Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 09.05.2018, Qupperneq 2
Veður Norðaustanátt í dag, 13-18 m/s á Vestfjörðum en víða 8-15 annars staðar þegar kemur fram á daginn. Rigning með köflum, en talsverð rigning suðaustanlands. sjá síðu 14 Litlu lömbin lottóvinningur fyrir leikskólabörn Það ríkti mikil gleði í fjárhúsinu að Hraðastöðum í Mosfellsdal þegar leikskólabörn frá Leirvogstunguskóla í Mosfellsbæ litu þar í heimsókn í gær. Hjónin á bænum láta sauðburð ekki trufla sig við móttöku gesta en hann er í algleymingi að sögn bóndans, Bjarna Bjarnasonar. „Það er lottóvinn- ingur fyrir gestina að sjá lömbin fæðast,“ segir Bjarni og ítrekar að þrátt fyrir sauðburð sé opið alla daga á Hraðastöðum í maí. Fréttablaðið/Ernir sláttuvélar Rafhlöðu- ÞÓR FH Akureyri: Baldursnesi 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is áRBORG Íbúakosning um nýsam- þykkt deiliskipulag miðbæjar Sel- foss er í hnút vegna þess að áhöld eru um það hvort undirskrifta- söfnun fyrir kosninguna hafi farið rétt fram. Í hinu nýja deiliskipulagi er gert ráð fyrir viðamiklum framkvæmd- um í miðbænum þar sem endur- byggja á sögufræg hús, sem standa ekki lengur, víðs vegar af landinu. Andstæðingar þess telja að of þétt verði byggt á svæðinu og freistuðu þess að knýja fram íbúakosningu um málið. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum er unnt að knýja fram slíka kosningu riti 20 prósent atkvæðabærra íbúa undir yfirlýsingu þess efnis. Sveitar- félagi er heimilt að hækka þann þröskuld en þó má hann aldrei vera hærri en þriðjungur kjósenda. Árborg hækkaði sinn þröskuld með 63. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins. Sam- kvæmt greininni þurfa 29 prósent að skrifa undir slíkan lista. Á fundi bæjarstjórnar 22. mars sl. var slík undirskriftasöfnun heimil- uð. Mætti hún hefjast daginn eftir og vera lokið 20. apríl. Alls skrifuðu 29,4 prósent íbúa undir. Áhöld eru hins vegar uppi um hvort rétt hafi verið staðið að söfnuninni. Heimildir Fréttablaðsins herma að einhverjir íbúar telji að nafn sitt sé á listanum gegn þeirra vilja. Þá herma aðrir að þeir hafi talið sig vera að skrifa undir meðmælalista fyrir framboð í komandi sveitar- stjórnarkosningum. Slíkar undir- skriftir gætu hafa riðið baggamun- inn við það að ná yfir 29 prósenta þröskuldinn. „Það eina sem okkur hefur borist er afrit af bréfi frá Þjóðskrá um að farið hafi verið yfir undirskriftirnar. Þau gögn eru ekki næg heldur þurfa undirskriftalistarnir sjálfir að ber- ast og sveitarstjórn að fara yfir þá samkvæmt ákvæðum reglugerðar um efnið,“ segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Árborg. Kassi með undirskriftum var afhentur lögreglu þann 20. apríl, hann innsiglaður og sendur Þjóð- skrá. Sá var hins vegar sendur til baka og afhentur ábyrgðarmönnum á nýjan leik. Þeir skiluðu kassanum á ný þann 26. apríl. Kassinn var því óinnsiglaður um nokkurra daga skeið. „Við fengum kassann aftur þar sem það vantaði upp á að rafrænt afrit af listanum fylgdi með kassanum. Við töldum okkur hafa uppfyllt okkar skyldu strax í upphafi en það var ein- hver misskilningur með það,“ segir Davíð Kristjánsson, einn þriggja ábyrgðarmanna söfnunarinnar. Davíð segir að það sé alveg klárt mál að engar undirskriftir hafi bæst í kassann meðan rafrænn listi var útbúinn. Aðeins ábyrgðarmenn hafi haft aðgang að honum. Hann hafi heyrt af einhverri umræðu á netinu um að átt hefði verið við listann. „Sveitarstjórnin vill birta listann í heild