Fréttablaðið - 09.05.2018, Page 4

Fréttablaðið - 09.05.2018, Page 4
Fyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins mánudaginn 7. maí þess efnis að starfsmenn dómstóla leki trúnaðargögnum endurspeglaði ekki innihald fréttarinnar og hefur henni nú verið breytt. Leiðrétting Misjöfn ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða 1997-2016 í prósentum 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% Lægsta ávöxtun sjóðs = 1,25% Hæsta ávöxtun sjóðs = 6,16% 1, 25 1 ,5 3 1, 64 1, 64 1, 76 1, 91 2, 41 2 ,7 2 2, 79 2, 91 2, 94 2, 98 2, 99 2, 99 3, 13 3, 14 3, 14 3, 35 3, 41 3, 80 3, 87 3, 90 3, 96 4 ,2 7 4, 32 5, 02 6, 16 fjárMáL Sjötíu prósent lífeyris­ sjóða á Íslandi hafa ekki náð þeirri ávöxtun til langs tíma sem sjóðirnir hafa sett sér að markmiði. Þetta sýnir ný greining sem Hallgrímur Óskars­ son verkfræðingur og Gylfi Magnús­ son, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, hafa gert. Markmið sjóðanna er að ná til lengri tíma litið 3,5 prósenta meðal­ raunávöxtun. Þeir Hallgrímur og Gylfi hafa rýnt í gögn allra lífeyris­ sjóðanna í talnaefni ársreikninga­ bóka Fjármálaeftirlitsins frá árs­ byrjun 1997 til ársloka 2016. Tekið var tillit til sameininga sem átt hafa sér stað. Árið 1997 voru þetta 50 sjóðir en í dag hefur þeim fækkað með sameiningum í 27 lífeyrissjóði. Niðurstöður voru að af 27 sjóðum sem starfandi eru á Íslandi séu ein­ ungis átta sem skila meira en 3,5 pró­ senta meðalávöxtun yfir tímabilið. Í grein sem þeir Hallgrímur og Gylfi skrifa og birt er á blaðsíðu 11 í Frétta­ blaðinu í dag kemur fram að sá sem skilar mestu er með 6,16 prósenta meðalraunávöxtun. Sá sem er með minnstu ávöxtunina er hins vegar einungis með 1,25 prósent. „Á þessu 20 ára tímabili var ávöxtun þess sjóðs sem náði bestum árangri að þessu leyti nær ferfalt hærri en hjá þeim sjóði sem skilaði lakastri ávöxtun. Hvert prósentu­ stig í meðalávöxtun yfir langan tíma hefur mikil áhrif á þann lífeyri sem greiddur er að lokum og bendir allt því til þess að fólk muni búa við nokkuð misjöfn kjör á eftirlauna­ árum vegna mismikillar ávöxtunar sjóða,“ segja þeir Hallgrímur og Gylfi. Þeir benda á að ávöxtun í fortíð sé vissulega ekki ávísun á örugga ávöxtun í framtíðinni en þó hljóti þessar upplýsingar að teljast mikil­ vægur liður í því að auka gagnsæi, enda séu landsmenn allir skyldaðir til að greiða í sjóðina. „Stór hluti launþega hefur ekki beint val um það í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða heldur renna iðgjöld einfaldlega í þann lífeyrissjóð sem verkalýðsfélag hvers og eins hefur valið,“ segir einnig í greininni. Íhuga þurfi að leyfa launafólki að greiða í nokkra sjóði til að dreifa áhættu. Þorsteinn Víglundsson, þingmað­ ur Viðreisnar og varaformaður efna­ hags­ og viðskiptanefndar Alþingis, segist hlynntur auknu valfrelsi í líf­ eyrismálum. „Það skiptir mjög miklu máli að sjóðirnir búi við sterkt og gott aðhald og auðvitað er aðhaldið mest ef sjóð­ félagar geta valið að skipta um sjóð ef þeir eru óánægðir með ávöxtun sjóðsins til langs tíma litið,“ segir Þorsteinn. Eðlilegt sé að fólk hafi meira um það að segja hvar fjármagn þess er ávaxtað. Áður en opnað væri á val­ frelsi í aðild að lífeyrissjóðum þyrfti þó að jafna örorkubyrði milli sjóða. jonhakon@frettabladid.is Bestu lífeyrissjóðir skila fjórfalt meiri ávöxtun en hinir lökustu Fæstir lífeyrissjóðir hafa náð þeirri ávöxtun til langs tíma sem þeir hafa sett að markmiði. Ávöxtun þess sjóðs sem nær bestum árangri er nær fjórföld á við þann sem stendur lakast. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar er hlynntur því að auka frelsi í vali á lífeyrissjóðum. En fyrst þurfi að jafna örorkubyrði. Það skiptir mjög miklu máli að sjóðirnir búi við sterkt og gott aðhald. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins LýðheiLsa Embætti landlæknis leggur til að stjórnvöld hækki álög­ ur á gosdrykki þannig að þeir séu skattlagðir í samræmi við almenna skattheimtu og beri 24 prósenta virðisaukaskatt í stað 11 prósenta. Einnig að vörugjöld hækki um 20 prósent. