Fréttablaðið - 07.05.2018, Side 4
SAMGÖNGUR Samgöngustofu bárust
jafn margar kvartanir vegna seink-
unar á flugferðum á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2018 og bárust allt
árið 2016.
Kvörtunum hafði fjölgað jafnt
og þétt samhliða auknum straumi
um Keflavíkurflugvöll en sprenging
varð á síðasta ári.
Komi til tafa eða aflýsingar á flug-
ferð eiga farþegar margvíslegan rétt
á grundvelli Evrópureglugerðar um
efnið. Bæði getur þar verið um að
ræða hressingu og gistingu ef þörf
er á. Sé flugi aflýst eða seinkun varir
lengur en þrjár klukkustundir eiga
farþegar rétt á stöðluðum skaða-
bótum sem eru misháar eftir lengd
flugsins. Bæturnar eru á bilinu 250
til 600 evrur.
Á fyrstu þremur mánuðum ársins
bárust Samgöngustofu 424 kvart-
anir vegna slíkra mála en það er
nákvæmlega sami fjöldi og allt árið
2016.
Í fyrra barst alls 1.121 kvörtun.
Stofnunin tekur málin til meðferðar
og kannar hvort réttur neytandans
sé til staðar eður ei.
„Þessi aukning kemur okkur ekki
í opna skjöldu og er í raun eðlileg
afleiðing af fjölgun flugferða,“ segir
Þórhildur Elínardóttir, samskipta-
stjóri Samgöngustofu. „Afgreiðslu-
tími mála hjá okkur hefur lengst og
við höfum brugðist við því með því
að fjölga starfsfólki.“
Meðal annars hafi þjónustu-
svið tekið til við að svara fyrir-
spurnum sem ekki lúta að eigin-
legri afgreiðslu málanna. Það hafi
minnkað álagið mikið.
„Við höfum einnig lagt áherslu
á samstarf við flugfélögin enda er
mikilvægt að þau svari sjálf sínum
viðskiptavinum fljótt og vel til að
færri mál endi í kvörtun eða ákvörð-
un. Eðlilegasta afgreiðslan er ef við-
skiptavinir og flugrekendur geta
komist að niðurstöðu án aðkomu
Samgöngustofu,“ segir Þórhildur.
– jóe
Þessi aukning
kemur okkur ekki í
opna skjöldu og er í raun
eðlileg afleiðing af fjölgun
flugferða.
Þórhildur
Elínardóttir,
samskiptastjóri
Samgöngustofu
FO
SS
BE
RG
til
bo
ðs
bl
að
fy
lg
ir
Fr
ét
ta
bl
að
in
u
í d
ag
Bútsög KGSV 72: XAGT SYM
Vörunr. ME612216000
Verð: 108.604 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°
305/215 mm
• Mesta skurðard. 90/45°
72/42 mm
• Mótor: 1.800 W
• Þyngd: 18,3 kg
Fossberg ehf. • Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 5757 600 • fossberg@fossberg.is • www.fossberg.is
FOSSBERG
I Ð N A Ð A R V Ö R U R O G V E R K F Æ R I
Maí-júní 2018
Slípirokkur WE 15-125
Vörunr. ME600448000
Verð: 19.995 kr.
• 11.000 sn/mín
• Mótor: 1.550 W
• Tog: 3,5 Nm
• 125 mm skífa
• M14 festiró
• Þyngd: 2,5 kg
Skurðarskífur 125x1,0 mm
Vörunr. FLA66252845036
• Vandaðar skurðarskífur fyrir stál og ryðfrítt
25 stk: 210 kr./stk.
100 stk: 185 kr./stk.
500 stk: 160 kr./stk.Einnig hraðastýrður
2.800-11.000 sn/mín
á sama verði
Skerðu eins og meistari
með HM skífunni frá Flexo
vit
Steinfræs MFE 40
Vörurnr. ME604040500
Verð: 99.995 kr.
