Fréttablaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 4
Norrænu menn-
ingarmálaráðherr-
arnir eru ákveðnir í að stuðla
að breytingum í
þessum efnum.
Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og
menningarmála-
ráðherra
HUGINN MUNINN
SKYRTUR
NÝ
VEFVERSLUN
www.huginnmuninn.is
STJÓRNMÁL Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, undirritaði í gær sameigin-
lega yfirlýsingu um aðgerðir vegna
#metoo-byltingarinnar, ásamt
öðrum menningarmálaráðherr-
um Norðurlanda. Lilja er stödd á
fundi þeirra í Malmö í Svíþjóð og
greindi meðal annars frá aðgerðum
íslenskra stjórnvalda í kjölfar frá-
sagna kvenna af kynferðislegri
áreitni og ofbeldi á fundinum.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að norræna upplýsingaveitan
um kynjafræði hafi kortlagt laga-
umhverfi kynferðislegrar áreitni og
vernd gegn henni í atvinnulífinu. Í
grunninn sé viðfangsefnið einfalt;
kynferðisleg áreitni sé ólögleg og
hvarvetna á Norðurlöndum hvíli sú
skylda á vinnuveitendum að koma í
veg fyrir og bregðast við kynferðis-
legri áreitni. Löggjöf Norðurlanda
sé skýr en ljóst sé að eftirfylgni með
lögunum hafi víða verið ábótavant.
„Norrænu menningarmálaráð-
herrarnir eru ákveðnir í að stuðla
að breytingum í þessum efnum.
Jafnrétti er ein af forsendunum
þeirrar velgengni sem Norður-
löndin njóta og við í norrænu ráð-
herranefndinni um menningarmál
tökum mið af jafnréttissjónarmið-
um í öllu okkar starfi. Ég er þeirrar
skoðunar að við getum dregið lær-
dóm hvert af öðru og yfirlýsingin
er liður í að auka samstarf á þessu
sviði,“ segir Lilja.
Á fundinum samþykktu ráðherr-
arnir að fela skrifstofu ráðherra-
nefndarinnar að undirbúa áfram-
haldandi aðgerðir sem feli meðal
annars í sér vernd gegn kynferðis-
legri áreitni og ofbeldi og aukið
öryggi á starfsvettvangi menningar,
íþrótta og fjölmiðla. – ósk
Ráðherrar Norðurlandanna sameinast
gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi
HAFNARFJÖRÐUR Klofningurinn í
Bjartri framtíð í Hafnarfirði er enn
til umræðu í bæjarstjórn og eru
hávaðafundir í bæjarstjórn orðnir
regla frekar en undantekning.
Fyrrverandi bæjarfulltrúar Bjartr-
ar framtíðar, sem eru í meirihluta-
samstarfi með Sjálfstæðisflokki,
sögðu sig úr flokknum fyrr í vor og
eru þeir í hringiðu átakanna. Annars
vegar vegna umdeilds veikindaleyfis
Guðlaugar Kristjánsdóttur og snögg-
legrar endurkomu, með tilheyrandi
brotthvarfi varamannsins Borg-
hildar Sturludóttur, en milli þeirra
tveggja eru litlir kærleikar. Hins
vegar vegna kjörgengis hins bæjar-
fulltrúa Bjartrar framtíðar, Einars
Birkis Einarssonar, sem er fluttur úr
bænum og býr í Kópavogi. Deilurnar
náðu hámarki þegar Borghildi var
vikið úr skipulags- og byggingaráði
bæjarins í síðasta mánuði líkt og
Fréttablaðið greindi frá.
Borghildur vísaði þessum ágrein-
ingsmálum til ráðuneytis sveitar-
stjórnarmála og hefur ráðuneytið
nú óskað skýringa frá bæjarstjórn.
Á hávaðafundi bæjarstjórnar fyrr í
vikunni var svarbréf til ráðuneytis-
ins afgreitt en þó þannig að meiri-
hluti bæjarstjórnar klofnaði. Þrír
samþykktu svarbréfið en sex sátu
hjá, þar á meðal þrír Sjálfstæðis-
menn.