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis­ ráðherra kynnti tillögurnar í ríkis­ stjórninni í gær. Þær taka mið af ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðis­ málastofnunarinnar. Lagt er til að þeir fjármunir sem koma inn með þessum breytingum verði nýttir til að lækka álögur á grænmeti og ávexti. Jafnframt verði fé eyrnamerkt fyrir starf á sviði heilsueflingar. – khn Landlæknir vill sykurskatt á gos Kosningar „Það kemur á óvart hvað hún er ólík öðrum könn­ unum,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar­ stjórnarkosningarnar, um könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu á fylgi flokkanna fyrir borgar­ stjórnarkosningarnar. „Við sjáum þarna miklar sveiflur á fylgi en það er líka hátt hlutfall sem er ekki að svara. Annaðhvort eru miklar sveifl­ ur á fylginu eða þá að fólk er ekki að gefa sig upp,“ bætir Eyþór við. Sjálf­ stæðisflokkurinn mælist með 22,4 prósenta fylgi í könnuninni sem gerð var í fyrrakvöld. Þegar Frétta­ blaðið og frettabladid.is könnuðu fylgið 24. apríl síðastliðinn var Sjálf­ stæðisflokkurinn með rúmlega 30 prósent og hefur því misst verulegt fylgi á tæpum hálfum mánuði. Það yrði líka lakari árangur en í kosning­ unum árið 2014 þegar flokkurinn fékk 25,7 prósent. Samfylkingin mælist með 30,5 prósenta fylgi í könnuninni og bætir við sig tæpum fimm prósentustigum milli kannana. Flokkurinn nær þó ekki sama fylgi og í kosningunum 2014, þegar hann fékk 31,9 prósent gildra atkvæða upp úr kjörköss­ unum. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, lýsti ánægju með niðurstöðu könnunar­ innar í samtali við Bylgjuna í gær. „Já, þetta er sterk könnun fyrir meirihlutann og sterk könnun fyrir Samfylkinguna sem ég er innilega ánægður með. Ég held að það séu að teiknast upp býsna skýrir valkostir í kosningunum, þar sem við stöndum fyrir þróun Reykjavíkur í græna átt. Í átt að fjölbreyttari og áhugaverðari borg sem er jafnframt borg fyrir alla,“ sagði Dagur. – jhh Turnarnir tveir myndu báðir tapa fylgi frá síðustu kosningum Eyþór Arnalds Dagur Eggertsson Höfum gaman af 'essu Kynntu þér Vinahópinn á olis.is BandaríKin Donald Trump, for­ seti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að Bandaríkin ætluðu að rifta Írans­ samningnum svokallaða af sinni hálfu og koma á viðskiptaþvingunum gegn Íran á ný. Trump hafði oftsinnis lofað að rifta samningnum, bæði í kosninga­ baráttu sinni og eftir að hann varð forseti, og reglulega sagt hann „versta samning allra tíma“. „Þetta var hörmulegur einhliða samningur sem hefði aldrei nokk­ urn tímann átt að vera gerður,“ sagði Trump. Hann sagði að hvert það ríki sem aðstoðaði Írana við kjarnorku­ áætlun sína gæti lent í að vera beitt viðskiptaþvingunum. Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína, Rússland, Þýskaland og Evrópu­ sambandið gerðu samninginn við Íran árið 2015 eftir langar viðræður. Hann setur takmarkanir á getu Írans til að vinna að kjarnorkuáætlun sinni og samkvæmt Alþjóðakjarnorkumála­ stofnuninni hafa Íranar staðið við sitt. Á móti samþykktu kjarnorkuveldin, auk Þýskalands og Evrópusambands­ ins, að aflétta viðskiptaþvingunum gegn Íran og að affrysta íranskar eignir, virði um hundrað milljarða dala. Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði í gær að það tæki Írana nokkrar vikur til að ákveða hvernig svara eigi riftun Bandaríkjanna. Samningurinn gilti enn við hin ríkin. Andstæðingar samningsins, einna helst Trump og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafa áður sagt að með gerð hans fái Íranar aðgang að miklu fjármagni sem hægt sé að nota til að fjármagna herbrölt. Gildistími ákvæða samningsins hefur einnig verið harðlega gagn­ rýndur. – þea Trump stóð við stóru orðin um Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnir ákvörðun sína. Nordicphotos/Getty Landlæknir vill skipta gosi út fyrir grænmeti. NORDICPHOTOS/GETTY 9 . M a í 2 0 1 8 M i ð V i K U d a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 0 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 8 -6 C 3 8 1 F B 8 -6 A F C 1 F B 8 -6 9 C 0 1 F B 8 -6 8 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.