Fréttablaðið - 07.05.2018, Síða 8

Fréttablaðið - 07.05.2018, Síða 8
Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Kjósendur telja það réttilega vera algjöra tímaskekkju að vekja upp vofu Karls Marx, enda vitað að hún hefur ekki skapað mikla gæfu þar sem hún hefur reikað um. Í umhverfis- málum er aftur á móti gerð mikil krafa um framsýni, enda hafa ákvarðanir sem við tökum í dag mikil áhrif á framtíðina. Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Finndu okkur á facebook Gæði og g læsileiki e ndalaust ú rval af há gæða flísu m 30 ára 2018 Þetta reddast“ er frasi sem við Íslendingar eigum í skrýtnu sambandi við. Stundum erum við mjög ánægð með þá heimspekilegu hugsun sem kemur fram í frasanum. Vísum til þess að við séum bjartsýn og ráðumst í verkefni í stað þess að mikla þau um of fyrir okkur. Að hlutir hafi tilhneigingu til að reddast gæti líka verið afsprengi þeirrar hugsunar að við búum í mikilli nálægð við oft á tíðum óblíð náttúruöfl en mætum þeim galvösk þegar á reynir. Á hinn bóginn heyrist stundum að „þetta redd- ast“ lýsi því hugarfari að við sjáum minni hvata en ella í að undirbúa það sem þarf að undirbúa. Séum jafnvel ekki best í heimi að gera langtímaáætlanir og sjáum e.t.v. takmarkaða ástæðu til að fara eftir slíkum áætlunum. Í umhverfismálum er aftur á móti gerð mikil krafa um framsýni, enda hafa ákvarðanir sem við tökum í dag mikil áhrif á framtíðina. Gott dæmi úr fortíð okkar er hitaveituvæðing landsins sem hefur skilað þjóðarbúinu miklum sparnaði, lífsgæðum og þeirri staðreynd að við erum á toppi lista þjóða í heiminum sem nýta endurnýjanlega orku. Þannig hafa margar ákvarðanir dagsins í dag áhrif til lengri tíma, ýmist til góðs eða ills. Það krefst langtímaáætlunargerðar að berjast gegn skaðlegum loftslagsbreytingum, þar duga engar reddingar. Nú liggur fyrir að við munum ekki ná að standa við Kýótó II skuldbindingar okkar. Við þurfum að endurskoða eigin neyslu og þannig getum við dregið nægilega úr losun til að ná markmiðum. Til langframa felast lausnir á loftslagsvandanum því ekki í óbreyttri hegðun eða einungis stórtækum bindingaraðgerðum í skógrækt eða votlendi. Aukin binding er vissulega liður í því að stefna að kolefnis- hlutleysi en meginskuldbinding Íslendinga felst í því að draga úr neyslu og draga úr losun. Til að draga úr neyslunni og breyta henni þurfum við að breyta hugsun okkar. Ekkert reddast – af sjálfu sér. Þetta reddast – en ekki af sjálfu sér! Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Um- hverfisstofnunar Niðurstöður skoðanakannana fyrir kosningar jafngilda sannarlega ekki úrslitum en gefa samt iðulega góða mynd af stemningunni í þjóðfélaginu. Nýlegar skoðanakannanir um fylgi flokka í borginni sýna að kjósendur eru upp til hópa ekki sérlega nýjungagjarnir. Þeir hafa úr nógu að velja en halla sér flestir annaðhvort að Sam- fylkingunni eða Sjálfstæðisflokki. Hin nýju framboð sem spruttu skyndilega upp eins og gorkúlur eru ekki að sanka að sér fjöldafylgi, enda verður ekki séð að frambjóðendur þeirra hafi mikið fram að færa annað en upphrópanir og innihaldslausa frasa. Það er enginn byltingarandi í kjósendum en bylt- ingartal má samt vissulega greina í kosningabaráttunni. Það einskorðast við forsvarsmenn tveggja flokka sem enginn eftirspurn er eftir, það er að segja Alþýðufylk- ingarinnar og Sósíalistaflokksins. Í nýjustu skoðana- könnun Gallups mælist fylgi Sósíalistaflokksins um tvö prósent og fylgi Alþýðufylkingarinnar svo lítið að það mælist vart. Ekki er þetta árangur sem hægt