Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.05.2018, Qupperneq 8
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Þetta bendir til þess að nú eigi að grípa í það haldgóða íslenska hálmstrá að þetta sé fjölmiðlum að kenna. Það er ljóst að við erum að gera eitthvað rangt á grunnskóla- stiginu varðandi námsáherslur. Gríðarleg eftirspurn er hér á landi eftir iðn-menntuðu starfsfólki. Á sama tíma erum við langt á eftir öðrum þjóðum hvað varðar ásókn í iðnnám. Þessi þróun hefur verið að eiga sér stað yfir langan tíma. Við höfum leyft okkur að van- rækja iðnnámið en ýta á sama tíma undir bóknám. Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008, nánar tiltekið í 24. grein, er kveðið á um að jafnvægi skuli vera á milli bók- og verklegs náms innan grunnskólanna. Þarna virðist víða pottur vera brotinn. Margir verk- námskennarar hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna þekkingarskorts nemenda í verklegum greinum þegar nemendur koma inn í framhaldsskólana. Nýverið mátti lesa viðtal við skólastjóra í Reykjavík sem hefur ákveðið að segja upp stöðu sinni vegna ómarkvissrar stefnu stjórnvalda í menntamálum. Margt af því sem þessi ágæti skólamaður nefnir á því miður við rök að styðjast. Okkur skortir stefnu og okkur skortir sýn. Hvernig ætlum við að bregðast við því hæfnimisræmi sem skapast hefur hér á landi milli þarfa atvinnulífsins og hæfni nemenda sem útskrifast? Samkvæmt nýlegri könnun sem Samtök iðnaðar- ins létu gera meðal félagsmanna nefndi yfirgnæfandi meirihluti að fyrirtæki þeirra þyrftu á fólki að halda með iðnmenntun. Ef við ætlum að byggja hér upp samkeppnishæft atvinnulíf verðum við að setja iðnnám í öndvegi og leggja aukna áherslu á kennslu verklegra greina í grunnskólum landsins. Við verðum að sjá til þess að það sé samfella í iðn- námi þannig að nemendur geti lokið námi á réttum tíma án hindrana. Atvinnulífið verður að taka á sig ábyrgð og bjóða iðnnemum námssamninga á vinnu- stöðum sínum þannig að tryggt sé að nemendur geti lokið sveinsprófi. Það er ljóst að við erum að gera eitthvað rangt á grunnskólastiginu varðandi námsáherslur. Við þurfum að leggja mun meiri áherslu á kennslu verk- legra greina allt frá 1. bekk grunnskóla sem gæti skilað iðnmenntuðu fagfólki sem atvinnulífið tekur fagnandi. Setjum iðnnám í öndvegi Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sam- taka iðnaðarins Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti Sýslumannsins á höfuð- borgarsvæðinu vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram fara 26. maí 2018 fer eingöngu fram í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi á 2. hæð vesturenda frá og með föstudeginum 11. maí 2018. Þar verður opið alla daga milli kl. 10:00 og 22:00. Lokað verður hvítasunnudag 20. maí 2018. Á kjördag laugardaginn 26. maí verður opið milli kl. 10:00 og 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Þórólfur Halldórsson Harpa er hús sem er fyrst og fremst byggt utan um tónlist og fyrir þá sem vilja koma og njóta hennar í öllum sínum fjölbreyti-leika. Það er tilgangur þessa húss og þess vegna er starfsemin hluti af því sem gerir okkur að þjóð, rétt eins og eitthvað jafn óáþreifanlegt og ljóðlist og tungumálið. Þjóðin þarf því að finna að Harpa tilheyrir henni ef ríkja á sátt um starfsemina og kostnaðinn sem fylgir. Það hefur því verið raunalegt að fylgjast með for- stjóra og stjórn Hörpu og framgangi þeirra í málefnum þjónustufulltrúa hússins. Fólksins sem er í senn lægst launuðu starfsmenn hússins og andlit þess gagnvart gestum, sem hefur ávallt verið til fyrirmyndar. Það stóð þó ekki í vegi fyrir stjórn og framkvæmda- stjóra þegar farið var út í að