Fréttablaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 94
Sumarnámskeið
Tilvalin til að kynna sér dansnám hjá JSB
Nánari upplýsingar á www.jsb.is
Skráning hafin í síma 5813730 og á jsb.felog.is
JAZZBALLETT FYRIR 6 – 8 ÁRA,
9 – 11 ÁRA OG 12 – 14 ÁRA
Tímabil: 28. maí – 20. júní.
4 vikna námskeið 2x í viku á mánudögum og
miðvikudögum.
60 mín. tímar fyrir 6 ‒ 8 ára kl. 17:30,
9 ‒ 11 ára kl. 16:30, 12 ‒ 14 ára kl. 15:30.
Verð: 14.000 kr.
JAZZ, KLASSÍSKUR BALLETT
OG NÚTÍMADANS
Tímabil: 8. – 17. ágúst.
Krefjandi dansnámskeið fyrir
framhaldsnemendur 14 ára og eldri.
Tilvalin til að koma sér af stað eftir sumarfrí.
2x 90 mín. kennslustundir á dag.
DANS– & LEIKJANÁMSKEIÐ FYRIR 3 – 5 ÁRA
Dans, leik- og sköpunargleði í fyrirrúmi.
Tímabil: 29. maí – 21. júní.
4 vikna námskeið 1x í viku á þriðjudögum eða fimmtudögum.
45 mín. tímar kl. 16:45 eða 17:30. Verð: 9.500 kr.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Einfalt og hollt nesti fyrir skólann.
NORDICPHOTOS/GETTY
Þessar hollu og fljótgerðu tor-tillavefjur henta vel í nestis-boxið fyrir börn jafnt sem
fullorðna. Þær eru líka fínar sem
snakk í Eurovisionpartíið.
2 lárperur, vel þroskaðar
Safi úr 1 límónu
Salat, t.d. Lambhagasalat
2 eldaðar kjúklingabringur,
skornar í strimla – einnig gott að
nota skinku
2 tómatar eða 1 paprika, skorið í
bita
4 msk. sýrður rjómi
1 msk. fínt saxaður vorlaukur
1 bolli rifinn ostur
4 stórar tortilla-heilhveitikökur
Þessi uppskrift dugar fyrir fjóra
og má minnka eða stækka eftir
þörfum. Byrjið á að mauka saman
lárperur og límónusafa í skál og
smyrjið síðan á tortilla-heilhveiti-
kökurnar. Setjið salat, kjúkling og
tómata eða papriku á hverja köku
fyrir sig, setjið 1 msk. af sýrðum
rjóma á hverja köku og stráið
vorlauk og rifnum osti jafnt yfir.
Passið að setja ekki út á kantana.
Rúllið kökunum þétt upp og skerið
hverja þeirra í tvennt. Gott er að
halda þeim saman með tann-
stöngli.
Hollar
tortillavefjur í
nestisboxið
Háskóli Íslands verður 107 ára gamall í sumar en hann var stofnaður 17. júní árið
1911, á aldar afmæli Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Við stofnun skólans
voru Prestaskólinn, Læknaskólinn
og Lagaskólinn sameinaðir í einn
skóla og mynduðu hver sína deild
innan hans. Auk fyrrnefndra
deilda var heimspekideild bætt við
námsframboðið.
Á fyrsta starfsári skólans voru
nemendur hans 45, þar af ein kona.
Einni öld síðar voru um fjórtán
þúsund nemendur sem stunduðu
nám við Háskóla Íslands og nú
eru um tveir þriðju hlutar nem-
endanna konur.
Fyrstu 29 árin var skólinn til
húsa í Alþingishúsinu við Austur-
völl en ekki leið á löngu þar til
húsið varð of lítið fyrir vaxandi
háskóla. Árið 1940 flutti Háskóli
Íslands í Aðalbyggingu við Suður-
götu og síðan þá hefur húsakostur
skólans vaxið mikið. Nýjasta
bygging skólans er svokallað
Háskólatorg sem stendur sunnan
við Aðalbyggingu og var vígt 1.
desember 2007. Húsið hýsir m.a.
veitingasölu, kennslustofur og
skrifstofur.
Heimild: www.hi.is.
Háskóli í rúma
öld
Nýjar stúdentaíbúðir, Campus Vestfold í Noregi, eru hannaðar þannig að
sextán nemendur búa saman og
deila sameiginlegu eldhúsi auk
setustofu. Litlar íbúðir nem-
endanna snúa þannig að allir
sem koma fram ganga beint inn
í sameiginlega svæðið með eld-
húsi. Húsnæðið er hannað eftir
að norsk rannsókn sem gerð var
árið 2014 leiddi í ljós að margir
háskólanemendur væru ein-
mana eða einn af hverjum fimm.
Í nýju íbúðunum sem teknar
verða í notkun næsta haust
hittist fólkið reglulega og getur
rabbað saman. Vonast er til að
þetta nýja fyrirkomulag geti
orðið til þess að vinátta myndist
á milli nemanda. Þá gætu
þeir einnig lært saman í opna
rýminu, stofnað hóp á Facebook
þar sem hægt væri að deila upp-
lýsingum eða bara sitja saman og
spjalla.
Nemendur sameinaðir
Góð sameiginleg aðstaða verður hjá nemendunum.
12 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . m A í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RSKóLAR OG NámSKEIÐ
1
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
1
-3
5
4
0
1
F
C
1
-3
4
0
4
1
F
C
1
-3
2
C
8
1
F
C
1
-3
1
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K