1973. Vinsældirnar þá voru þó ekki eins fyrirséðar, því upphaflega var búist við að þessi skringilegi og tilrauna- kenndi söngleikur yrði ekki á fjöl- Stórir strákar fá raflost Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um framhaldsmynd sem floppaði. meðal annars að hætta við sýningar í fjölda bandarískra stórborga vegna áhugaleysis. Richard O’Brien og kvikmyndamógúlarnir sleiktu sár sín, en rúmlega ári síðar fór boltinn skyndilega að rúlla. Í kjölfar óvæntra vinsælda hinnar skringilegu bíómyndar Pink Flam- ingos eftir John Waters á miðnætur- sýningum í nokkrum kvikmynda- húsum, var ákveðið að reyna slíkt hið sama með Rocky Horror Pict- ure Show. Nær samstundis braust út Rocky Horror-æði í New York. Myndin eignaðist ástríðufulla aðdá- endur sem sáu hana jafnvel mörg hundruð sinnum og kvikmynda- sýningarnar urðu að sjálfstæðum leikverkum, þar sem áhorfendur mættu í klæðnaði aðalsöguhetjanna og tóku að dansa og syngja í takt við framvindu myndarinnar. Frá New York breiddist æðið út um Banda- ríkin og víðar um lönd. Stofnaðir voru aðdáendaklúbbar og skipu- lagðar voru ráðstefnur Rocky Hor- ror-aðdáenda vítt og breitt. Innan fárra ára var The Rocky Horror Picture Show, þrátt fyrir floppið á frumsýningarárinu, komin í hóp þekktari kvikmynda. Það er gömul saga og ný í Holly- wood að velgengni mynda kveikir þegar áhuga fjárfesta á framhalds- myndum til að halda áfram að nytja mjólkurkúna. Þrýstingurinn á O’Brien að semja einhvers konar framhald með gömlu aðalpersónun- um var því talsverður. Næstu miss- erin braut hann heilann um hvernig endurvekja mætti Frank N. Furter (sem var drepinn með leysigeisla- byssu í myndinni – engin Hösk- uldarviðvörun) og láta þau Brad og Janet lenda í nýjum ævintýrum. O’Brien samdi raunar slíkt handrit og er rétturinn til að kvikmynda það enn í höndum 20th Century Fox, en litlar líkur eru þó taldar á að það verði að veruleika úr þessu. Handritið að þessari fyrirhuguðu framhaldsmynd hefur lekið út og er það mjög í anda gömlu myndarinnar, með fjarstæðukenndum söguþræði og áherslu á siðspilltar geimverur í eggjandi korselettum. Jim Sharman taldi hins vegar félaga sinn ofan af því að reyna að herma um of eftir gömlu myndinni og hvatti hann til að teygja söguna frekar í aðrar áttir. Niðurstaðan varð handritið „The Brad and Janet Show“, þar sem Frank N. Furter var fjarri góðu gamni, en athyglinni fremur beint að afdrifum þeirra Brads og Janetar eftir kynnin af geimverunum með brókar sóttina. Framleiðendur reyndust fúsir til sam- starfs og undirbúningsvinna hófst af kappi á árinu 1979. Úthverfalíf og auglýsingaskrum Grunnhugmynd O’Briens var að nýja myndin skyldi gerast í dæmi- gerðu bandarísku úthverfi, þar sem Brad og Janet hefðu búið sér heimili en þjáðust í ástlausu hjóna- bandi. Í stað nostalgískra vísana til lélegra bíómynda fimmta ára- tugarins, beindi höfundurinn nú spjótum sínum að lágkúrulegri sjónvarpsmenningu samtíma síns og geðveikrahælum. Íbúar smá- borgarinnar lifðu og hrærðust í sjón- varpsheimi, þar sem allt gekk út á að fylgjast með gerviveröld sápuópera og veruleikasjónvarpsþátta. Draumur