Fréttablaðið - 11.05.2018, Qupperneq 16
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Árnadóttir
Sólvöllum 15, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi, fimmtudaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 15. maí kl. 14.00.
Bárður K. Vigfússon
Brynja Ágústsdóttir
Gestur R. Bárðarson Erna Steina Guðmundsdóttir
Kristinn M. Bárðarson Gerða Arnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Magdalena Thoroddsen
Aflagranda 40, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 14. maí kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Halldóra J. Þorvarðardóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Þ. Sigurðardóttir
frá Slitvindastöðum í Staðarsveit,
lengst af til heimilis í Ólafsvík,
lést á Hrafnistu, Sólteigi, miðvikudaginn
18. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Hrafnistu, Vífilsstaða og Landakots fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Gigtarfélagið.
Una Jóna Sigurðardóttir
Guðlaugur Kr. Sigurðsson Anna María Jónsdóttir
Kristín G. Sigurðardóttir Bjarni Arnarson
Valdimar G. Sigurðsson Rannveig H. Kristinsdóttir
Níels P. Sigurðsson Hrefna G. Kristmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Jóns Inga Ragnarssonar
málarameistara.
Hjartans þakkir til Breiðabliks fyrir stuðninginn og
líknardeildar Landspítalans fyrir hlýju og góða umönnun.
Alda Sveinsdóttir
Ragnar Jónsson
Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir Per-Arne Svensson
Linda Dröfn Jónsdóttir Örn Steinar Arnarson
og fjölskyldur. Sýningin Kristján og Loji umpotta verður opnuð í Listasal Mosfells-bæjar í dag klukkan 16.
Sýningin er hluti af hátíðinni List án
landamæra og er samsýning Kristjáns
Ellerts Arasonar og Loja Höskuldssonar.
Kristján Ellert Arason er fæddur árið
1958. Fyrstu ár ævi sinnar ólst hann
upp í Mosfellssveit en flutti síðar til
Reykjavíkur. Hann hefur stundað nám
við Stýrimannaskólann, Höfðaskóla og
Öskjuhlíðarskóla. Síðustu níu ár hefur
hann unnið að myndlist á vinnustofum
Sólheima. Í list sinni hefur Kristján Ellert
unnið mest með útsaum og hefur hann
sýnt verk sín víða. Vandvirkni einkennir
handbragð Kristjáns Ellerts, hann saumar
út lítil varfærnisleg saumspor og vinnur
lengi að hverri mynd.
Loji Höskuldsson fæddist árið 1987 í
Reykjavík. Hann útskrifaðist úr mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands árið 2010.
Í list sinni kannar hann hefðbundnar og
nýjar leiðir í útsaumi, tækni sem hann
hefur þróað út frá mömmu sinni, sem er
atvinnusaumakona og meistari í útsaumi.
Loji hefur tekið þátt í fjölda samsýninga
hér á landi og haldið einkasýningar. Við-
fangsefni verka hans eru fengin úr hvers-
dagsleikanum, svo sem plöntur og ávextir
og minna stundum á verk flæmsku end-
urreisnarmeistaranna.
Frá haustinu 2017 hafa þessir tveir
listamenn unnið að verkum fyrir sýning-
una Kristján og Loji umpotta.
Listamennirnir hafa þó einungis hist
tvisvar þessa átta mánuði sem þeir hafa
unnið saman þar sem Loji er búsettur
í Svíþjóð. Samvinnan hefur þó gengið
prýðilega og hefur orðið að nokkurs
konar leik. Þannig saumar annar út hluta
myndarinnar, til dæmis blómapottinn
eða blómið, og sendir hinum, sem klárar
myndina. Það er erfitt fyrir áhorfandann
að sjá hvor hefur saumað hvað en Krist-
ján og Loji eru hálfgerðir listabræður.
Báðir vinna þeir útsaumsverk á brúnan
striga, litaval í verkum þeirra er svipað,
þeir hafa óbilandi áhuga á mismunandi
útsaumsaðferðum og sækja innblástur
sinn í nærumhverfið. Afrakstur samvinn-
unnar er þrettán nýjar plöntur sem fá að
blómstra á hátíðinni List án landamæra
í ár. Sýningin verður opin til 15. júní og
er opin á opnunartíma Bókasafns Mos-
fellsbæjar.
benediktboas@frettabladid.is
Sauma út á víxl og sækja
innblástur í nærumhverfi
Kristján Ellert Arason og Loji Höskuldsson opna sýningu sína, Kristján og Loji umpotta, í
dag í Listasal Mosfellsbæjar. Hafa unnið að verkunum í átta mánuði en aðeins hist tvisvar
sinnum. Samvinna þeirra hefur þó gengið prýðilega og orðið að nokkurs konar leik.
Loji Höskuldsson fæddist árið 1987 í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkisatburðir
1721 Kötlugos hefst með jarðskjálfta og miklum drunum
sem heyrðust allt norður í Eyjafjörð.
1911 Knattspyrnufélagið Valur í Reykjavík stofnað.
1912 Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn stofnað.
1930 Skógræktarfélag Eyfirðinga stofnað og hét þá Skóg-
ræktarfélag Íslands.
1955 Kópavogur verður kaupstaður.
1975 Um 75.000 manns fagna lokum Víetnamstríðsins í
Central Park í New York.
1998 Fyrstu evrumyntirnar slegnar í Pessac í Frakklandi. Þær
voru síðan bræddar aftur.
2015 Málverkið Les Femmes d’Alger eftir Pablo Picasso selst
á 179,3 milljónir dala á uppboði hjá Christie’s í New York. Við
sama tækifæri fer höggmynd Alberto Giacometti, L'Homme
au doigt, á 141,3 milljónir dala.
Kópavogur er sveitarfélag og bær
á höfuðborgarsvæðinu. Bærinn
dregur nafn sitt af voginum sunnan við
Kársnes. Þar var Kópavogsfundurinn
haldinn árið 1662, en allt fram á 20. öld
voru í Kópavogi einungis nokkrir bú-
staðir og býli og uppbygging hefst þar
ekki fyrr en í kreppunni miklu upp úr
1930. Svo var það á þessum degi árið
1955 að Kópavogur varð kaupstaður,
en hafði sjö árum áður orðið hreppur
við aðskilnað frá Seltjarnarneshreppi.
Saga Kópavogs sem bæjarfélags er því
ekki löng. Fyrst var kosið í bæjarstjórn
í október 1955 eftir að kaupstaðar-
réttindi tóku gildi í maí það ár. Líkt og í
öllum þrennum hreppsnefndarkosning-
unum hélt meirihluti Framfarafélagsins
um stjórnvölinn eftir það undir forystu
Finnboga Rúts Valdimarssonar og það
var ekki fyrr en 1962 að breyting varð á
þegar Framsóknarflokkurinn myndaði
meirihluta með Framfarafélaginu og
svo síðar Sjálfstæðisflokkurinn.
Undir lok 20. aldar og í byrjun 21. aldar
hófst mikil uppbygging í Kópavogi.
Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 1 . M A Í 1 9 5 5
Kópavogur verður kaupstaður
Afrakstur samvinnunnar
er þrettán nýjar plöntur sem
fá að blómstra á hátíðinni List
án landamæra í ár.
1 1 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
E
-2
A
5
C
1
F
B
E
-2
9
2
0
1
F
B
E
-2
7
E
4
1
F
B
E
-2
6
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K