Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 2
Veður Sunnan- og síðar suðaustan 5-13 með rigningu og súld í dag, einkum síðdegis. Á Norður- og Austurlandi verður lítil eða engin úrkoma. Hiti 4 til 10 stig að deginum, mildast norð- austantil. SJÁ SÍÐU 16 Mikið úrval af trjáklippum og greinaklippum. Einnig fyrirliggjandi trjákurlarar - hentugir í garðinn og í sumarbústaðinnn. Útrýmdu mosa úr grasinu með mosatætara. Mosatætarar Mosatætari með rafmótor Mosatætari með bensínmótor ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Hátíð í bæ Breki VE 61, nýr togari sem smíðaður var í Kína fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum, kom til heimahafnar í gær eftir 46 daga siglingu. „Þetta hefur gengið vonum fram allt saman og skipið stóðst allar væntingar, mér líst gríðarlega vel á það,“ segir Magnús Ríkharðsson skipstjóri sem stýrði skipinu heim þær 11.500 sjómílur sem leggja þurfti að baki. Áætlað er að Breki verði fullbúinn til veiða upp úr miðjum júní. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON DÓMSMÁL Hvorki höfundaréttar- samtök tónskálda í Noregi né í Sví- þjóð hafa ákvarðað að lagið You Raise Me Up sé ekki eftirlíking af laginu Söknuði eftir Jóhann Helga- son líkt og höfundur fyrrnefnda lagsins og útgefandi hans hafa full- yrt. Í viðtali við Verdens Gang í apríl var haft eftir Rolf Lövland, höf- undi lagsins You Raise Me Up, að álitamálið um það hvort það sé eftirlíking af Söknuði hafi verið til lykta leitt með niðurstöðu sænsku höfundaréttarsamtakanna STIM á árinu 2004. Haft var eftir Martin Ingeström, forstjóra Universal í Stokkhólmi, í Fréttablaðinu 6. apríl, að málið hefði þegar verið „skoðað af mats- nefndum nokkurra samtaka“ með þeirri niðurstöðu að ekki væri um stuld að ræða. Universal er útgef- andi Rolfs Lövland. Ingeström segist þar eiga við STIM og norsku höfundaréttarsamtökin TONO. Hvorki TONO né STIM hafa hins vegar það hlutverk að skera úr um álitaefni af þessu tagi. „Skoðun nefndarinnar er ekki bindandi ákvörðun heldur einfaldlega sér- fræðiálit til leiðbeiningar,“ segir á heimasíðu STIM um hlutverk mats- nefndar samtakanna. Á heimasíðu TONO segir að sam- tökin hafi „ekki vald til að skera úr um ágreining tveggja aðila í málum sem varða til dæmis lagastuld og slíkar höfundaréttardeilur“. Það sem Lövland og útgefandi hans vísa til er leiðbeinandi álit sem unnið var á ráðstefnu nor- rænna höfundaréttarsamtaka í Osló í júní 2004 og er merkt mats- nefnd hinu norska TONO. Þar segir að nefndarmenn hafi borið saman lögin Söknuð, You Raise Me Up og „ömmu þeirra beggja“; írska þjóð- lagið Danny Boy. „Það var einhuga stuðningur við það sjónarmið að fyrir tónlist af þessu tagi verði líkindin að vera nákvæmari og vara mun lengur til að réttlæta kröfu um brot á höfunda rétti,“ segir í lokaorðum álitsins. Málið var aftur rætt á ráðstefnu höfundaréttasamtakanna í Helsinki á árinu 2005 með sömu niðurstöðu. „Það finnst sem sagt varla ástæða til að gruna lagastuld,“ var ályktun fundarins í Helsinki. Þar voru tekin fyrir fjögur meint lagastuldarmál. Tvö þeirra vörðuðu Rolf Lövland. Hvorugt laganna var talið vera stolið. Nefndin klofnaði þó varð- andi lagið Adagio eftir Lövland sem haldið var fram að væri lagið Les feuilles mortes – eða Autum Leaves – eftir Joseph Kosma. Eins og komið hefur fram telja tveir íslenskir sérfræðingar sem báru saman Söknuð og You Raise Me Up fyrir STEF í apríl 2004 að lögin séu sláandi lík. Annar þeirra, Ríkharður Örn Pálsson, sat reyndar síðar fundinn í Helsinki fyrir hönd STEFs. gar@frettabladid.is Ekki lokaákvörðun um Söknuð í Skandinavíu Fullyrðing norska lagahöfundarins Rolfs Lövland um að höfundaréttarsamtök í Skandinavíu hafi endanlega skorið úr um að lag hans You Raise Me Up sé ekki stuldur á laginu Söknuði virðist byggð á misskilningi um hlutverk samtakanna. Jóhann Helgason og Jóhann, sonur Vilhjálms Vilhjálmssonar sem samdi texta við Söknuð. Jóhann boðar málaferli vegna stuldar á laginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Það finnst sem sagt varla ástæða til að gruna lagastuld. Norrænu höfundaréttarsamtökin REYKJAVÍK Öll sextán framboðin sem skiluðu inn listum fyrir kom- andi borgarstjórnarkosningar voru úrskurðuð gild af yfirkjörstjórn í gær. Vera eins frambjóðanda á lista Íslensku þjóðfylkingarinnar var metin ógild þar sem hann er með lögheimili í Svíþjóð og því ekki kjörgengur. Var hann því tekinn af listanum. Tekið var á móti framboðum á föstudag og laugardag. Ellefu skil- uðu inn listum fyrri daginn en fimm þann seinni. Það er því viðbúið að kjörseðillinn verði stærri en fólk hefur vanist hingað til. Flokkarnir sem verða í fram- boði eru, raðað eftir listabókstaf, Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Íslenska þjóðfylkingin, Flokkur fólksins, Höfuðborgarlistinn, Sósíalista- flokkur Íslands, Kvennahreyfingin, Miðflokkurinn, Borgin okkar, Pírat- ar, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Karlalistinn og Frelsisflokkurinn. – jóe Sextán framboð gild í Reykjavík Frá fundi yfirkjörstjórnar með full- trúum framboða til borgarstjórnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 11 skiluðu inn listum fyrri daginn en fimm þann seinni. DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir ýmis þjófnaðarbrot. Maðurinn var meðal annars sak- felldur fyrir að stela veski af Borgar- bókasafninu og heyrnartólum, borvél og veski af veitingastað. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að brjótast inn í búningsklefa íþrótta- húss og stela þaðan greiðslukortum, hátalara, farsíma og dómara- og leikmannakorti. Undanfarið ár hefur maðurinn hlotið tvo dóma fyrir þjófnaði, fjár- svik og fíkniefna- og umferðarlaga- brot. Síðast í janúar hlaut hann tíu mánaða dóm, þar af sjö skilorðs- bundna, fyrir slík brot. Með brotum sínum nú rauf hann skilorð þess dóms. Refsingin nú er óskilorðsbundin en frá henni dregst gæsluvarðhald sem hann hefur setið í frá 18. mars. – jóe Níu mánuðir fyrir þjófnaði 7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 3 -0 3 4 0 1 F B 3 -0 2 0 4 1 F B 3 -0 0 C 8 1 F B 2 -F F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.