Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 var til staðar og reddaði hlutun- um þegar eitt og annað kom upp. Fyrir okkur sem þekktum Halla náið þá er svo mikils að sakna, traustari vin er ekki hægt að finna. Skemmtilegur, ráðagóður og heiðarlegur. Hjálpsemi í dag- legu amstri var ótrúleg, hann vissi svo margt og kunni enn meira. Alltaf mættur til að hjálpa öllum. Halli varð strax einn af fjöl- skyldunni þegar hann hóf að hitta Helgu og man ég vel þegar við Elli fengum að skreppa með í bíóferðir á Novunni. Skíðaferð- irnar eru líka ofarlega í huga mínum frá þessum árum. Fyrstu byggingarvinnuna mína fékk ég hjá sama fyrirtæki og Halli vann hjá. Þar lærðum við báðir húsa- smíði og kviknaði okkar áhugi á smíðum og framkvæmdum. Frá þeim punkti og til dagsins í dag hefur Halli verið einn minn helsti ráðgjafi, alltaf gat ég hringt í hann eða kíkt yfir í einn öl og rætt hin ýmsu mál og við náð saman lendingu sem oftast gekk upp. Halli kenndi mér mikið. Þegar ég hóf rekstur fyrirtækis þá lagði ég á það áherslu að Halli kæmi til starfa. Halli kom oft inn í verkefni með okkur og var sett- ur í verkhluta sem flóknir voru og kröfðust útsjónarsemi,vand- virkni og þolinmæði sem Halli virtist á tímum hafa nóg af. Hann leysti hlutina, fann bestu lausn sem þurfti til að framkvæma hluti á sem einfaldastan, örugg- astan og hagkvæmastan hátt, hnikaði ekki frá nákvæmni og faglegum gildum sem voru inn- byggð í hans hug. Samviskusem- in var mikil og ef lengja þurfti daginn þá var það bara gert. Áhugi hans og metnaður á fag- legum verkum smitaði svo út frá sér á vinnustaðnum og aðrir sugu til sín reynslu og tileinkuðu sér. Halli kenndi okkur margt, var góður smiður, vandvirkur, iðinn, ósérhlífinn og þoldi ekkert slór eða hangs. Góður verkmaður. Eftir að Halli greinist með krabbamein er mér efst í huga hvernig ykkur Helgu tókst að standa þétt saman og styðja við bakið hvort á öðru á erfiðum tím- um og ríghélduð í vonina til loka- dags. Halli og Helga eiga saman þrjú börn, sem svo sannarlega eru stolt foreldra sinna, stoltur faðir fylgdist náið með öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur og studdi af fullum þunga. Missir þeirra er mikill og ósanngjarn. Erfitt er að kveðja þennan mikla fjölskylduvin en minningar lifa og allir muna eftir ferðalögunum, heimsóknunum, afmælunum, fjölskyldumatarboðunum, veiði- ferðunum, grillveislunum og mörgu öðru skemmtilegu sem við brölluðum öll saman. Elsku Helga, Guðbjörg, Gunn- ar og Elvar, Stefán og Eydís, við fjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð og Guð gefi ykkur styrkt til að takast saman á við mikinn missi, standið ávallt sam- an og haldið minningum á lofti. Við vitum hvað Halli var mikill klettur í lífi ykkar allra, allir gátu leitað lausna og hann leysti málin. Gestur Már. Minn kæri vinur og félagi Hallgrímur Gunnarsson er látinn eftir harðvítuga baráttu við óvin- inn illviðráðanlega. Þá baráttu háði Halli af æðruleysi og ró- semd. Halla hafði ég þekkt frá því við vorum ungir menn á Selfossi en eiginlegur vinskapur tókst með okkur eftir að við Helga fórum að byggja upp aðstöðu fyrir gróður og búfénað hér í Kjarri. Það vildi þannig til að Halli smiður, eins og hann var kallaður af öllum hér, kom að flestum framkvæmd- um, fyrst sem smiður í vinnu hjá öðrum en síðar sem hönnuður og framkvæmdaaðili. Það kom á daginn þegar við fórum að þekkja Halla betur að það þurfti bara að nefna hvað maður hafði í huga að gera. Eftir nokkrar vangaveltur og spjall leið ekki langur tími þar til Halli kom með riss af væntanlegu húsi eða hugmyndir um endurbætur. Þegar svo upp komu spurningar um efni og annað var nóg að segja: „Þú gerir þetta bara eins og þú værir að gera þetta fyrir sjálfan þig.