er að státa sig af. Furðulegt er síðan af hverju þessir flokkar, sem unna sósíalismanum svo heitt og eiga því málefna- samstöðu, hafi ekki sameinast fyrir borgarstjórnar- kosningar. Ef einhver munur er á þessum flokkum, annar en sá að þeir heita ólíkum nöfnum, þá verður það væntanlega útskýrt fyrir þeim fáu áhugasömu í sjón- varpsumræðum seinna í þessum mánuði. Hið æpandi áhugaleysi kjósenda á sósíalískri byltingu kemur engan veginn á óvart. Kjósendur telja það réttilega vera algjöra tímaskekkju að vekja upp vofu Karls Marx, enda vitað að hún hefur ekki skapað mikla gæfu þar sem hún hefur reikað um. Á sama tíma og ljóst er að kjósendur hafa lítinn áhuga á flokkum þar sem farið er með gamla frasa um alþýðu í hlekkjum eru byltingarsinnar innan verkalýðsforystunnar í miklum ham. Ræða Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, á 1. maí hefur eflaust hljómað eins og sætasta músík í eyrum þeirra sem láta sig dreyma um byltingu og rauða fána. Formaðurinn boðaði aðgerðir sem ekki hafa sést hér á landi í áratugi. Af máli hans mátti ætla að ekkert yrði gefið eftir í baráttunni við atvinnurekendur (hina illu arðræningja) og ríkisstjórnina (bandalag sérhags- munaflokka). Einhver myndi kannski freistast til að túlka orð hans einungis sem dæmigert slagorðatal á baráttudegi verkalýðsins, sem ekki ætti að taka of bókstaflega. Formanninum virðist hins vegar vera full alvara. Hann vill skapa upplausn og ringulreið og vera bálreiður og viðskotaillur við samningaborðið. Kjósendur í landinu eru pollrólegir, kannski um of, því áhugi þeirra á komandi kosningum sýnist ekki sérlega mikill. Síst eru þeir á harðahlaupum í faðm flokkanna sem boða sósíalíska byltingu. Ekkert bendir heldur til að þeir líti á byltingarsinna innan verkalýðs- hreyfingarinnar sem fulltrúa sína. Í staðinn fyrir að reyna að hafa vit fyrir þjóðinni ættu byltingarsinnarnir að spyrja sig: Hvað vill þjóðin? En þeir spyrja ekki því þeir vita að þeim mun ekki líka svarið. Sjálfsagt lifa þeir í þeirri trú að sá tími komi að þjóðin ranki við sér og æpi á byltingu. Það mun ekki gerast. Öllum leyfist samt að láta sig dreyma. Byltingin Karlalistinn Hinn nýstofnaði Karlalisti kynnir framboð sitt og stefnu- mál fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í dag. Flokkurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, á móti hvers kyns femínísku blaðri og hyggst berjast fyrir foreldrajafnrétti. Nú þegar hefur flokkurinn opinberað merki sitt. Þar má sjá nokkra karla standa í röð. Inn á merkið hefur hins vegar slæðst ein kona, eða karl í háhæl- uðum skóm. Flokkurinn mun vafalaust nota línuna „okkur er ekki illa við konur, sjáðu, við erum með eina í merkinu okkar“ í kosningabaráttunni þegar gagnrýni heyrist. Brottfallið Eitt allra skemmtilegasta laga- frumvarp síðustu ára var lagt fram á Alþingi í vikunni. Þar leggur þingflokkur Pírata, auk tveggja annarra, til að 208 lög falli úr gildi. Lögin eiga það öll sammerkt að ákvæði þeirra hafa verið felld brott en númer þeirra er að finna í lagasafn- inu. Um hálfgerða vorhrein- gerningu er að ræða verði frumvarpið að lögum. Hægt er að skoða listann á þingvefnum en uppáhald höfundar eru lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að leyfa Sveinbirni Runólfssyni sf. innflutning á gröfupramma. joli@frettabladid.is 7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 7 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 3 -2 5 D 0 1 F B 3 -2 4 9 4 1 F B 3 -2 3 5 8 1 F B 3 -2 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.