• Stillanlegt skurðardýpt: 10-40 mm
• Skurðarbreidd: 9/15,5/22/28,5/35 mm
• Skífustærð Ø: 125 mm
• Mótor: 1.900 W
• Þyngd: 4,6 kg (án snúru)
Afhent í tösku með meitli, tveim 125 mm
demantsskífum, milliskífum, lykli og festiró
Bútsög KS 216 M Lasercut
Vörunr. ME619216000
Verð: 19.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°- 120/80 mm
• Mesta skurðard. 90/45°- 80/45 mm
• Mótor: 1.350 W
• Þyngd: 9,4 kg
Bútsög KGS 216 M
Vörunr. ME619260000
Verð: 35.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°- 305/205 mm
• Mesta skurðard. 90/45°- 65/36 mm
• Mótor: 1.500 W
• Þyngd: 13,5 kg
Rafhlöðu-Bútsög KGS 216
Vörunr. ME619001650
Verð: 99.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90°/45°- 305/205 mm
• Mesta skurðard. 90°/45°- 65/36 mm
• Rafhlaða: 2x 18V/5,2Ah Li-Ion
• Þyngd: 13,6 kg með rafhlöðu
Bútsög KGS 254 M
Vörunr. ME602540000
Verð: 49.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°- 305/205 mm
• Mesta skurðard. 90/45°- 92/47 mm
• Mótor: 1.800 W
• Þyngd: 16,3 kg
Bútsög KGS 305 M
Vörunr. ME619305000
Verð: 89.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°- 305/205 mm
• Mesta skurðard. 90/45°- 105/67 mm
• Mótor: 1.600 W
• Þyngd: 19,6 kg
Bútsög KGS 315 Plus
Vörunr. ME0103150000
Verð: 129.995 kr.
• Mesta skurðarbr. 90/45°- 320/223 mm
• Mesta skurðard. 90/45°- 120/76 mm
• Mótor: 2.200 W
• Þyngd: 26 kg
Standur KSU 401
Vörunr. ME629006000
Verð: 35.995 kr.
• Lengd: 168-400 cm
• Hæð: 92-99 cm
• Hámarks hleðsluþyngd: 250 kg
• Þyngd: 25 kg
Standur KSU 251
Vörurnr. ME629005000
Verð: 32.995 kr.
• Lengd: 127-250 cm
• Hæð: 92-99 cm
• Hámarks hleðsluþyngd: 250 kg
• Þyngd: 23 kg
Brunndæla PS7500
Vörurnr. ME690864000
Verð: 22.995 kr.
• Úr höggþolnu plasti
• Með flotrofa
• Dælir 30 mm ögnum
• Hámarks afköst: 7.500 l/klst.
• Dælir allt að 5 m
• Þyngd: 4,8 kg
7 metra slanga fylgir með
Tvöfaldar og þrefaldar skíf
ur
hreinsa alveg uppúr raufin
ni,
þarf ekkert að brjóta eða h
reinsa
Fullkomin í pallasmíðina
Bæði lönd færast um
sömu gráðu, symmetrískt
Léttir, meðfærilegir og ster
kbyggðir standar fyrir bútsa
gir
Einfaldir og fljótlegir í upps
etningu
Skífur væntanlegar í lok maí
Jafn margar kvartanir vegna flugfélaga í byrjun árs og allt árið 2016
AFGANISTAN Minnst fjórtán fórust
og tugir særðust í sprengjuárás á
mosku í austurhluta Afganistan í
gær. Verið var að nota moskuna
fyrir bænahald og skráningu fólks á
kjörskrá þegar árásin var gerð.
Árásin átti sér stað í Yaqoubi-
moskunni í borginni Khost í austur-
hluta landsins. Fórnarlömbin voru
flest almennir borgarar á leið til
bæna eða komnir til að skrá sig fyrir
þingkosningarnar sem fara fram í
október.
Árásir á almenna borgara í land-
inu hafa aukist undanfarnar vikur
en um miðjan apríl hófst undirbún-
ingur fyrir kosningarnar. Talið er
að markmiðið með þeim sé að fæla
fólk frá því að kjósa í kosningunum.
Aðeins um ein milljón manna hefur
skráð sig á kjörskrá en stefnt hafði
verið að því að fimmtán milljónir
myndu gera það áður en júní rennur
sitt skeið.
Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir
árásinni en Talíbanar hafa neitað að
hafa verið þarna að verki. – jóe
Árásirnar
beinast gegn
kjósendum
LÍBANON Líbanir kusu sér nýtt þjóð-
þing í gær en kosningarnar voru þær
fyrstu í landinu í nærri áratug. Met-
fjölda kvenkyns frambjóðenda var
að finna á kjörseðlinum.
128 sæti eru á líbanska þinginu
en þeim er skipt jafnt milli þeirra
sem eru múslimar eða kristnir.
Frambjóðendur voru 583 en þar af
voru 86 konur og hafa þær aldrei
verið fleiri. Hver kjósandi hefur tvö
atkvæði, eitt til að veita lista að eigin
vali og annað til handa sérstökum
frambjóðanda. 3,8 milljónir voru
á kjörskrá en þar af voru um 800
þúsund fyrstu kjósendur. Um helm-
ingur kjósenda mætti á kjörstað.
Þingkosningar fóru síðast fram í
Líbanon árið 2009 en mikið hefur
gengið á frá þeim tíma. Þegar stríð-
ið í nágrannaríkinu Sýrlandi hófst
framlengdi þingið kjörtímabilið um
fram þau fjögur ár sem lög kveða á
um.
Það tímabil gekk ekki áfallalaust
fyrir sig en óánægja íbúa var umtals-
verð. Hún náði hámarki árið 2015
með „sorpkrísunni“ svokölluðu en
þá mistókst stjórnvöldum að tryggja
sorphirðu í höfuðborginni Beirút.
Þá var landið án forseta í tvö ár á
þessu tímabili.
„Það er ekkert vatn, ekkert raf-
magn, ekkert almannatrygginga-
kerfi, engin heilsugæsla og engin
lífeyrissjóðsréttindi. Mun eitthvað
af því breytast ef ég kýs? Nei,“ sagði
óánægður bóksali við Al-Jazera.
Niðurstöður kosninganna munu
liggja fyrir í dag. – jóe
Kosið í fyrsta sinn í nærri áratug
Talningamenn að störfum. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAÞJÓNUSTA Með frumvarpi
ferðamálaherra um Ferðamálastofu
er gríðarlegur aðstöðumunur milli
íslenskra og erlendra fyrirtækja í
ferðaþjónustu hérlendis festur í sessi
og áréttaður að mati ASÍ.
„Frumvarpið gerir ráð fyrir að
ferðaþjónusta hér á landi verði leyf-
isskyld en eingöngu gagnvart fyrir-
tækjum sem skráð eru hér á landi.
Samkeppnisstaða erlendra fyrir-
tækja er allt önnur og miklu betri en
íslenskra fyrirtækja,“ segir Halldór
Grönvold, aðstoðarframkvæmda-
stjóri ASÍ.
Forsvarsmenn íslenskra ferða-
þjónustufyrirtækja segja augljós
tengsl milli samdráttar í bókunum
hjá íslenskum fyrirtækjum og starf-
semi erlendra fyrirtækja sem í mörg-
um tilvikum greiði hvorki skatta né
gjöld hér á landi, stundi undirboð á
vinnumarkaði og hafi hvorki leyfi né
réttindi.
Halldór segir þessa starfsemi
skapa augljósan aðstöðumun gagn-
vart íslenskum fyrirtækjum sem
greiði laun samkvæmt samningum,
og skatta og gjöld.
Halldór bendir á annað frumvarp
sem bíði afgreiðslu þingsins um
breytingu á lögum um réttindi og
skyldur erlendra fyrirtækja.
„Í því frumvarpi er lagt til að starfs-
menn þessara fyrirtækja verði skil-
greindir sem verandi á íslenskum
vinnumarkaði, sem skiptir miklu
máli því þá getum við sagt að þeir
eigi, frá fyrsta degi, að njóta sömu
starfskjara og hér gilda,“ segir Hall-
dór. Eftir sem áður muni þó verða
erfitt að fylgja rétti þeirra eftir á
meðan vinnuveitendur þeirra eru
hvorki skráðir né leyfisskyldir.