“ Halli var listasmiður og bera öll hús í Kjarri vott um það. Mun- um við minnast hans með þakk- læti fyrir allt sem hann hefur gert fyrir okkur. Það kom á daginn að Halli hafði gaman af skepnum, ekki síst kindum. Fyrir nokkrum ár- um kom til tals að bæta þyrfti að- stöðu fyrir kindurnar. Halli tók að sér að hanna verkið og sjá um framkvæmdina en auðheyrt var að hann hafði áhuga á að taka þátt í búskapnum. Haustið sem aðstaðan var vígð var ákveðið að Halli yrði fjárbóndi og fékk hann að velja úr lífgimbrunum það haust. Var það tilviljun að hann valdi fallegustu gimbrina? Það held ég ekki, hann var glöggur á féð eins og annað, hann valdi hana Tunnu. Ég er viss um að fjárbúskapurinn veitti honum ánægju, ekki síst þegar starfs- getan þvarr. Það voru ófáar ferð- irnar sem hann gerði að Kjarri að líta á kindurnar og að sjálf- sögðu að fá sér bolla og fara að- eins yfir málin. Heilsu Halla hrakaði mjög á haustdögum og var það okkur áhyggjuefni hvort hann kæmist í réttirnar ef heilsan yrði tæp þann daginn. En það leysti Halli og teljum við víst að hann hafi fylgst með því sem þar fór fram af sama áhuga og endranær. Við í Kjarri eigum einungis góðar minningar um Halla vin okkar og munum hugsa hlýtt til hans um ókomna tíð. Helgu, Guðbjörgu, Gunnari og Elvari sendum við innilegar sam- úðarkveðjur sem og öðrum ætt- ingjum. Helgi Eggertsson og fjölskylda, Kjarri. Hallgrímur Gunnarsson, vinur minn og vinnufélagi, er látinn, langt fyrir aldur fram eftir bar- áttu við krabbamein. Leiðir okk- ar Halla lágu fyrst saman í öku- kennaranámi árið 2008. Fljótt varð maður þess áskynja að Halli var einstakur náungi, hæfileik- arnir lágu víða hvort heldur þeir voru til hugar eða handa, og munu verk hans ætíð bera vott um þá. Samvinna okkar og sam- skipti urðu meiri frá árinu 2011 í gegnum störf okkar hjá Þráni Elíassyni, tengdaföður Halla hjá Ökuskóla Suðurlands. Aldrei rif- umst við Halli þó að skoðanir væru ekki alltaf þær sömu, við áttum vel saman. Ástæða þess var meðal annars sú að Halli bjó yfir ró í öllu sínu viðmóti og bar aldrei hálfkaraðar skoðanir eða athugasemdir á borð fyrir aðra, hann hafði góða sannfæringu og hafði oftar en ekki rétt fyrir sér, það var nú bara þannig. Alltaf gat ég treyst því sem Halli sagði enda vandfundinn nákvæmari maður til dæmis þegar kom að túlkun á lögum eða reglugerðum, hann tók viðfangsefnið á dýptina og var um leið á móti yfirborðs- kenndu snakki um það. Húmor- inn var til staðar þó að ógnvæn- leg veikindi herjuðu á líkamann. Engan hef ég fyrir hitt sem gat glaðst á jafn einlægan hátt og Halli, ef svo bar undir, oft yfir fyndnum augnablikum hvers- dagsins eða aulahúmor, til dæmis mínum. Halli var með góða nærveru og báru ökunemar hans virðingu fyrir honum, enda orðaði Halli hlutina vinalega, af alúð og hafði gott lag á ólíku fólki. Það tekur mig sárt að samskiptum okkar sé lokið í bili, þangað til seinna, vin- ur minn. Elsku Helga, Guðbjörg, Gunn- ar, Elvar Elí og aðrir aðstand- endur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Jens Karl Ísfjörð. ✝ Björg Valtýs-dóttir fæddist í Bolungarvík 2. ágúst 1950. