Fréttablaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 20
Ef einn eða fleira
verða til að mynda
fyrir áfalli/áföllum er
jafnvægi fjölskyldunnar
ógnað. Það hefur ekki
aðeins áhrif á þann sem
fyrir áfallinu verður, það
getur haft áhrif á alla
fjölskylduna,
Hafdís Þorsteinsdóttir
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Fjölskyldufræðingarnir Hafdís Þorsteinsdóttir og Ragnhildur Birna Hauksdóttir verða með
áhugaverðan fyrirlestur sem nefnist
Fjölskyldan í kjölfar áfalla, 17. maí
hjá Lausninni. Hafdís segir að þegar
komið er á fullorðinsár geti haft
heilmikið að segja hvernig einstakl-
ingur bregst við áföllum, hvort sem
það eru áföll frá fyrri tíð sem aldrei
hefur verið unnið úr eða eitthvað
sem hefur gerst nýlega. „Aukinn
skilningur og þekking á áhrifum
áfalla er mikilvægur og getur
hjálpað okkur við að vinna úr þeim
og auðveldað okkur að bæta sam-
skipti jafnt innan fjölskyldunnar
sem utan,“ segir hún.
Mismunandi áföll
„Áföll geta birst í ýmsum myndum
og einskorðast ekki endilega við
einn tiltekinn atburð. Skilnaður, ást-
vinamissir, atvinnumissir, gjaldþrot
eða andlegt og líkamlegt ofbeldi eru
meðal þekktari áfalla en einnig geta
langvinn veikindi, slys, vanvirkar
heimilisaðstæður eða rofin tengsl
á uppvaxtarárum haft mikil áhrif
á hegðun okkar og líðan,“ útskýrir
Hafdís. „Þegar við verðum fyrir áfalli
verða í raun til eðlileg viðbrögð við
óeðlilegum aðstæðum. Viðbrögðin
geta verið sterk, bæði tilfinningalega
og líkamlega. Við aðlögumst engu
að síður þeim aðstæðum sem okkur
mæta. Það er eðlilegt að hafa sterk
tilfinningaleg eða líkamleg við-
brögð í kjölfar óþægilegra atburða.
Í flestum tilfellum minnka þessi
viðbrögð með náttúrulegu bataferli
líkamans en oft getur erfið reynsla
haft veruleg og langvarandi áhrif á
samskipti og virkni í fjölskyldum,
við maka, vini eða samstarfsfélaga,“
bendir Hafdís á.
Hefur áhrif á alla
„Til að fjölskyldan geti farið saman
í gegnum þrengingar þurfa að vera
ákveðin verkfæri sem hún býr yfir.
Af og til missir einhver tímabundna
Fjölskyldan í kjölfar áfalls
Flestar fjölskyldur upplifa einhvers konar áföll á lífsleiðinni. Misjafnt er hvernig brugðist er við eða
unnið úr þeim. Áföll geta birst í ýmsum myndum og einskorðast ekki við einn tiltekinn atburð.
Áföll geta birst í margvíslegum myndum. Skilnaður, ástvinamissir, atvinnumissir, gjaldþrot eða andlegt og líkamlegt
ofbeldi eru meðal þekktari áfalla en einnig langvinn veikindi, slys og vanvirkar heimilisaðstæður.
Ragnhildur Birna Hauksdóttir fjöl-
skyldufræðingur.
Hafdís Þorsteinsdóttir, fjölskyldu-
fræðingur hjá Lausninni.
getu til að blómstra en um leið gæti
hinn sami fengið rörsýn sem hindrar
hann í að sjá hvað hann hefur, hvað
hann á, hvaða styrk hann býr yfir og
hversu fjölskylda hans er dýrmæt.
Rörsýnin hefur áhrif á alla aðra í fjöl-
skyldunni. Ef einn eða fleira verða
til að mynda fyrir áfalli/áföllum er
jafnvægi fjölskyldunnar ógnað. Það
hefur ekki aðeins áhrif á þann sem
fyrir áfallinu verður, það getur haft
áhrif á alla fjölskylduna,“ segir Haf-
dís en þessi líðan verður sérstaklega
tekin fyrir á fyrirlestrinum.
„Við Ragnhildur munum fara
yfir helstu birtingarmyndir og
afleiðingar áfalla, hvernig við getum
lært að þekkja einkennin og fundið
leiðir til að vinna úr þeim og bætt
þannig líðan okkar, tengslamyndun
og samskipti. Í fjölskyldum geta ein-
staklingarnir brugðist við áföllum
á ólíkan hátt. Að skilja viðbrögð
annarra og áhrif þeirra á samskiptin
í fjölskyldunni getur hjálpað henni
að takast á við erfiðleikana og komið
í veg fyrir misskilning, sundrun í
samskiptum og önnur vandamál.
Neikvæður fjölskylduarfur eða áföll
fyrri kynslóða getur haft áhrif á jafn-
vægi uppalenda sjálfra gagnvart því
að mæta erfiðum stundum. Minn-
ingar og áföll sem myndast snemma,
týnast oft í gegnum bælingu og
tengslarof. Það sem situr eftir geta
verið tilfinningaleg viðbrögð við
sársaukafullu atviki, ómeðvituð
bæling tilfinninga. Aukinn skiln-
ingur og þekking á áhrifum áfalla er
mikilvægur og getur hjálpað okkur
að vinna úr þeim og auðveldað
okkur að bæta samskipti jafnt innan
fjölskyldunnar sem utan.
Getur styrkt böndin
Áföll sem einstaklingar innan
fjölskyldunnar verða fyrir hafa óhjá-
kvæmilega áhrif á aðra fjölskyldu-
meðlimi með einum eða öðrum
hætti. Það er algengur misskilningur
að það dugi að taka þann veika í fjöl-
skyldunni og veita honum einstakl-
ingsmeðferð. Þetta er ekki svona
einfalt. Oftast þarf líka að sinna
þeim sem næst honum standa. Það
þarf stundum að aðstoða fjölskyldur
við að breyta vanvirkri hegðun
með heilbrigðum valkostum og
leggja áherslu á vönduð tengsl eða
hegðunarmynstur. Foreldri sem á til
dæmis við áfengisvanda að etja er
ekki einangrað vandamál, það hefur
áhrif á alla í fjölskyldunni, bæði
maka og börn.
Í hnotskurn er markmið fjöl-
skyldumeðferðar að aðstoða fjöl-
skylduna við að vinna saman að því
markmiði að hafa góð samskipti,
auka traust innan fjölskyldunnar og
draga úr spennu og streitu. Í aðal-
atriðum minni átök, meiri lausnir.
Fjölskyldumeðlimir sem upplifa
sameiginlega erfiða atburði verða oft
tengdari og meta hver annan meira
eftir áfallið. Jafnvel þótt þú skiljir
ekki nákvæmlega hvað aðrir í fjöl-
skyldunni eru að upplifa eða að fara
í gegnum þá er mikilvægt að vera
meðvitaður um algeng viðbrögð
og áhrif þeirra á fjölskyldulífið. Það
getur hjálpað öllum að takast betur
á við atburðina til lengri tíma litið,“
segir Hafdís.
Fyrirlesturinn verður 17. maí en
nánari upplýsingar eru á lausnin.is.
94
Leðurjakkar og leðurbuxur
fyrir bæði dömur og herra
Allt fyrir hjólafólk
3-4 gerðir af hönskum
Kevlar gallabuxur, gott úrval
Góð pakkaverð
ledur.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
E
-1
1
A
C
1
F
B
E
-1
0
7
0
1
F
B
E
-0
F
3
4
1
F
B
E
-0
D
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K