Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 42
7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Vinsælir viðburðir
framundan
Miðakaup á www.midi.is
Foreigner á Íslandi
Laugardalshöll - 18. maí
Dúndurfréttir
Bæjarbíó - 24. maí
Prins Póló
Bæjarbíó - 18. maí
Todmobile
Bæjarbíó - 11. maí
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
7. MAÍ 2018
Viðburðir
Hvað? Það besta að Norðan – Listræn
veisla úr Eyjafirði
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó, Vonarstræti
List án landamæra býður til list-
rænnar veislu með bestu lista-
mönnum Eyjafjarðar með áherslu
á leiklist og tónlist. Veislan verður
í Iðnó. Leiklestur á völdum brotum
úr stórbrotnum leikverkum fjöl-
listamannsins Atla Viðars Engil-
bertssonar. Hannes Óli Ágústsson
tók brotin saman. Meðal leikara
sem leiklesa eru Aðalbjörg Árna-
dóttir, Edda Björgvinsdóttir,
Hannes Óli Ágústsson og Harpa
Arnardóttir. Hin hæfileikaríka
Fnjósk mun flytja gestum lög sín.
Hljómsveitin Eva ætlar að taka
örfá vel valin lög úr sinni smiðju.
Sýningar
Hvað? Opnunarhátíð í Vatnshelda
galleríinu
Hvenær? 17.00
Hvar? Laugarnesvegi 91
Splunkunýtt gallerí – fimm opn-
anir á fimm dögum.
Hvað? Útskriftarsýning BA-nemenda í
hönnun, arkitektúr og myndlist
Hvenær? 10.00
Hvar? Kjarvalsstöðum
Útskriftarsýning bakkalárnema í
arkitektúr, hönnun og myndlist á
Kjarvalsstöðum. Verslun nemenda
verður opin á meðan á sýningunni
stendur. Þar verða til sölu sýn-
ingarskrá myndlistardeildar, bók
með verkum útskriftarnema í arki-
tektúr ásamt ýmiss konar varningi
og verkum nemenda sem tengjast
útskriftarverkefnum þeirra.
Hvað? Kynjaverur – myndasögusýning
Hvenær? 10.00
Hvar? Borgarbókasafni Tryggvagötu
Úrslit í myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnsins voru tilkynnt
síðasta laugardag og um leið var
opnuð sýning á völdum sögum
sem bárust í keppnina. Hún verður
opin til 27. maí.
Hvað? Opnun – Teikning I
Hvenær? 14.00
Hvar? Bókasafni Menntavísindasviðs,
Stakkahlíð
Í dag verður opnuð sýning á lit-
blýantsteikningum Þorbjörns
Helgasonar. Þorbjörn er 14 ára, var
að ljúka við 9. bekk og er með CP.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann
teiknað ógrynni mynda og hefur
með tímanum skapað sér ákveð-
inn stíl. Umfjöllunarefnin eru
af ýmsum toga, en þó ber mikið
á manna- og fígúrumyndum og
húmorinn er aldrei langt undan.
Oft tekur hann fyrir fólk sem á ein-
hvern hátt er þekkt úr fjölmiðlum.
Hann hefur til að mynda stúderað
persónugallerí Fóstbræðra, ofur-
hetjur, tónlistarmenn og leikara
og alla forseta Bandaríkjanna. Á
sýningunni fáum við að sjá úrval
bestu teikninga hans frá síðustu
2-3 árum sem eru skemmtilega
fjölbreyttar.
Hvað? Fjölþing | Ljósmyndasýning
Hvenær? 13.00
Hvar? Borgarbókasafnið | Menningar-
hús Gerðubergi
Myndlistarkonan Hildur Björns-
dóttir sýnir ljósmyndir og innsetn-
ingar frá ferðum sínum um Asíu.
Hún hefur á undanförnum árum
ferðast víða um Asíu og kynnst
fjölbreyttri menningu, trúar-
brögðum og lífsháttum. Sýningin
býður áhorfandanum í heimspeki-
legt ferðalag á framandi slóðir.
Hvað? Erró: Því meira, því fegurra
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarhúsinu
Á þessari sýningu er varpað sér-
stöku ljósi á verk Errós sem
byggjast á ofgnótt og ofmettun.
Slík myndgerð hefur alla tíð verið
mikilvægur þáttur í listsköpun
hans og má rekja aftur til ung-
dómsverka hans. Meira en þrjá-
tíu verk úr Errósafni Listasafns
Reykjavíkur – málverk, klippi-
myndir og kvikmyndir – sýna
hvernig listamaðurinn skapar
flóknar og hlaðnar myndbygg-
ingar, sem miðla myndefni tengdu
stjórnmálum, vísindum, skáldskap
og listasögu.
Hvað? Innrás II: Hrafnhildur Arnar-
dóttir / Shoplifter
Hvenær? 10.00
Hvar? Ásmundarsafni
Verk Hrafnhildar Arnardóttur /
Shoplifter eru allt í senn róman-
tísk, kjánaleg, fyndin og falleg.
Hún hefur leikið sér með and-
stæður, fínlega efnisnotkun og
handverk ásamt ofhlæði og afkára-
leika.
Hvað? Tak i lige måde – Samtímalist
frá Danmörku
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarhúsinu
Árið 2018 eru 100 ár liðin frá
því að Ísland hlaut fullveldi sem
markaði veg landsins til sjálfstæðis
undan dönskum yfirráðum. Lista-
safn Reykjavíkur minnist þess-
ara tímamóta með því að bjóða
valinkunnum dönskum samtíma-
listamönnum að sýna í safninu.
Mikil gerjun á sér stað í danskri
myndlist, ekki síst í ljósi breyttrar
heimsmyndar í pólitísku og sam-
félagslegu tilliti. Þær hræringar
endurspeglast í allri listsköpun
og gestir fá innsýn í þær í nýjum
verkum frá frændum okkar og
fyrrum herraþjóð Íslendinga.
Eyjafjörðurinn er einn fegursti staður landsins og bestu listamenn hans verða í Iðnó dag vegna Listar án landamæra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter hefur gert sig heimakomna í Ásmundar-
safni þar sem nokkur verka hennar eru sýnd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
3
-2
A
C
0
1
F
B
3
-2
9
8
4
1
F
B
3
-2
8
4
8
1
F
B
3
-2
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K