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suður- nesja 17. septem- ber 2017. Foreldrar henn- ar voru Eva Bene- diktsdóttir, f. 7.10. 1921, d. 19.1. 2014, og Valtýr Gíslason, f. 23.12. 1921, d. 30.8. 2000. Systkini Bjargar eru Rósa, f. 18.8. 1945, Gísli, f. 21.10. 1946, d. 17.7. 2001, Bára, f. 19.6. 1948, Óskar, f. 18.1. 1952, og Bene- dikt, f. 8.1. 1957, d. 14.1. 2001. þeirra eru Kristinn, Elías Bjarki og Elsa Lind. Björg starfaði við tollgæslu alla sína starfsævi en hún hóf störf við afleysingar hjá Lög- reglustjóranum á Keflavíkur- flugvelli árið 1971. Hún var fast- ráðin hjá tollgæslunni árið 1972 og varð hún þá fyrsti kventoll- vörðurinn á Íslandi. Björg sinnti ýmsum störfum innan tollgæsl- unnar, lengi sem deildarstjóri í fraktdeild og síðan sem aðstoðaryfirtollvörður í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Björg og Kristinn hafa alla tíð búið í Innri-Njarðvík. Björg sinnti margs konar sjálfboða- vinnu fyrir körfuknattleiksdeild Njarðvíkur í gegnum tíðina. Útför Bjargar fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju í dag, 22. september 2017, klukkan 13. Björg giftist Kristni Pálssyni, f. 8.6. 1949, hinn 29.11. 1970. Börn þeirra eru: 1) Sig- rún Eva, f. 3.12. 1971, gift Martin Hernandez, f. 25.5. 1969. Börn þeirra eru Sunna Kamilla, Saga Ísabella og Andri Thor. 2) Ás- dís Björk, f. 4.8. 1974, gift Jóhanni Axel Thor- arensen, f. 24.6. 1974. Börn þeirra eru Júlía Björg, Thelma Sigrún og Axel Arnar. 3) Páll, f. 7.7. 1976, kvæntur Pálínu Gunn- arsdóttur, f. 16.6. 1978. Börn Elsku, hjartans ástin mín og besti vinur, lífið verður erfitt án þín. Þú varst mér allt. Ég mun halda áfram að hugsa um börnin okkar og barnabörnin sem eru okkar fjársjóður. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér og ég veit að þú munt elska mig og geyma mig og gæta hjá þér. Þegar tíminn á jörðu hér liðinn er og þá burtu fer. Þá veit ég að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir.) Hvíl í friði, ástin mín, þú verður ætíð í mínu hjarta. Þinn eigin- maður, Kristinn. Elsku mamma, fyrirmyndin okkar, kletturinn og okkar besta vinkona, mikið munum við sakna þín. Baráttan sem þú háðir svo lengi hefur nú tekið enda. Þú tókst á við þessa áskorun með því- líkum dugnaði og elju eins og þér einni var lagið. Þú ætlaðir að vinna þennan óvin, fara aftur til starfa og hætta þar á þínum for- sendum en ekki vegna þess að veikindin neyddu þig til þess. Það var ekki hluti af þínum persónu- leika að gefast upp. Þú hugsaðir alltaf fyrst og fremst um fjöl- skylduna og þá sérstaklega barnabörnin sem voru þér allt. Þú fékkst loksins frið þegar öll ömmubörnin voru komin frá Am- eríku og þú gast knúsað allan hóp- inn. Yndislega móðir mín, minning þín mun ætíð lifa. Unaðsblíðu brosin þín bjarta hlýja móðir mín. Aldrei gleymist ástin þín og gleðin meðan hjörtun lifa. Blessuð kæra móðir mín minning þín mun fögur lifa. Hjartans elsku móðir mín mig þú leiddir lífs á vegi. Hlý var ætíð höndin þín hennar nutu börnin mín. Heyrðist fagra röddin þín á hreinum tærum sólardegi. Undurfagra móðir mín verndaðu oss á lífsins vegi. (Guðmundur Kr. Sigurðsson) Við getum endalaust talið upp allt sem þú hefur gert fyrir okkur í gegnum tíðina, en ósérhlífnari og sterkari einstaklingi höfum við aldrei kynnst. Þú vildir hugsa svo vel um alla. Við verðum ævinlega þakklát fyrir alla