Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 39
Íslenskir sölufulltrúar verða á staðnum ásamt spænskum starfsmönnum Euromarina,
þeir kynna söluferlið og bjóða
skoðunarferðir til Spánar. Krist-
ján Sveinsson og Birna Guðmunds-
dóttir eru íslenskir sölufulltrúar en
þau hafa sinnt íslenskum markaði
hjá Euromarina frá árinu 2016.
„Við sinnum íslenskum markaði
fyrir Euromarina og höldum reglu-
lega kynningar hér á landi,“ segir
Kristján. „Áhersla er lögð á það hjá
Euromarina að viðskiptavinurinn
sé ánægður. Þess vegna er gaman
að segja frá því að íslenskum
fasteignakaupendum á Spáni fer
fjölgandi. Viðskiptavinir okkar eru
þverskurður Íslendinga á öllum
aldri og úr öllum stéttum. Við
höfum aðstoðað fjölda ánægðra
Íslendinga við að eignast sína
draumaeign t.d. á Costa Blanca
(Hvítu ströndinni), sem er á suð-
austurströnd Spánar í 25 mínútna
akstursvegalengd frá Alicante en
þangað er flogið beint frá Íslandi
allt árið,“ segir Kristján enn
fremur.
Sækja í gott veður og verðlag
Kristján segir að Íslendingar sæki
sérstaklega á þetta svæði og það
séu margar ástæður fyrir því.
„Verðlagið er frábært, gott veður,
góðir skólar og heilbrigðiskerfi.
Þarna er öll þjónusta til mikillar
fyrirmyndar, lifandi verslun, veit-
ingahúsamenning og skemmtilegt
mannlíf. Svæðið í kringum Torre-
vieja er Íslendingum flestum vel
kunnugt og er svæðið einstaklega
veðursælt með að meðaltali 320
daga sól á ári. Flestir sem leita til
okkar vilja öruggt svæði með heils-
ársbúsetu og iðandi lífi allt árið um
kring,“ bætir hann við.
Traust fyrirtæki
„Euromarina er stórt og vaxandi
46 ára gamalt byggingarfyrirtæki
sem byggir og selur margbreyti-
legar eignir í samræmi við ítrustu
kröfur markaðsins. Fyrirtækið býr
við traustan eigin fjárhag og hefur
staðið af sér sveiflur og kreppur án
vandræða. Fjölbreytileiki er eitt af
einkennum fyrirtækisins.
Arkitektar Euromarina aðstoða
viðskiptavini við að hanna eign að
sínum þörfum hvort heldur það er
við ströndina, í þéttbýli eða einbýli
á stórri jörð. Euromarina hefur selt
Íslendingum eignir á Spáni í 20 ár
Kynna draumaeignir á Spáni
Starfsmenn
Euromarina á
kynningarfundi
á Cabin hótel í
Borgartúni.
Hægt er að velja
um alls kyns
íbúðir, einbýlis-
hús eða raðhús
á fallegum
stöðum á Spáni.
Íbúðirnar eru í mismunandi stærðum eftir því sem hentar hverjum og einum.
með góðu orðspori. Euromarina er
einnig með á sínum snærum eigin
húsgagnaverslun, Euromarina
Home. Kaupendur eiga kost á allri
þjónustu við að innrétta og fullbúa
eignina með nettengingu, sjón-
varpsuppsetningu og svo mætti
lengi telja.
Við leggjum öll gjöld fram
þannig að viðskiptavinurinn veit
nákvæmlega hver kostnaðurinn
við kaupin eru frá upphafi,
enginn óvæntur kostnaður eða
gjöld. Einnig sýnum við fram á
hver útgjöldin verða árlega eftir
kaupin,“ segir Kristján.
Fyrirtækið Euromarina
Nokkur atriði úr byggingastefnu
Euromarina
n Euromarina notar endurnýtan-
lega orku og fyrirtækið er úrræða-
gott þegar kemur að orkunotkun
og skilvirkni en það skilar sér í
um það bil 30% orkusparnaði hjá
fasteignaeigendum.
n Byggingarnar eru með 10 ára
ábyrgð.
n Engin þörf á endurbótum, enginn
viðhaldskostnaður, þar sem við
seljum einungis nýbyggingar.
n Öll efni eru af bestu gæðum,
endingargóð og umhverfis-
væn. Byggingarnar eru sér
styrktar, burðarvirkið er steypt og
kambstál notað rétt eins og við
þekkjum hér á Íslandi.
n Húsin eru einangruð fyrir varma
og hljóði með um 7 cm þykkri
plasteinangrun.
n Framsækið fyrirtæki og ávallt
með nýjustu tækni í byggingum
sínum, sé hún til bóta.
n Euromarina ábyrgist allar smærri
innréttingar, svo sem gólfefni og
fleira í þrjú ár.
n Euromarina byggir eingöngu á
eigin afli, það þýðir að eignin er
alltaf veðbandalaus þegar hún
kemst í þínar hendur.
n Euromarina selur eingöngu nýjar
eignir með ábyrgð.
Aðstoða fólk með kaupin
Starfsfólk Euromarina hér á landi
aðstoðar fólk sem er að hugleiða
íbúðarkaup á Spáni. „Já, og meira
en það,“ segir Birna. „Við aðstoðum
fólk í öllu ferlinu og ekki síður
þegar það er búið að kaupa. Við
aðstoðum einnig við útleigu á hús-
næði sem fólk kaupir hjá okkur og
umsjón í kringum það.
Við tökum á móti fólki á
Alicante flugvelli og keyrum það
á hótel þar sem það gistir í okkar
boði í þrjár til fimm nætur. Síðan
förum við í höfuðstöðvar Euromar-
ina og skoðum hvað er í boði, bæði
eignir og hverfi. Ef fólk finnur
draumaeignina aðstoðum við
það við að opna bankareikning,
sækja um N.I.E. númer (spænska
kennitölu) og fylgjum því í gegnum
ferlið.“
Allar nánari upplýsingar er hægt að
fá í gegnum síma 690 2665. Einnig
er hægt að hafa samband við Birnu
á netfanginu birna@euromarina.es
Næsta kynning verður á hótel
Cabin, Borgartúni 32, 12. og 13.
maí kl. 14-18.
Sölufulltrúar frá
spænska bygg-
ingafélaginu
Euromarina halda
kynningarfund
á Cabin hóteli,
Borgartúni 32, um
helgina. Þar verða
kynntar fasteignir
Euromarina og
gefnar upplýs-
ingar um ferlið í
fasteignakaupum
á Spáni.
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA UM
FASTEIGNAKAUP Á SPÁNI
ALLIR VELKOMNIR!
Nánari upplýsingar gefur Birna Guðmundsdóttir á netfangið birna@euromarina.es og í síma 690 2665
OPINN KYNNINGARFUNDUR 12. OG 13. MAÍ
KL.14 - 18 Á HÓTEL CABIN Í BORGARTÚNI 32
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 1 0 . m A Í 2 0 1 8
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
D
-8
7
6
C
1
F
B
D
-8
6
3
0
1
F
B
D
-8
4
F
4
1
F
B
D
-8
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K