sinni og það stendur í okkur. Við teljum réttara að Þjóðskrá setji upp einhverja gátt þar sem fólk getur staðfest undirskrift sína. Það þætti okkur eðlilegast til að koma í veg fyrir að þetta verði gert tortryggi- legt,“ segir Davíð. joli@frettabladid.is Deila um undirskriftir vegna íbúakosningar 29,4 prósent kosningabærra íbúa Árborgar óskuðu eftir því að íbúakosning færi fram um nýtt deiliskipulag miðbæjar Selfoss. Undirskriftalistar sendir til baka til ábyrgðarmanna af Þjóðskrá. Ekkert átt við listana að sögn ábyrgðarmanns. Svona er áætlað að hinn umdeildi miðbær muni líta út eftir breytinguna. MYnD/SiGtÚn ÞrÓUnarFélaG Sveitarstjórnin vill birta listann í heild sinni og það stendur í okkur. Davíð Kristjánsson, einn þriggja ábyrgðarmanna söfnunarinnar Dómsmál Kærumál um þá kröfu að Arnfríður Einarsdóttir landsréttar- dómari víki sæti í máli manns er ákærður er fyrir umferðarlagabrot er komið á dagskrá Hæstaréttar. Munnlegur málflutningur verður í málinu 18. maí. Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að skipun Arnfríðar og þriggja ann- arra dómara við Landsrétt hafi ekki verið lögum samkvæm. Málið snýst í raun um gildi þeirra dóma sem umræddir dómarar dæma og því ljóst að niðurstaða málsins getur skipt verulegu máli fyrir dóms- kerfið. Fallist Hæstiréttur ekki á kröfu mannsins má búast við að farið verði með málið alla leið til Mann- réttindadómstóls Evrópu en Vil- hjálmur Hans Vilhjálmsson, verj- andi mannsins, hefur gefið þann ásetning í skyn. – aá Hæfismál flutt í næstu viku KjaRamál Ósk Svanhildar Konráðs- dóttur, forstjóra Hörpu, um launa- lækkun til fyrra horfs hefur engin áhrif á ákvörðun VR um að hætta viðskiptum við Hörpu. „Fyrst og fremst gerir þetta ekkert fyrir starfsfólkið og það er það sem skiptir máli, þetta snýst um fólkið sem starfar á gólfinu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. VR er nú þegar búið að færa við- burðinn Fyrirtæki ársins sem halda átti 17. maí í Hörpu. Til stóð að halda jólaball félagsins í húsinu en nú er verið að vinna í að finna því annan stað. Vegna lítils fyrirvara gat félagið hins vegar ekki fært árlegt kaffisam- sæti eldri félagsmanna VR annað og það verður í Hörpu á morgun. Þeir þjónustufulltrúar sem Frétta- blaðið náði tali af sögðu að þetta útspil Svanhildar breytti engu um uppsagnir þeirra. „Fyrir mína parta er þetta of seint í rassinn gripið,“ segir Guðrún Jóna H. Hilmarsdóttir. Annar þjónustufulltrúi sem starfað hefur í Hörpu í fimm ár er Guðrúnu sammála. „Að þetta spretti upp núna þegar það er svona mikil reiði finnst okkur fullseint.“ Að sögn þjónustufulltrúans var erfitt að taka þá ákvörðun að segja upp. „Þetta er alveg það seinasta sem við vildum gera því þetta er auðvitað frábær vinna.“ Ragnar segist bera ómælda virð- ingu fyrir ákvörðun þjónustufulltrúa Hörpu um að segja upp. „Við erum að sýna í verki að við stöndum með þessu starfsfólki og félagsmönnum okkar. Ég er mjög stoltur af þessu fólki fyrir að sýna þessa áræðni og það er mikilvægt að sýna þessu fólki sam- stöðu bæði í orði og á borði. Ef stéttar- félagið sýnir þessu fólki ekki stuðning þá er fokið í flest skjól.“ – gþs Segja of seint í rassinn gripið ragnar Þór ingólfsson, formaður Vr. 9 . m a í 2 0 1 8 m I ð V I K u D a G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a ð I ð 0 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 8 -5 8 7 8 1 F B 8 -5 7 3 C 1 F B 8 -5 6 0 0 1 F B 8 -5 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.