Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 25
Stórborgin London býður upp á fjölmargar verslanir sem selja notuð föt. Þær vin-
sælustu njóta mikilla vinsælda hjá
ólíkum hópum á öllum aldri allan
ársins hring enda hafa þær margar
verið starfræktar í mjög langan
tíma.
Ein sú lífseigasta og vinsælasta
er verslunin Beyond Retro sem
er á fjórum stöðum í borginni og
raunar líka í nokkrum borgum í
Svíþjóð.
Í rúmlega áratug hafa þær boðið
upp á mikið úrval af alls konar
retro fatnaði fyrir konur og karla
auk úrvals fylgihluta á borð við sól-
gleraugu, töskur, skartgripi, hatta,
bindi og belti.
Allar vörur í verslunum Beyond
Retro eru keyptar hjá góðgerðar-
samtökum, sem hafa fengið þau
gefins, eða af endurvinnslu-
stöðvum. Þessi endurvinnsla er því
um leið ein af mikilvægum tekju-
lindum viðkomandi góðgerðar-
samtaka.
Tónleikar og listasýningar
eru auk þess reglulega haldnar í
verslunum Beyond Retro og því
er óhætt að mæla með heimsókn
þangað.
Nánar á beyondretro.com.
Retro London
Jennifer Lopez var glæsileg í
Balmain-kjólnum sínum á Met Gala.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fötin frá franska lúxus tísku-húsinu Balmain sem prýddu stjörnur á Met Gala samkom-
unni síðasta mánudag verða seld
á uppboði til að safna fé fyrir góð-
gerðarsamtökin RED, sem berjast
gegn alnæmi í Afríku.
Tískuhúsið Balmain klæddi
nokkrar stórar stjörnur fyrir Met
Gala samkomuna, einn stærsta
tískuviðburð ársins, sem fór fram á
mánudagskvöld í New York. Meðal
þeirra sem klæddust fatnaði frá
Balmain voru Jennifer Lopez, sem
sló í gegn í glæsilegum og mikið
skreyttum kjól, Natasha Poly,
Juliette Binoche, Trevor Noah, Julia
Stegner og Natalia Vodianova. Nú
verður hægt að eignast föt þeirra
allra á uppboðinu.
Það er Olivier Rousteing, hönn-
unarstjóri Balmain og hönnuður
fatanna, sem stendur fyrir uppboð-
inu. Hugmyndin er að safna fé fyrir
góðgerðarsamtökin RED og um
leið að vekja athygli á starfi þeirra.
Lágmarksboð í kjól Jennifer
Lopez er um 693 þúsund krónur
og ódýrasta flíkin fer fyrir um 208
þúsund krónur að lágmarki, svo
uppboðið á væntanlega eftir að
skila ágætis upphæð til þessa góða
málefnis. Uppboðið stendur yfir til
21. maí og er að finna á vefsíðunni
ifonly.com.
Balmain-kjólar
frá Met Gala á
uppboði
Það var mikið sjónarspil að horfa á
dýra kjólinn hennar Elinu frá Eist-
landi. NORDICPHOTO/GETTY
Margar Evrópuþjóðir leggja mikinn metnað í sviðs-framkomu í Eurovision-
keppninni og kosta miklu til.
Hvort það skili söngvurum í loka-
keppnina er óvíst en það gerðist þó
með eistnesku söngkonuna Elinu
Nechayeva. Kjóllinn vakti mikla
athygli en hann mun hafa kostað
65 þúsund evrur eða rétt tæpar
átta milljónir króna. Elina fór langt
yfir kostnaðaráætlun hvað kjólinn
varðar og forsvarsmenn sjón-
varpsstöðvarinnar ERR í Eistlandi
eru ekki par hrifnir af tiltækinu.
Mætti í raun segja að örvænting
hafi brotist út þegar greint var frá
kostnaðinum við kjólinn.
Menn höfðu vonast til að eist-
neska ríkisstjórnin myndi hlaupa
undir bagga og styrkja Elinu og
sjónvarpsstöðina en ráðherrar
hafa útilokað slíkt. Aðrir mögu-
leikar til fjármögnunar hafa ekki
gengið upp. Elina hefur leitað eftir
fjárhagsaðstoð hjá kaupsýslu-
manninum David Pärnametsa en
sjónvarpsstöðin er ekki hrifin af
þeirri leið. Sem betur fer komst
Elina áfram upp úr undanúrslit-
unum í dýra kjólnum sem mun
vera annar dýrasti kjóll sem birtist
fólki á skjánum á þessu ári. Hinn er
brúðarkjóll Meghan Markle sem
mun kosta 400 þúsund sterlings-
pund eða rúmlega 55 milljónir
króna. Eistland hefur einu sinni
unnið Eurovision-keppnina en það
var árið 2001.
Næstdýrasti kjóllinn í sjónvarpi 2018?
Sumarnámskeið
Tilvalin til að kynna sér dansnám hjá JSB
Nánari upplýsingar á www.jsb.is
Skráning hafin í síma 5813730 og á jsb.felog.is
JAZZBALLETT FYRIR 6 – 8 ÁRA,
9 – 11 ÁRA OG 12 – 14 ÁRA
Tímabil: 28. maí – 20. júní.
4 vikna námskeið 2x í viku á mánudögum og
miðvikudögum.
60 mín. tímar fyrir 6 ‒ 8 ára kl. 17:30,
9 ‒ 11 ára kl. 16:30, 12 ‒ 14 ára kl. 15:30.
Verð: 14.000 kr.
JAZZ, KLASSÍSKUR BALLETT
OG NÚTÍMADANS
Tímabil: 8. – 17. ágúst.
Krefjandi dansnámskeið fyrir
framhaldsnemendur 14 ára og eldri.
Tilvalin til að koma sér af stað eftir sumarfrí.
2x 90 mín. kennslustundir á dag.
DANS– & LEIKJANÁMSKEIÐ FYRIR 3 – 5 ÁRA
Dans, leik- og sköpunargleði í fyrirrúmi.
Tímabil: 29. maí – 21. júní.
4 vikna námskeið 1x í viku á þriðjudögum eða fimmtudögum.
45 mín. tímar kl. 16:45 eða 17:30. Verð: 9.500 kr.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 1 0 . m a í 2 0 1 8
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
D
-8
C
5
C
1
F
B
D
-8
B
2
0
1
F
B
D
-8
9
E
4
1
F
B
D
-8
8
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K