Fréttablaðið - 11.05.2018, Side 15
GOLF Atvinnukylfingurinn Guðrún
Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum
Keili keppir þessa dagana á LETA-
mótaröðinni, þeirri næststerkustu
í Evrópu en hún mun ásamt Val-
dísi Þóru Jónsdóttur, GL, reyna við
úrtökumótið fyrir Opna bandaríska
meistaramótið á mánudaginn.
Guðrún sem lék með Fresno State
háskólanum í bandaríska háskóla-
golfinu gerðist atvinnukylfingur í
vetur og er þriðji íslenski kvenkylf-
ingurinn sem gerist atvinnukylfingur
á síðustu fimm árum. Var hún valin
í Evrópuúrval áhugakylfinga stuttu
áður en hún gerðist atvinnukylfingur
og endaði í 4. sæti á Evrópumóti
áhugakylfinga í fyrra.
Á hún ekki langt að sækja golf-
hæfileikana en pabbi hennar, Björg-
vin Sigurbergsson, er fjórfaldur
Íslandsmeistari í golfi. Guðrún, sem
er ríkjandi Íslandsmeistari í holu-
keppni, komst í gegnum niðurskurð-
inn í fyrsta sinn um síðustu helgi í
Sviss en henni fannst gott að ná að
brjóta ísinn þar á öðru móti sínu á
mótaröðinni.
„Þetta hefur gengið bara nokkuð
vel hingað til, þetta er skemmtilegt
og öðruvísi verkefni en ég hef lært
heilmargt á þessum fáu vikum og ég
á enn eftir að læra heilan helling,“
segir Guðrún um fyrstu vikurnar sem
atvinnukylfingur.
„Markmiðið er auðvitað alltaf að
ná í gegnum niðurskurðinn og ég
spilaði heilt yfir bara nokkuð vel
þótt að það sé margt sem ég hefði
geta gert betur. Nú er ísinn brotinn
og vonandi heldur þetta áfram. Ég er
búin að vera að slá vel undanfarnar
vikur en það munar um hvert högg í
lok móts.“
Guðrún ræddi við Valdísi í aðdrag-
anda þess að tímabilið byrjaði en
þær léku saman á móti á dögunum
og eru báðar að fara í úrtökumót
fyrir eitt af fimm risamótum ársins
eftir helgina.
„Við vorum báðar að spila á
fyrsta mótinu mínu í Frakklandi
og það hjálpaði heilmikið að vera
með henni, hún vissi nákvæmlega
hvernig allt saman gekk og það var
gott að hafa hana,“ segir Guðrún sem
segir hugarfarið breytt sem atvinnu-
kylfingur.
„Ég er að spila golf eins og ég hef
verið að gera síðustu ár en ég er að
spila fyrir sjálfa mig og með því
kemur meiri pressa. Þetta eru hlutir
sem maður þarf að læra og það sem
fylgir því að vera atvinnukylfingur.“
Hún var afar spennt fyrir því að
keppa í úrtökumóti með möguleika
á að komast á fyrsta risamótið á ferl-
inum en það gæti farið svo að Ísland
ætti þrjá kylfinga á mótinu, Valdís og
Guðrún gera atlögu á úrtökumótinu
en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
verður meðal kylfinga.
„Fyrst og fremst er ég spennt að
eiga þennan möguleika. Þetta verða
tveir hringir á einum degi og maður
verður bara að gefa í og sjá hvað ger-
ist. Ég lék oft tvo hringi samdægurs í
skólanum svo það ætti ekki að trufla
mig en þetta verður vissulega langur
dagur og maður má ekki gleyma sér
við að fylgjast með því hvað aðrir eru
að gera,“ sagði Guðrún og bætti við:
„Það yrði frábært að komast strax á
stórmót, þetta er búið að vera draum-
ur manns í langan tíma.“
kristinnpall@frettabladid.is
Q7 e-tron
Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra
ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við.
5
á
ra
á
by
rg
ð
fy
lg
ir
f
ól
ks
bí
lu
m
H
EK
LU
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is
10.420.000 kr.Verð frá
Selfoss - KR 0-1
0-1 Mia Celestina Annete Gunter (38.).
Nýjast
Pepsi-deild kvenna
FÓTBOLTI Hjörtur Hermannsson og
félagar í Brøndby eru danskir bikar-
meistarar eftir 3-1 sigur á Silkeborg
á Parken í gær. Lék Hjörtur allan
leikinn en þetta er fyrsti titill hans
hjá Brøndby á öðru tímabili hans í
herbúðum danska félagsins.
Brøndby lenti undir um
miðbik fyrri hálfleiks
en náði að snúa leikn-
um sér í hag og Kamil
Wilczek innsiglaði
sigurinn með
öðru marki sínu
og þriðja marki
Brøndby undir
lok venjulegs
leiktíma.
Hið sögufræga
félag Brøndby-
hefur verið í
m i k i l l i l æ g ð
u n d a n f a r i n n
áratug en þetta er
fyrsti titill félags-
ins í tíu ár eða
allt frá síðasta
bikarmeistara-
titli 2008. – kpt
Bikarmeistari í
Danmörku
Guðrún Brá skoðar flötina á Íslandsmótinu í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Hef lært margt á stuttum tíma
og á eftir að læra heilan helling
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Hún komst í gegnum niður-
skurðinn í fyrsta sinn á LETA-mótaröðinni um síðustu helgi og verður í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska
meistaramótið á mánudaginn. Hún segir að á þessu stigi verði kylfingar að hugsa aðeins um sjálfa sig.
Hjörtur í
leik með
Bröndby.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F Ö S T U D A G U R 1 1 . M A Í 2 0 1 8
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
E
-2
5
6
C
1
F
B
E
-2
4
3
0
1
F
B
E
-2
2
F
4
1
F
B
E
-2
1
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K