þeirra O’Briens og Sharmans var að leiða saman sem allra flesta af leikurunum úr fyrri myndinni, jafnvel þótt flestir þeirra yrðu látnir túlka nýjar persónur. Þegar nær dró kvikmyndatökum gengu þó sífellt fleiri úr skaftinu. Susan Sarandon, sem leikið hafði Janet, var orðin stórstjarna í Holly- wood og gerði hærri launakröfur en framleiðendurnir gátu staðið undir. Eins þurfti að finna nýjan leikara í hlutverk Brads, þar sem Barry Bost- wick hafði öðrum hnöppum að hneppa. Tim Curry hafði tekið vel í að leika í nýju myndinni, en að lokum náðust samningar ekki og sama gilti um nokkra aðra úr gamla hópnum. Allt kallaði þetta á sífelld- ar endurskriftir á handritinu, sem gerðu það flóknara og ruglingslegra. Það var þó leikaraverkfall árið 1980 sem mestu breytti fyrir lokaút- komuna. Verkfallið setti alla kvik- myndaframleiðslu í Bandaríkjunum í uppnám og var því ákveðið að taka myndina upp í Englandi. Þar var hvergi að finna tökustaði sem líkst gætu bandarískum úthverfum. Því varð úr að láta myndina alla gerast í kvikmyndaveri, þar sem íbúarnir væru gestir í sjónvarpssal í enda- lausri beinni útsendingu. Brad og Janet eru kölluð fram fyrir mynda- vélina í spurningaleik og í kjölfarið stíað í sundur. Brad er sendur á geð- veikrahæli, þar sem sprautu glaðir læknar ráða ríkjum, en Janet er dubbuð upp sem sjónvarpsstjarna sem sér að lokum í gegnum allan tryllinginn og blekkingarnar. Spámaður án föðurlands Myndin sem að lokum kom út úr þessu langa ferli umskrifta og aðlagana hlaut nafnið „Shock Treatment“ eða „Raflostið“ – sem er kyndugt í ljósi þess að þótt í henni sé talsvert vikið að geðsjúkrahúsum, koma raflostsmeðferðir ekkert við sögu. Skemmst er frá því að segja að Shock Treatment varð enn meira flopp en fyrri myndin og kostaði framleiðendur sína stórfé. Gagnrýn- endur voru upp til hópa neikvæðir og aðalmarkhópurinn: Rocky Horror- aðdáendur tóku myndinni almennt illa. Tengingin við gömlu myndina var óljós, ekki hvað síst í ljósi breytinganna á leikaraliðinu og yfirbragðið gjörólíkt. Eftir á að hyggja hefðu þessi nei- kvæðu viðbrögð ekki þurft að koma á óvart. Á meðan fyrri myndin ein- kenndist af fortíðarþrá og endurliti, dró sú nýja upp martraðarkennda framtíðarmynd. Furðulegur bræð- ingur glysrokks áttunda áratugar- ins og klisja úr vísindaskáldsögum þess fimmta og sjötta var ekki jafn yfirþyrmandi og ágengt myndmál tónlistarmyndbanda níunda ára- tugarins. Velta má því fyrir sér hvort nei- kvæðni Rocky Horror-aðdáenda í garð nýju myndarinnar hafi tengst því hversu föstum skotum Richard O’Brien skaut á þennan sama hóp í verkinu. Heilaþvegnu áhorfend- urnir í sjónvarpssalnum í Shock Treatment hafa mörg einkenni Rocky Horror-unnenda, lifa sig inn í útsendinguna á sama hátt og tíðk- ast hafði á Rocky Horror-sýningum og klæðast eins. Ef til vill var þetta gaman örlítið of grátt fyrir hina dyggu aðdáendur? Aðrir benda á þá ranghugmynd sem felist í því að reyna að búa til framhaldsmynd sem miðist að unnendum jaðarmyndar af þessu tagi. Aðdáendur Rocky Horror Picture Show hafi einmitt laðast að myndinni þar sem hún hafi ekki