Í svarbréfinu segir meðal ann-
ars að forföll Guðlaugar hafi fyrir
mistök aldrei komið formlega til
afgreiðslu í bæjarstjórn, heldur ein-
ungis bókun um að varamaðurinn
Borghildur taki sæti í bæjarstjórn í
fjarveru Guðlaugar. Þar af leiðandi
hafi ekki formlega verið um veik-
indaleyfi að ræða og Guðlaug því
getað komið fyrirvaralaust til baka.
Í svarinu er vísað til yfirlýsingar
Guðlaugar sem fer afar gagnrýnum
orðum um fyrrverandi félaga sína
í Bjartri framtíð og hefur þeim
orðum verið svarað með yfirlýsingu
frá Borghildi og Pétri Óskarssyni,
félaga Borghildar í Bjartri framtíð,
sem vísa gagnrýni Guðlaugar til
föðurhúsanna og segja stopul og
erfið samskipti fyrst og fremst mega
rekja til fjarveru Einars Birkis eftir
að hann flutti úr bænum og frum-
kvæðisleysis Guðlaugar sem oddvita
bæjarmálahóps flokksins.
Ekki liggur fyrir hvenær ráðu-
neytið tekur afstöðu til þessara
ágreiningsefna. – aá
Ekkert lát á ósamlyndi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Guðlaug Krist-
jánsdóttir,
bæjarfulltrúi
Bjartrar framtíðar
í Hafnarfirði.
KJARAMÁL Meðalhækkun fyrir verk
samkvæmt nýjum rammasamningi
sjálfstætt starfandi ljósmæðra í
heimaþjónustu við Sjúkratrygg-
ingar Íslands (SÍ) er 16,5 prósent.
Algengustu liðirnir samkvæmt
samningnum hækka um sem nemur
rúmum tíu prósentum.
Sjálfstætt starfandi ljósmæður
lögðu niður störf þann 23. apríl en
samningur þeirra við SÍ hafði runn-
ið út í febrúar. Samkomulag náðist
þann 27. apríl en það var nýlega birt
á heimasíðu SÍ.
Samkvæmt samkomulaginu
hækkar einingaverð um 4,4 prósent
úr 283,5 krónum á einingu upp í 296
krónur. Fyrir hverja vitjun fá ljós-
mæðurnar greitt ákveðið margar
einingar en þær eru mismunandi
eftir því hvort um heima- eða keis-
arafæðingu er að ræða eða eftir því í
hvaða heilsufarsflokk sængurkonan
fellur hverju sinni. Fyrir vitjun nú
fást 10 þúsund krónur hið minnsta.
Á samningnum er einnig að finna
lið fyrir heimafæðingar en langflest-
ar einingar fást fyrir slíka þjónustu.
„Fyrir hverja vitjun er áætluð
um tveggja tíma vinna. Hver vitjun
tekur frá klukkustund og upp í tvær
og síðan fylgir pappírsvinna, skil á
blóðprufum, akstur og ýmislegt til-
fallandi,“ segir Arney Þórarinsdóttir,
sjálfstætt starfandi ljósmóðir
115 ljósmæður eru aðilar að
rammasamningnum. Samkvæmt
svari SÍ við fyrirspurn Fréttablaðs-
ins eru virkustu ljósmæðurnar að
fara í um tvær vitjanir dag hvern
og meðalfjöldi eininga á síðasta ári
var 7.017. Umreiknað yfir í krónur
nam það tæpum tveimur milljónum
Meðalhækkun sjálfstæðra
ljósmæðra var 16,5 prósent
Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands við sjálfstætt starfandi ljósmæður var nýlega birtur. Um lág-
markshækkun var að ræða segir aðili að samningnum. Ljósmæður þurfi að vinna ansi mikið til að vera
með einhver laun. Stærstur hluti ljósmæðra sem starfa samkvæmt samningnum gerir það samhliða öðru.
