Fréttablaðið - 07.05.2018, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Láru G.
Sigurðardóttur
BAKÞANKAR
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn
fyrirtækisins er engin.
á viku
á starfsmann
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Aðeins
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Ef Ingólfur Arnarson væri að velja nafn á höfuðborg Íslands í dag yrði Reykjavík líklega aftur málið. Í stað
jarðhitagufu sæi hann manngerða
gufu blasa við hvar sem hann stigi
fæti niður.
Gufan er orðin svo algeng sjón
að sumir foreldrar kippa sér ekki
upp við það þótt börnin þeirra séu
orðin háð henni. Segja að það sé
mun betra en ef þau væru að reykja
sígarettur. En það sem gleymist
oft er að síðustu ár voru reykingar
hverfandi meðal barna – þangað til
gufan barst til landsins.
Það er nefnilega hægt að selja
okkur allan fjandann. Árið 1950
var okkur selt að það væri hollt að
reykja sígarettur og árið 1980 að
ljósabekkjaböð væru heilsusamleg.
Það tók vísindin hálfa mannsævi
að sanna að hvort tveggja veldur
krabbameini.
Því spyr maður, ætlum við að
læra af þessari reynslu? Það verður
ekki fyrr en eftir 40 ár sem við
sönnum hvaða áhrif rafsígarettur
hafa á líkamann – þó vitum við nú
þegar að þær geta innihaldið efni
sem valda krabbameini.
Fyrir utan óvissuna um hvort
barn hljóti lífshættulegan sjúk-
dóm af gufunni, þá á barn sem
verður þræll gufunnar eftir að
upplifa mikla vanlíðan sem tengist
fráhvörfum: örvæntingu, óþolin-
mæði, reiði, leiða, kvíða, óróleika,
svefntruflunum, martröðum, skorti
á einbeitingu, eirðarleysi, hausverk,
þreytu og jafnvel þunglyndi. Hver
vill að barn sitt þurfi að þola slíkt?
Þá tvo mánuði sem ég hef dvalist
í Kaliforníu hef ég ekki séð eina
manneskju með rafsígarettu. Og
það sést heldur enginn reykja.
Ballið er búið hérna. Fólk kýs betri
lífsgæði fyrir sig og börnin sín. Á
meðan gýs gufan upp á hverju horni
í Reykjavík, sennilega meiri gufa en
þegar Ingólfur nam land 874.
Gufurnar
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-F
E
5
0
1
F
B
2
-F
D
1
4
1
F
B
2
-F
B
D
8
1
F
B
2
-F
A
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K