fallið í kramið. Þannig hafi hver og einn getað uppgötvað hana á sínum eigin forsendum og þannig synt gegn straumnum. Útilokað sé því að búa til mynd sem gagngert miðist að þessum viðtökuhóp, sem vilji ekki láta hugsa fyrir sig. Á allra síðustu árum hefur Shock Treatment þó eignast nokkurn hóp unnenda. Skiptir þar máli að tón- listin í henni er prýðileg og af svip- uðum gæðum og í fyrri myndinni. Í annan stað má segja að sú spásögn um firrt sjónvarpssamfélag sem í henni birtist hafi ræst ótrúlega vel með veruleikasjónvarpsþáttum samtímans. Raflostið talar því betur til samtíma okkar en ársins 1981 þegar það var frumsýnt við litlar undirtektir. stöðu aðalleikarans, Tims Curry, í hlutverki hins gjörspillta og sturl- aða vísindamanns Franks N. Furter. Curry og O’Brien þekktust frá því að þeir unnu saman að uppsetningu á söngleiknum Hárinu nokkrum árum fyrr. Hlutverkið smellpass- aði fyrir hinn unga Curry og lagði grunninn að glæstum ferli hans sem stendur enn. Það lá því beint við að fá Tim Curry í aðalhlutverkið þegar ákveð- ið var að koma söngleiknum á hvíta tjaldið tveimur árum síðar. Banda- ríski kvikmyndarisinn 20th Century Fox tryggði sér kvikmyndaréttinn og sumarið 1975 var The Rocky Horror Picture Show frumsýnd vestan hafs og austan. Þrátt fyrir að framleiðandinn og stór hluti leikarahópsins væri bandarískur, var myndin tekin upp í Bretlandi þar sem notast var við gamlar bygg- ingar og leikmuni frá Hammer-kvik- myndafyrirtækinu, sem framleitt hafði margar af gömlu hryllings- myndunum sem Rocky Horror Show vísaði svo mjög til. Sígandi lukka Viðtökur kvikmyndahúsagesta ollu framleiðendunum sárum von- brigðum. Aðsókn var afar dræm og stefndi í stórtap á myndinni. Þurfti SiðSPilltar geimverur í eggjandi korSelettum. unum nema í fáeinar vikur. Það var ungur bresk/nýsjálenskur leikari, Richard O’Brien, sem skrif- aði verkið og samdi lögin í söng- leiknum, en við sviðsetninguna naut hann aðstoðar ástralsks leik- stjóra, Jims Sharman. Söguþráður- inn er hálfgert rugl, enda hugsaði O’Brien mest um að hræra saman sínum ólíku áhugamálum, sem snerust að miklu leyti um ódýrar gamlar bíómyndir, sem helst fjöll- uðu um vísindaskáldskap og sígilda bandaríska rokk og ról-tónlist. Raunar hafði listamaðurinn nánast þráhyggjukenndan áhuga á hvers kyns amerískri dægurmenningu. Rocky Horror Show var óður til gömlu geimmyndanna, en í verk- inu er líka teflt saman klisjum um bandarískt millistéttar-úthverfalíf sjötta áratugarins og kynlífsbyltingu og glysrokk þess áttunda. Siðprúðu turtildúfurnar Brad og Janet, hold- tekjur ameríska draumsins, lenda í skuggalegum ævintýrum hjá kynóð- um geimverum í gotneskum kastala og ganga á vald holdlegum fýsnum sínum. Saman við skringilegan og örlítið dökkan söguþráðinn var svo blandað glaðværri og kröftugri dægurtónlist. Velgengni verksins í Lundúnum var ekki hvað síst að þakka frammi- 5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R44 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -6 2 C 8 1 F B 2 -6 1 8 C 1 F B 2 -6 0 5 0 1 F B 2 -5 F 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.