Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 34
Alls á þetta kerfi að geta afgreitt 200 máltíðir á klukkustund, ef þörf krefur. Gestir geta fylgst með öllu ferlinu, en það eiga ekki að líða nema þrjár mínútur frá því að fólk pantar og þar til það fær matinn sinn. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Vélvæddur veitingastaður Maturinn er eldaður í litlum pottum sem eru hitaðir með segulkrafti. NORDICPHOTOS/GETTY Þegar maturinn er til hellir potturinn honum ofan í skál og svo leggur starfs- maður lokahönd á máltíðina. NORDICPHOTOS/GETTY Ertu í lEit að draumastarfinu? Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is Við bjóðum Valgeir velkominn til starfa hjá okkur. Valgeir Einarsson Mäntylä er kírópraktor og löggiltur sjúkraþjálfari. Á veitingastaðnum Spyce í Boston sjá vélmenni, en ekki manneskjur, um matseldina. Veitingastaðurinn er hugarfóstur fjögurra nemenda sem útskrifuð- ust frá háskólanum Michigan Insti- tute of Technology og hugmyndin á bak við hann er að bjóða upp á hollan og bragðgóðan mat á lágu verði, því stofnendurnir voru í vandræðum með að finna slíkan mat þegar þeir voru í háskólanámi. Stofnendurnir höfðu enga sér- staka þekkingu á matargerð og fengu því kokk sem hefur fengið Michelin-stjörnu til að aðstoða sig við að setja upp matseðilinn. Með því að hafa enga kokka í vinnu tókst þeim að lækka rekstrarkostnað og því geta þeir selt matinn á lægra verði. Ódýrt, fljótlegt og frumlegt Hver máltíð kostar sjö og hálfan dollara og í boði er alls kyns hollur, snöggsteiktur matur. Viðskiptavinir panta í gegnum snertiskjá og geta valið um grænmetisríka rétti sem draga innblástur frá stöðum eins og Indlandi, Marokkó, Taílandi og Suður-Ameríku. Kjúklingur, lax og egg eru í boði fyrir þá sem vilja meira prótein og svo er hægt að breyta réttunum eftir smekk, bæta við hráefni og taka það burt. Starfsmenn veitingastaðarins sinna afgreiðslu og sjá um að undir- búa hráefnið og þegar maturinn er tilbúinn leggja þeir lokahönd á máltíðina með því að skreyta hana og pakka henni. Á bak við afgreiðsluborðið eru sjö vélmenni sem setja viðeigandi hráefni í lítinn pott sem er hitaður með segulkrafti og elda matinn. Potturinn snýst eins og steypu- hrærivél til að tryggja að allur maturinn hitni jafnt. Þegar mál- tíðin er tilbúin hvolfir potturinn úr sér ofan í skál og svo sér kerfið um að þvo hann, svo hann sé tilbúinn fyrir næstu máltíð. Alls á þetta kerfi að geta afgreitt 200 máltíðir á klukkustund, ef þörf krefur. Gestir geta fylgst með öllu ferlinu, en það eiga ekki að líða nema þrjár mínútur frá því að fólk pantar og þar til það fær matinn sinn. Án vafa vekur þessi nýjung athygli margra forvitinna og hungraðra viðskiptavina, en Michael Farid, framkvæmdastjóri Spyce og einn af stofnendum staðarins, segir að það sem skipti mestu máli sé að bjóða upp á góða máltíð og vonar að það séu gæðin sem fái fólk til að koma aftur. Vélvæðing veitingageirans vofir yfir Farid segir að ætlunin hafi aldrei verið að útrýma störfum, heldur að gefa viðskiptavinum meira fyrir peninginn með því að hafa reksturinn eins skilvirkan og hægt er. Þar sem Spyce er ekki með marga í vinnu er líka hægt að borga hverjum starfsmanni betur. En þetta er enn eitt dæmið um vélar sem taka störf af mannfólki og það er ekki ólíklegt að fleiri veitingastaðir eigi eftir að nýta sér aukna sjálfvirkni til að lækka rekstrarkostnað á næstu árum. Spyce er heldur ekki eini veitinga- staðurinn sem er að gera svipaðar tilraunir. Störf sem snúast um að undirbúa mat eru talin sérlega viðkvæm fyrir aukinni sjálfvirkni, því í slíkum störfum fer mikill tími í fyrirsjáan- leg og endurtekin handtök sem vélar gætu tileinkað sér. Enn sem komið er heldur kostn- aður við sjálfvirknivæðinguna aftur af breytingum, því almennt eru þessi störf illa borguð og því er ódýrara að nota mannafla en vélar. En þetta gæti breyst hratt þegar nýjar vélar og vélmenni verða þróuð. Í bili stefnir Spyce þó að minnsta kosti ekki á að markaðs- setja tækni sína, heldur á að opna fleiri útibú ef þessi staður gengur vel. Á veitinga- staðnum Spyce í Boston sjá vél- menni um að elda. Spyce býður upp á hollan mat á góðu verði og sparar því rekstr- arkostnað með því að ráða enga kokka. Kerfið á að geta afgreitt 200 máltíðir á klukku- stund. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 0 7 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 3 -1 B F 0 1 F B 3 -1 A B 4 1 F B 3 -1 9 7 8 1 F B 3 -1 8 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.