Í samtölum Fréttablaðsins við fólk
í ferðaþjónustu er fyrirtækið Back-
roads ítrekað nefnt, en um er að ræða
stórt bandarískt fyrirtæki sem hefur
selt ferðir til Íslands um nokkurra ára
skeið og hefur tugi erlendra leiðsögu-
manna hér yfir sumartímann, flytur
sína eigin bíla og bílstjóra til lands-
ins, án þess að hafa tilskilin leyfi sem
krafist er til hópferðaflutninga.
„Fyrirtækið Backroads rak á fjörur
okkar eftir að bandarísk stúlka, sem
er búsett hér á landi, fór á fund sem
þeir boðuðu til og var auglýstur í
Grapevine. Á fundinum fékk hún
minnisblað með launakjörum upp
á 65 evrur fyrir dagsferðir og 540
evrur fyrir 6 daga ferðir, án yfirvinnu
en með góðri von um þjórfé,“ segir
Halldór. 65 evrur eru 7.900 krónur.
Fyrirtækið er meðal nokkurra
erlendra fyrirtækja sem nefnd eru í
minnisblaði sem fylgir umsögn ASÍ
til Alþingis um fyrrnefnt frumvarp
um Ferðamálastofu. Þau eiga það
sammerkt að vera hvorki skráð hér
á landi né starfsmenn þeirra sem
gjarnan eru ungir háskólanemar í
ævintýraleit og fá einhverjar greiðsl-
ur en alls ekki í samræmi við íslenska
kjarasamninga og þurfa að miklu
leyti að reiða sig á þjórfé.
Önnur fyrirtæki í minnisblaði
ASÍ eru franska fyrirtækið Iceland
66 nord sem Halldór segir nánast
hafa þurrkað upp frönskumælandi
hópferðamarkaðinn hér, svissneska
fyrirtækið Geko Expeditions sem
sérhæfir sig í „self-drive“ utanvega-
akstri í Vatnajökulsþjóðgarði, en á
vef fyrirtækisins má sjá myndband
sem sýnir akstur á ómerktum slóð-
um, og að lokum spænska fyrirtækið
Tierras Polares sem ræður sína starfs-
menn, unga háskólanema, í gegnum
Vinnumálastofnun spænska ríkisins.
„Það er ekki nóg með að leiðsögu-
menn þeirra séu á skítakaupi, heldur
fær fyrirtækið launin niðurgreidd
af spænska ríkinu,“ segir Halldór.
Hann segir ASÍ alls ekki vilja leggja
til að erlendum fyrirtækjum verði
bannað að veita þjónustu hér á landi
en þau verði hins vegar að vera jafn-
sett íslenskum fyrirtækjum.
adalheidur@frettabladid.is
Bjóða 7.900 krónur í laun á dag
Bandaríska ferðaþjónustufyrirtækið Backroads býður starfsfólki hér á landi 7.900 krónur í laun fyrir að
fara í dagsferðir. Backroads er eitt nokkurra erlendra fyrirtækja sem ASÍ nefnir í minnisblaði til Alþingis.
Það er ekki nóg með
að leiðsögumenn
þeirra séu á skítakaupi,
heldur fær fyrirtækið launin
niðurgreidd af spænska
ríkinu.
Halldór Grönvold,
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ
Háskólanemar í ævintýraleit eru skotmörk ferðaþjónustufyrirtækja sem borga laun undir taxta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNSÝSLA Úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála (ÚUA)
hefur hafnað kröfu Laugarvatns
Fontana um starfsleyfi fyrir nátt-
úrulaug. Með því er niðurstaða Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands staðfest.
Synjað er vegna þess að laugin er
manngerð. Forsvarsmenn Fontana
töldu að þótt laugarstæðið væri
manngert þá rynni náttúruvatn
óhindrað og án allra viðbættra efna
í laugina.
Þar sem laugin flokkaðist ekki
sem náttúrulaug var fyrirtækinu
gert að koma fyrir í henni búnaði til
að sótthreinsa vatnið í samræmi við
reglur um hollustuhætti. – jóe
Manngerð laug
ekki náttúruleg
7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
3
-1
7
0
0
1
F
B
3
-1
5
C
4
1
F
B
3
-1
4
8
8
1
F
B
3
-1
3
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K