Fréttablaðið - 10.05.2018, Page 60

Fréttablaðið - 10.05.2018, Page 60
Verkfæralagerinn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæri í miklu úrvali ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. METABO Bútsög KS216 Verðmætaskápar Jeppatjakkur 2.25t 52cm. 16.995 frá 4.995 17.995 VIÐ SÉRHÆFUM OKKUR Í ASÍSKRI MATARGERÐ. HOLLUR OG LJÚFFENGUR MATUR. Vietnamese restaurant Laugavegi 27 og Suðurlandsbraut 8 sími: 588 6868 pho.is Gæðastaðir Reykjavíkurborgar Ma t a r g a g n r ý n -andi Michelin mælir með fimm íslenskum veit-ingahúsum eftir heimsókn sína hingað til lands fyrir skömmu. Dill er þar á meðal, en staðurinn er sá eini á Íslandi sem hefur þegar hlotið eftirsótta Michelin-stjörnu. Aðrir eru Grillið, Vox, Matur og drykkur og Gallery á Hótel Holti. Um Dill segir hann meðal annars að eldamennskan sé í hæsta gæða- flokki og það sé þess virði að kíkja við. Staðurinn noti hráefni í hæsta gæðaflokki og hver réttur hafi sitt eigið bragð. Undirbúningur sé allur hinn besti til að viðhalda gæðunum. Þessi litli staður sé að verða einn sá vinsælasti til að upplifa hina svo- kölluðu nýju Norrænu matargerð. Þó að hver réttur innihaldi fáein hráefni séu réttirnir flóknir hvað áferð og bragð varðar. Um Vox sagði hann hráefnin vera fersk og að þar einfaldlega gott að borða. Stíll sé yfir staðnum og brönsinn þar sé vinsæll. Elda- mennskan skapandi og nútímaleg. Gagnrýnandinn er ánægður með vínseðilinn á Gallery á Hótel Holti. Það er eini staðurinn sem fær hrós fyrir slíkt. Þarna sé klassísk frönsk eldamennska með íslensku hráefni, og segir gagnrýnandinn að upp- skriftin að graflaxinum sé frá 1966. Eðlilega minnist gagnrýnandinn á útsýnið á Grillinu og segir að það sé dáleiðandi fallegt – einkum og sér í lagi sólsetrið. Hráefnið sé ferskt, matreiðslan spennandi og að hið unga teymi sem þar starfar hafi skilað glæsilegum og bragðgóðum réttum á hans borð. Gamlar uppskriftir fái nútíma- legt útlit á Mat og drykk og þar sé maturinn ekki mjög dýr. Réttirnir séu góðir og íslenska snakkið sem þar er í boði sé frábært. benediktboas@frettabladid.is Michelin mælir með fimm stöðum Stjörnugjafi og matargagnrýnandi Michelin var staddur hér á landi fyrir skömmu og tók út veitingahús borgarinnar. Mælir gagnrýn- andinn nú með fimm stöðum eftir heimsóknina – sem bragð er að. Matur og drykkur Grandagarði 2, 101 Reykjavík grillið Radisson Blu Hótel Saga, Hagatorgi, 107 Reykjavík Vox Hilton Reykjavík Hótel Nordica, Suðurlands- braut 2, 108 Reykjavík dill Hverfisgötu 12, 101 Reykjavík gallery Hótel Holt, Bergstaðastræti 37, 101 Reykjavík Ferksleiki er orð seM Matargagn- rýnandi Michelin notar Mikið í sinni álitsgjöF uM íslensku staðina. Tilkynnt hefur verið hvaða tón-listaratriði hljóta Reykjavík Loftbrú styrkinn í ár og var það gert við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær. Styrkhafar hljóta tveggja millj- óna króna styrk til spilamennsku á erlendri grundu og er um að ræða fyrstu veitingu styrksins eftir miklar breytingar á honum. Styrkhafarnir eru Anna Þorvaldsdóttir, hljóm- sveitin Hugar, AdHd, Reykjavíkur- dætur og Mammút. Anna Þorvaldsdóttir stendur fyrir tónleikum með verkum íslenskra tónskálda erlendis og á næstu miss- erum verða verk hennar sjálfrar flutt af mörgum stærstu hljómsveitum innan samtímatónlistargeirans í Bandaríkjunum og Evrópu. Hugar hafa skipulagt tónlistar- ferðir út árið 2019 erlendis og fylgja þar á eftir góðu gengi á streymis- veitum undanfarið. AdHd á stóran aðdáendahóp erlendis einkum á meginlandi Evr- ópu. Sveitin hefur viðamikið tengsla- net innan djasssenunnar og hefur skipulagt glæsilegt tónleikaferðalag til að fylgja eftir síðustu plötu sinni. Reykjavíkurdætur hafa verið dug- legar að spila erlendis og byggja þar tengslanet víða. Þær eru búnar að skipuleggja metnaðarfullt tónleika- ferðalag á næstunni. Mammút stefnir á tónleikaferða- lag um Evrópu til að fylgja eftir fimmtu breiðskífunni og spanna tveggja ára tímabil. – sþh reykjavík loftbrú afhent í gær Reykjavík Loftbrú var afhent í gær og hlutu Reykjavíkurdætur hann auk Mammúts, Önnu Þorvaldsdóttur, Huga og AdHd. FRéttAbLAðið/SigtRygguR ARiFréttablaðið með þér í sumar. Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi stöðum víðsvegar um landið: 1 0 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R36 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð Lífið 1 0 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B D -6 9 C C 1 F B D -6 8 9 0 1 F B D -6 7 5 4 1 F B D -6 6 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.