bæta á þetta fólk starfs- skyldum og lækka laun þess. Var þetta gert til að takast á við rekstrarvanda en í ljós hefur komið að það voru einungis þessir lægst launuðu starfsmenn sem þurftu að taka á sig bæði kjaraskerðingu og aukna verkskyldu. Ekki var hreyft við launum millistjórnenda en nýr forstjóri Hörpu, Svanhildur Konráðsdóttir, sem leiddi aðgerðirnar hafði verið ráðin til starfa með einhvers konar framtíðarvilyrði um yfir 20% launahækkun þegar stjórnin væri laus undan ákvörðunum kjararáðs. Ekki stóð á þeirri hækkun aðeins tveimur mánuðum síðar. Stjórn Hörpu og forstjóri geta hins vegar þakkað þjónustufulltrúunum og stéttarfélagi þeirra VR fyrir að þau brutu ekki lög í umræddum sparnaðaraðgerðum. Eftir mikla og réttmæta gagnrýni á þessa framgöngu forstjóra og stjórnar hefur Svanhildur Konráðsdóttir farið þess á leit við stjórn Hörpu að laun hennar verði lækkuð afturvirkt frá 1. janúar 2018 til samræmis við ákvörðun kjararáðs. Ekki er þó annað að sjá en að standa eigi við launalækkun þjónustufulltrúanna og í ljósi þess sem á undan er gengið er það trauðla nóg til þess að lægja öldurnar. Það er búið að ganga yfir þjónustufulltrúana á skítugum skónum og senda frá sér yfirlýsingar með yfirklóri og útúrsnúningum. Á um það bil sama tíma og Svanhildur var að biðja um launalækkun á Facebook var Þórður Sverrisson, stjórnarformaður Hörpu ohf., í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar hélt hann því fram að málið væri byggt á „falsfrétt“ og vísaði þar til fréttar Fréttablaðsins um málið. Það er rétt að taka fram að Þórður var sjálfur viðmælandi blaðamanns í umræddri frétt og staðfesti þær tölur sem þar komu fram. Þetta bendir til þess að nú eigi að grípa í það haldgóða íslenska hálmstrá að þetta sé fjölmiðlum að kenna. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Almenningur sem eigandi hússins hlýtur að gera kröfu til þess að fulltrúar hans hjá ríki og borg láti nú málið til sín taka. Málið snýst ekki einvörðungu um launahækkun forstjóra og launalækkun þjónustufull- trúa á sama tíma, heldur um traust til þess að stýra þessari mikilvægu sameign landsmanna. Því trausti fylgir ábyrgð sem felur í sér opna og vammlausa stjórn- sýslu sem almenningur getur borið virðingu fyrir og er starfsemi hússins til heilla. Yfirklór Botnlaus fyrirhöfn Viðhaldsdýpkun Landeyja- hafnar hefur frá árinu 2011 kostað ríkissjóð rúmlega tvo og hálfan milljarð króna. Þetta kom fram í svari sam- gönguráðherra við fyrirspurn Björns Levís Gunnarssonar. Landeyjahöfn, sem átti að vera hin mesta samgöngubót hefur reynst hins vegar nánast botnlaus hít og dæla þarf burt sandi ótt og títt svo blessað mannvirkið sé nothæft. Það verður að teljast réttnefni hjá gárungum sem kallað hafa hana Fyrirhöfn frá því hún var opnuð. Fjölskylduframboð Guðlaug Kristjánsdóttir klauf sig eftirminnilega úr Bjartri framtíð á dögunum og setti saman nýtt framboð. Hún sem stofnandi framboðsins hefur ekki sótt vatnið yfir lækinn ef svo má að orði komast við að raða á listann. Í 10. sæti er bróðir þess sem er í 3. sæti og í 11. sæti er eigin- maður þess sem skipar það fimmta. Nú í 12. sæti er móðir Guðlaugar og í 13. er sonur hennar. 15. sæti skipar móðir konunnar í þriðja sæti og í 17. sæti er eiginkona þess sem situr í öðru sæti. Í heiðurs- sætinu er svo dóttir 11. og 5. sætis. Þetta þarf ekki að vera flókið. sveinn@frettabladid.is 9 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R8 s K o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð SKOÐUN 0 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 8 -7 B 0 8 1 F B 8 -7 9 C C 1 F B 8 -7 8 9 0 1 F B 8 -7 7 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.