hlýjuna, um- hyggjuna og ástina sem þú sýndir okkur alla tíð. Elsku mamma, takk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. Sigrún Eva, Ásdís Björk og Páll. Elsku besta tengdamóðir. Þá ertu farin á feðranna fund eftir langa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Þú tókst á við sjúkdóminn af miklu æðruleysi og dugnaði en svo kom að því að líkaminn gat ekki meir og þú fékkst hvíldina. Það er svo margt sem fer í gegn- um hugann þegar litið er yfir far- inn veg, en fyrst og fremst er það þakklæti sem er mér efst í huga. Mig langar að þakka fyrir yndis- legu dóttur þína sem ég er svo lán- samur að eiga fyrir eiginkonu og einnig fyrir allan stuðninginn og hjálpina í gegnum árin. Ég var fluttur inn á heimili ykkar Kristins átján ára gamall og varð um leið eins og einn af fjöl- skyldunni. Dugnaður þinn, hvort sem það var til vinnu eða að sjá um heimilið, var okkur öllum sem á heimilinu bjuggum til fyrir- myndar. Samheldni ykkar Kristins var aðdáunarverð og til eftirbreytni sem sýnir sig best í börnunum ykkar þremur sem þið komuð til manns, því betri einstaklinga er ekki hægt að finna. Barnabörnin hafa misst mjög mikið en þið Kristinn hafið verið einstaklega dugleg að sinna þeim og áttu þau einstakan stað í hjarta ykkar. Ég kveð þig með sorg í hjarta, elsku Björg mín, við munum hlúa að Kristni fyrir þig. Þinn tengdasonur, Jóhann Axel. Þegar ég hugsa um tengda- mömmu er mér þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir að hafa kynnst svona frábærri manneskju sem hefur kennt mér svo ótal margt í gegnum tíðina. Það má segja að Björg hafi verið mín önn- ur móðir, hún átti sinn þátt í því að koma mér til manns og fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát. Björg var tengdamamma mín en jafnframt trúnaðarvinkona, kona sem hægt var að treysta á sama hvað dundi á, alltaf gat ég leitað til hennar. Hún var amma af guðs náð og fengu öll barnabörnin að njóta góðs af góðmennsku hennar og þrátt fyrir að oft hafi verið handagangur í öskjunni með öll níu barnabörnin þá var alltaf pláss fyrir þau öll og hvert og eitt þeirra fékk sinn sérstaka sess í hjarta hennar en það var yfirfullt af ást í garð okkar allra. Ég tel að Björg hafi verið ein af þessum kjarnakonum sem ruddu brautina fyrir okkur hinar, en hún var deildarstjóri í Tollinum til fjölda ára og þar sinnti hún starfi sem hún þurfti stundum að vera ákveðin í, en svo á hinn bóginn þá var hún eiginkona, móðir, tengda- móðir, amma og vinkona þessi dásamlega trausta og hjartahlýja kona sem við kveðjum í dag. Elsku Björg, þín verður sárt saknað og kveð ég þig með orð- unum sem ég sagði þér svo oft „ef ég hefði getað valið mér tengda- móður þá hefði ég valið þig“. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þín tengdadóttir, Pálína (Palla). Elsku besta amma. Takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Þú studdir okkur alltaf og varst okkur allt. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Minning þín lifir ætíð í hjörtum okkar. Þín barnabörn, Kristinn, Sunna Kamilla, Saga Ísabella, Elías Bjarki, Júlía Björg, Andri Thor, Thelma Sigrún, Axel Arnar og Elsa Lind. Elsku vinkona. Þá ertu farin í Sumarlandið og allar þrautir farn- ar. Mikið hefur verið gott að eiga þig að sem vinkonu í hartnær 50 ár þótt fleiri hundruð kílómetrar væru á milli okkar. Síðastliðnar vikur hringdir þú oft til að gá að mér og segja mér að fara eftir lækninum, já hugsaðir til mín þótt þín veikindi væru fyrirsjáanlega mjög erfið. Við höfum fylgst mikið að síð- astliðin tvö ár síðan við fórum að vera meira fyrir sunnan en nú eru leiðarlok og söknuður mikill hjá okkur Ingvaldi. Nú fer stellið fræga, sem veitti okkur ómælda skemmtun, í kassa, búið að þjóna tilgangi sínum. Elsku vinkona, við sjáumst í ljósinu. Við sendum hjartanlegar samúðarkveðjur til Kidda, barna og fjölskyldna. