Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 56
Skoðaðu úrvalið á njottulifsins.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Recover Fyrir vöðva og taugar Renew Fyrir húð, hár og neglur Repair Fyrir bein og liði Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is KviKmyndir vargur HHHHH Leikstjóri: Börkur Sigþórsson Aðalhlutverk: Gísli Örn Garðars- son, Baltasar Breki Samper, Anna Próchniak, Marijana Jankovic Fyrir áratug eða svo skrifaði ég bók um nafntoguðustu vændiskonu landsins. Hún sat þá í Kvennafangels- inu í Kópavogi og afplánaði þungan dóm fyrir hórmang, ofbeldisbrot, brot gegn valdstjórninni og síðast en alls ekki síst fyrir tilraun til stórfellds innflutnings á kókaíni frá Hollandi til Íslands. Við vinnslu bókarinnar talaði ég við fullt af fólki, meðal annars fólk sem lifir og starfar í undirheimunum svokölluðu. Á meðan ég horfði á Varg rifjaðist upp fyrir mér þegar einn, sem kalla má „fagmann“, sagði við mig um fíkniefnabrölt Catalinu: „Amatörar eiga ekki að reyna að flytja inn dóp.“ Og þetta er nú eiginlega rauði þráðurinn í Vargi; amatörar reyna að flytja fíkniefni til landsins og eins og viðvaninga er háttur gera þeir röð mistaka og allt fer til helvítis. Örþrifaráð ólíkra bræðra Bræðurnir Erik og Atli hafa fetað ólík- ar brautir í lífinu. Erik er lögfræðingur í góðri stöðu en Atli er nýkominn af Hrauninu eftir að hafa afplánað dóm fyrir fíkniefnabrot. Báðir eru þó í stórkostlegum fjár- kröggum og ákveða að redda sér með því að flytja vænan slatta af dópi til landsins. Ung kona, tilneydd, er notuð sem burðardýr til þess arna og látin flytja efnin milli landa innvortis. Ólíkar aðstæður bræðranna eru ágætt dæmi um hversu „undirheimar“ er villandi orð yfir þann skuggalega veruleika sem „venjulegt“ fólk vill sem minnst af vita. Undirheimarnir eru nefnilega alls staðar, í öllum lögum samfélagsins og það er ekki síst þetta „venjulega“ fólk sem skapar eftir- spurnina sem „vondu kallarnir“ svara. Það kaupir vændið og notar dópið. Vargur í véum Vargur er virkilega vandaður og vel gerður krimmi sem rýkur lóðbeint upp að Svartur á leik og Borgvirki sem ein allra besta glæpamynd sem gerður hefur verið á Íslandi. Hér smellur allt saman í sterka, áhrifaríka og áleitna heild. Sagan er góð, kvikmyndataka og klipping upp á 10 og tónlistin smellpassar við efnið. Persónurnar eru sannfærandi og tútna út í meðförum leikaranna sem fara með himinskautum þegar best lætur. Bræðurnir og mátulega sjúkt sam- band þeirra er þungamiðjan og þeir Gísli Örn og Baltasar Breki glansa í hlutverkum Eriks og Atla. Gísli Örn getur auðvitað nánast allt og fer rólega af stað, sjálfum sér líkur en þegar innri menn bræðranna brjótast fram eftir að allt er komið í steik tekur hann flugið og gerir Erik að skuggalega eftirminnilegri persónu. Takturinn á Baltasar Breka er svip- aður. Með lágstemmdum leik tekst honum að sýna alveg stælalaust bæði angist og einhvern óræðan og ógn- vekjandi kraft sem springur út þegar kemur að óumflýjanlegu uppgjöri. Enn einn leiksigurinn á stuttum ferli þessa unga leikara. Pönkskáldið Didda hefur fyrir löngu sýnt og sannað leikhæfileika sína í myndum Sólveigar heitinnar Anspach og dregur hér upp nístandi hryggðarmynd af sprautufíklinum móður bræðranna. Persóna sem gleymist ekki í bráð. Ekki verður síðan hjá því komist að minnast á Ingvar E. Sigurðsson sem lætur lítið fyrir sér fara í auka- hlutverki yfirmanns hjá lögreglunni. Hann leggur síðan tjaldið undir sig í lokin þegar hann sýnir mátt sinn og megin. Fáránlega svalur gaur! Þéttur sálfræðitryllir Vargur kemur skemmtilega og ánægjulega á óvart og er í raun miklu frekar þéttur og hrár sálfræðitryllir og grípandi karakterstúdía frekar en dæmigerð glæpamynd. Í raun er fátt út á þessa mynd að setja en þess mikilvægara að hvetja fólk til þess að láta hana alls ekki frm hjá sér fara. Mig grunar nefnilega að markaðsdeildin hafi skitið aðeins á sig vegna þess að stiklan úr myndinni gefur engan veginn rétta hugmynd um hvers eðlis Vargur er. Þar er freistast til þess að teikna upp hart keyrðan og helst til dæmi- gerðan ofbeldiskrimma þegar mynd- in er allt annað og svo miklu meira. Góð glæpamynd er hún vissulega en engan veginn dæmigerð og hefur miklu víðari skírskotun en staðlaðir krimmar. Þórarinn Þórarinsson niðurstaða: Vargur kemur skemmtilega og ánægjulega á óvart og er í raun miklu frekar þéttur og hrár sálfræðitryllir en dæmigerð glæpamynd. Hér smellur allt saman í mynd sem glæpur væri að missa af. Sök bítur seka... Samleikur Baltasars Breka og Gísla Arnar í Vargi er magnaður og báðir skila þeir marglaga og eftirminnilegum persónum bræðranna Eriks og Atla með stakri prýði. Löggan Við þau skemmtilegu nýmæli kveður í Vargi að aðallöggan, Lena, er kona af erlendu bergi brotin. Serbi sem fluttist til Íslands sem barn eftir að fjandinn varð laus með hryllilegum afleiðingum í Bosníu og Hersegóvínu 1992. Danska leikkonan Marijana Jankovic er eitursvöl í hlutverki Lenu sem er harðákveðin í því að finna burðardýrið og dópið. Hér er sko á ferðinni ekta bíómyndalögga, ákveðin og ósveigjanleg. Harður nagli sem stólandi er á. Burðardýrið Pólska leikkonan Anna Próchniak leikur burðardýrið ógæfusama, Sofiu, af slíku næmi að maður þjáist með henni frá fyrsta ramma. Líkam- legar þjáningar hennar eru illbærilegar þar sem hún berst við að skila efnunum. Ömurlegar aðstæður hennar kalla á köflum fram minningar um lík- fundarmálið svokallaða og skelfileg en mjög raunveruleg örlög Vaidas Jucevicius árið 2005. Andlegar þjáningar ungu móðurinnar, sem er þvinguð í dópburðinn með barn sitt í gíslingu dópskítalabbanna, er ekki síður átakanleg. Anna á hvert bein í áhorfandanum frá upphafi til enda. 1 0 . m a í 2 0 1 8 F i m m t u d a G u r32 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 1 0 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B D -8 2 7 C 1 F B D -8 1 4 0 1 F B D -8 0 0 4 1 F B D -7 E C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.