Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 26
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Erna Hörn Davíðsdóttir útskrifaðist sem förðunarfræðingur frá MASK Makeup
& Airbrush Academy á síðasta
ári. Hún hefur lengi haft áhuga á
förðun og var ákveðin í að læra
fagið þegar hún hefði lokið stúd
entsprófi frá Menntaskólanum við
Sund. „Ég veit ekkert skemmtilegra
en að mála, hvort sem það er and
lit eða á blaði,“ segir Erna Hörn
brosandi en hún vinnur hjá Urban
Decay á Íslandi við sitt fag.
„Núna er í tísku að vera með
einfalda en ýkta augnförðun og
aðallitirnir eru bláir, túrkis og
appelsínugulir tónar. Svo er alltaf
klassískt að nota brúna og brons
aða liti. Varalitirnir verða í ljósum,
bleikum og brúnum tónum og svo
er flott að vera með bjarta liti yfir
sumarið, eins og órans og ferskju
liti. Þá verða kinnalitir í ferskjulit
um áberandi en þeir gefa frísklegt
útlit,“ segir Erna Hörn, sem fylgist
vel með nýjum straumum í förðun.
Ljómandi húð
Andlitsfarði, eða meik, verður
í léttari kantinum í sumar og
áhersla lögð á ljómandi og nátt
úrulegt útlit húðarinnar, að sögn
Ernu Harnar. Þá detta mattir
varalitir út og í staðinn koma
glansandi varagloss. „Sólarpúður
er alltaf vinsælt og ég mæli klár
lega með að nota það til að fá
ferskt útlit. Brúnkukrem eru líka
vinsæl, enda eru Íslendingar alltaf
að leitast eftir því að vera brúnir
og ferskir. Hins vegar má alls ekki
gleyma að vernda húðina fyrir
sólinni með góðri sólarvörn,“ segir
hún.
Til að fá frísklegt og náttúrulegt
útlit mælir Erna Hörn með að nota
góðan rakagrunn og bera síðan
andlitsfarða á húðina. „Mér finnst
fallegt að draga sólarpúður niður
með kinnbeinunum og jafnvel
Einföld en ýkt augnförðun
og bjartir litir ríkjandi
Erna Hörn Davíðsdóttir förðunarfræðingur segir bláa, túrkís og appelsínugula liti áberandi í augn-
förðuninni í sumar og ljósir, bleikir og brúnir tónar verða vinsælir í varalitum. Kinnalitirnir koma í
ferskjulitum og farðinn verður léttur og gefur húðinni ljómandi og náttúrulegt útlit.
Erna Hörn lét drauminn rætast og lærði förðun. MYNDRi/ERNiR
Erna Hörn segir nauðsynlegt að eiga gott rakakrem í snyrtiveskinu, léttan
farða, hyljara, litlaust púður, sólarpúður, kinnalit og góðan maskara. Þá eru
góðir burstar mikið þarfaþing. Svo er gott að eiga augnskuggapallettu.
setja aðeins á nefið og augnlokin.
Það kemur vel út að setja síðan
kinnalit á kinnarnar og draga
hann upp með kinnbeinunum.“
Grunnur að dagförðun
Hver er grunnurinn að góðri
dagförðun, skref fyrir skref? „Ég
byrja alltaf á að setja á mig Instant
Moisture Glow frá YSL til að veita
húðinni góðan raka. Svo set ég
one & done, léttan farða frá Urban
Decay, yfir andlitið með þéttum
farðabursta og síðan Naked skin
hyljara undir augun. Ég nota rakan
svamp til að blanda öllu vel saman.
Því næst set ég Illuminizer púður
yfir húðina til að fá góðan ljóma
og „setja“ hyljarann. Síðan nota
ég skyggingu og gef húðinni lit
með sólarpúðri, fríska hana upp
með kinnalit og set highlighter á
kinnbeinin, í augnkrókinn, aðeins
á nefið og á efri vörina. Ég fylli oft
aðeins inn í augabrúnirnar með dip
brow frá Anastasia Beverly Hills
og „festi“ þær með augnbrúnageli
frá Benefit. Ég set oft örlítið af ljós
brúnum augnskugga neðst á augn
lokin og blanda honum upp. Loks
bretti ég augnhárin og ber Helena
Rubinstein CC maskarann á þau.“
Gott rakakrem nauðsynlegt
Erna Hörn segir nauðsynlegt að
eiga gott rakakrem í snyrtiveskinu,
léttan farða, hyljara og litlaust
púður. „Það er líka gott að eiga
sólarpúður og kinnalit og einnig
góðan maskara. Góður farðabursti
er nauðsynlegur en það er líka
gott að eiga sérstakan bursta fyrir
púður, einn flatan augnskugga
bursta og einn blöndunarbursta.
Svo er líka alltaf gott að eiga eins og
eina fallega augnskuggapallettu.“
Þegar Erna Hörn er spurð
hvaðan hún fái hugmyndir að
flottri förðun segist hún leita að
innblæstri á Pinterest og Insta
gram. „Ég er búin að koma mér
upp góðu safni af hugmyndum að
flottri förðun. Ég fylgist mest með
fólki á Instagram, eins og t.d. Lindu
Hallberg, Makeup by Mario, sem er
förðunarfræðingur Kim Kardash
ian, Karen Sarahii, Manny mua,
Kylie Jenner og svo miklu fleirum. Í
mesta uppáhaldi hjá mér eru kels
ey annaf og dausell á Instagram.“
Viltu verða rekstrarfulltrúi?
Nýtt tækifæri fyrir þig!
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut
• Er langt síðan þú varst í skóla?
• Hefur þig lengi langað að drífa þig í nám en ekki þorað?
• Áttu slæmar minningar frá fyrri skólagöngu?
Vel menntaðir og áhugasamir kennarar, góð aðstaða, mikil reynsla og afslappað andrúmsloft. Þessi braut veitir mörg tækifæri á vinnumarkaði og til frekara náms.
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut er þriggja anna braut með tengingu við vinnustaði. Aðaláhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar.
Í lok námsins fá nemendur diploma sem rekstrarfulltrúi. Kennsla hefst í ágúst 2018.
Nánari upplýsingar gefur Inga Karlsdóttir, fagstjóri í síma 594 4000/8244114 eða inga.karlsdottir@mk.is
6 KYNNiNGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
D
-8
7
6
C
1
F
B
D
-8
6
3
0
1
F
B
D
-8
4
F
4
1
F
B
D
-8
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K