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur, sem ekki yfirgefur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Gréta Friðriksdóttir. Reglulega fáum við áminningu um hversu hverfult þetta líf okkar er. Mér er efst í huga nú þegar Björg er horfin á braut þakklæti. Þakklátur að kynnast þeirri kjarnakonu sem Björg hafði að geyma. Þakklátur fyrir þau líf sem hún bjó til og eru mér svo kær. Kærar þakkir fyrir sam- fylgdina og umhyggjuna, elsku Björg. Megi guðsblessun fylgja Kristni, ástinni í lífi þínu, og hinni fallegu fjölskyldu þinni. Hingað berst mér hljómur skær heyrið nú hvað klukkan slær dagleið einni er dauðinn nær í dag heldur en var í gær. (Guðfinna Sesselja Benediktsdóttir) Skúli Björgvin Sigurðsson. Þegar ég heyrði að Björg Val- týsdóttir vinkona mín og sam- starfsmaður til næstum 20 ára væri látin var mér að sjálfsögðu brugðið, jafnvel þótt fréttin kæmi ekki á óvart eftir erfið veikindi hennar undanfarin misseri. Við sem urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að vinna náið með henni um árabil minnumst hennar með hlýju, væntumþykju og aðdáun. Björg var ekki aðeins góður yf- irmaður, heldur afbragðs emb- ættismaður, sem var ætíð vinsam- leg í garð vinnufélaga og viðskiptavina, en gat engu að síð- ur verið föst fyrir og ákveðin eins og oft þarf að vera í starfi toll- varðar og yfirmanns. Það fyrsta sem kemur þó upp í hugann þegar maður minnist Bjargar er falleg, brosandi kona, sem var jákvæð jafnt í blíðu sem stríðu. Leiðir okkar Bjargar saman á krabbameinsdeildinni fyrir rétt rúmu ári, þar sem við bæði vorum að gangast undir skurðaðgerð. Við báðum hjúkrunarfræðing að taka af okkur ljósmynd fyrir fés- bókina og brostum síðan bæði okkar blíðasta rétt áður en við lögðumst undir hnífinn. Á þeirri stundu var mér hugsað til þess þegar ég byrjaði að vinna undir hennar stjórn og var tekið með brosi, hlýju og væntumþykju. Björg var einstaklega vinnu- söm og ósérhlífin kona og enginn veit hve margar klukkustundir hún gaf af sínum frítíma til að sinna óþrjótandi verkefnum á Keflavíkurflugvelli. Björg gekk í öll störf og ekkert var fyrir neðan hennar virðingu. Þegar ég var í vaktavinnu blöskraði mér stundum þegar hún var mætt fyrir klukkan sex á morgnana á laugardegi þegar hún átti að vera í fríi. Að sögn hélt hún þessari venju sinni einnig eftir að hún færðist yfir í farþegaaf- greiðslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og var gerð að næst- æðsta yfirmanni tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Fyrir hönd samstarfsmanna á Keflavíkurflugvelli, Reykjavík og um land allt vil ég votta eigin- manni hennar Kristni Pálssyni, börnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðbjörn Guðbjörnsson yfirtollvörður. Elsku Björg. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við þökkum fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Martin og Alcira. Björg Valtýsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.