✿ Ljósmæður, heildarupphæð á ársgrundvelli
10.000.000
9.000.000
8.000.000
7.000.000
6.000.000
5.000.000
4.000.000
3.000.000
2.000.000
1.000.000
0
1 5 9 13 17 21 25 29 33 37 41 45 49 53 57 61 65 69 73 77 81 85 89 93 97 101 105 109 113
samkvæmt eldri samningi en tæpri
2,1 milljón með hinu nýja.
Stór hluti þeirra sem starfa á
samningnum eru einnig í öðru
starfi, ýmist á LSH, heilsugæslum
eða í mæðravernd. Slíkt endurspegl-
ast mjög í dreifingu á einingafjölda
þeirra. Þær fjörutíu ljósmæður sem
unnu sér inn fæstar einingar fengu
allar minna en milljón krónur fyrir
síðasta ár. Hæst launaða ljósmóðir
rammasamningsins fékk aftur á
móti tæpar níu milljónir.
„Við erum flestar einyrkjar. Um
verktakagreiðslur er að ræða en
þjónustan er ekki virðisaukaskatt-
skyld. Reiknað endurgjald er á að
giska tæplega sjötíu prósent af
heildarupphæðinni og af því fer
hluti í skatta, lífeyrissjóð og félags-
gjöld. Það er því ekki mikið sem eftir
stendur,“ segir Arney.
Þá segir Arney algengt að ýmis-
legu sé bætt við þjónustu þeirra
sem ekki er greitt fyrir samkvæmt
samningnum. Sem dæmi um slíkt
nefnir hún blóðprufur en ekki fáist
greitt fyrir þær. Akstur í og úr vitjun
fæst almennt ekki greiddur og þá
þarf einnig að aka blóðprufum úr
vitjun og á spítala til rannsóknar.
„Við þurfum að vinna ansi mikið
til að vera með einhver laun. Þessi
breyting nú var aðeins það lág-
mark sem við gátum sætt okkur
við. Vonandi verður meiri breyting
á samningnum næst,“ segir Arney.
joli@frettabladid.is
Þessi breyting nú
var aðeins það
lágmark sem við gátum sætt
okkur við. Vonandi verður
meiri breyting á samningn-
um næst.
Arney Þórarinsdóttir, sjálfsætt
starfandi ljósmóðir
Tekjudreifing ljósmæðra á rammasamningnum tímabilið febrúar 2017 til janúar 2018
SLYS Hvalfjarðargöngunum var lokað
um stund í gær vegna áreksturs.
Orsök árekstursins var að bifreið
var ekið niður göngin úr norðri á
vitlausri akrein.
Ein akrein er í göngunum fyrir
ökumenn sem eru á suðurleið. Tvær
akreinar eru aftur á móti við norður-
enda þeirra fyrir þá sem eru að koma
úr suðri. Þetta vafðist fyrir ökumanni
í gær sem ók gegn akstursstefnu á
miðreininni og lenti þar framan á
sendibifreið. Ökumenn sakaði ekki.
Laust eftir klukkan sex í gærkvöld
var slökkvilið kallað til eftir að eldur
kom upp í bifreið við norðurenda
ganganna. Bifreiðin ofhitnaði með
fyrrgreindum afleiðingum. Fernt var
í bílnum og komust þau úr honum
án meiðsla. Bifreiðin varð alelda og
er ónýt. – jóe
Slys í göngunum
Af vettvangi slyssins. MYND/SPÖLUR
SAMGÖNGUR Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu mun hefja að sekta
fyrir notkun nagladekkja frá og með
þriðjudeginum 15. maí næstkom-
andi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Sektatímabilið er mánuði seinna
á ferðinni þetta árið en vant er en
ástæðan fyrir því er hret sem gerði
í lok apríl.
Í tilkynningu lögreglunnar er
minnt á að sektir fyrir notkun nagla-
dekkja fjórfölduðust um síðustu
mánaðamót. Ökumenn negldra bíla
eiga því von á 20 þúsund króna sekt
á hvern hjólbarða í stað 5 þúsund
króna áður. – jóe
Byrja að sekta
næsta þriðjudag
1 1 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
E
-0
C
B
C
1
F
B
E
-0
B
8
0
1
F
B
E
-0
A
4
4
1
F
B
E
-0
9
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K