Fréttablaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 102
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Sumarið 1931 var nýtt íþróttafélag stofnað í Reykjavík, Íþróttafélag verkamanna. Síðar sama ár var annað slíkt félag með sama nafni stofnað í
Hafnarfirði. Bæði voru þau skipuð
kommúnistum eða róttækum jafn
aðarmönnum og áttu sér hugmynda
fræðilegar ástæður. Alþjóðasamtök
kommúnista höfðu látið þau boð
út ganga að félagar í hreyfingunni
skyldu ekki taka þátt í borgaralegum
félagasamtökum heldur stofna sín
eigin. Íþróttafélög verkamanna
skyldu hafna samstarfi við hina opin
beru íþróttahreyfingu í hverju landi,
en saman myndu félög kommúnista
mynda sín eigin alþjóðasamtök.
Var þessi afstaða í samræmi þá
ákvörðun sovéskra stjórnvalda að
hafna íþróttasamskiptum við hin
kapítalísku ríki. Þannig sniðgengu
Sovétmenn Ólympíuleikana en
reyndu í stað þess að lyfta undir
alþjóðleg íþróttamót verkalýðsins,
sem raunar tóku ansi mikið mið af
Ólympíuleikunum í skipulagi og
uppbyggingu.
Það voru þó ekki bara skipanir frá
Moskvu sem lágu að baki stofnun
félaganna, heldur blákaldur íslenskur
veruleiki. Átök í tengslum við verk
föll og kjaradeilur færðust í vöxt í
upphafi fjórða áratugarins. Fyrir þau
átök töldu ýmsir mikilvægt að búa
sig með því að verkafólk hefði innan
sinna raða þjálfaða íþróttamenn
sem gætu látið finna fyrir sér ef slægi
í brýnu. Þá spilaði inn í ákvörðunina
að kommúnistar höfðu illan bifur
á forystumönnum margra íþrótta
félaga, sem væru uppeldisstöðvar
fyrir hvítliða sem notaðir væru til að
berja niður verkfallsaðgerðir.
Rauðu íþróttafélögin rákust þó
fljótlega á ýmsa veggi. Ísland var of
fámennt til að unnt væri að reka hér
tvöfalda íþróttahreyfingu. Kommún
istar sem störfuðu innan gömlu
íþróttafélaganna voru margir hverj
ir tregir til að snúa baki við sínum
gömlu liðum og urðu hin nýju félög
því ekki ýkja fjölmenn. Engu að síður
hófu þau að iðka ýmsar íþróttagrein
ar, einkum þó fótbolta og fimleika.
Félögin tvö urðu skammlíf og
mörkuðu ekki djúp spor í íslenska
íþróttasögu. Þó má benda á tvö
markverð atriði. Í fyrsta lagi voru
verkamannafélögin jafnréttissinn
aðri en gerðist og gekk á þessum
árum. Frá upphafi var lögð áhersla
á að félögin væru bæði fyrir karla og
konur. Í öðru lagi mun Íþróttafélag
verkamanna í Reykjavík hafa verið
fyrsta íslenska félagið sem æfði blak
íþróttina.
Menntskælingar í hand-tennis
Blak barst fyrst til Íslands frá
dönskum íþróttakennaraskólum á
seinni hluta þriðja áratugarins og
heimildir eru um að það hafi verið
spilað í leikfimistímum í Mennta
skólanum í Reykjavík, að minnsta
kosti í stúlknatímum, þá undir
Kommúnistar,
KFUM og kvikir Asíubúar
Janúar 1976. Íslenska landsliðið í blaki rétt áður en það lagði upp í keppnisferð til Ítalíu, en þar tók liðið þátt í undankeppni fyrir Ólympíuleikana. Nöfn leik-
manna f.v.: Páll Ólafsson, Tómas Jónsson, Gunnar Árnason, Halldór Jónsson, Leifur Harðarson, Óskar Hallgrímsson, Valdemar Jónasson og Guðmundur E.
Pálsson. Mynd úr sömu töku birtist í DV 13. janúar 1976 og eru upplýsingar um nöfn leikmanna hafðar þaðan.
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um skrítna sögu vin-
sællar íþróttar.
heitinu handtennis. Um nokkurra
áratuga skeið var iðkun blakíþróttar
innar bundin við Menntaskólann á
Akureyri og skólana að Laugarvatni.
Fyrsta Íslandsmót karla í blaki var
ekki haldið fyrr en árið 1970 og voru
þátttökuliðin einmitt borin uppi af
þáverandi og fyrrverandi nemendum
frá Laugarvatni og að norðan.
Sannast sagna er lítið vitað um
hversu umfangsmiklar blakæfingar
Íþróttafélags verkamanna voru í
raun. Því síður liggur fyrir hvers
vegna kommúnistarnir íþróttasinn
uðu hófu að æfa blak svo snemma:
grein sem nær engir aðrir en fáeinir
menntaðir íþróttakennarar höfðu
heyrt getið um og sem virðist ekki
vera sérstaklega fallin til að æfa fólk í
að lúskra á verkfallsbrjótum. Mögu
leg skýring er sú að blakið hafi ein
mitt orðið fyrir valinu vegna þess að
hin íþróttafélögin lögðu ekki stund
á það. Þannig hafi aðstandendurnir
vonast til að unnt væri að lokka
kommúnista úr gömlu félögunum til
að æfa þessa nýju íþrótt.
Blak og blóðrauðir bolsar kunna að
virðast skringilegir bólfélagar, en það
er þó kannski í takt við hina furðu
legu sögu þessarar vinsælu bolta
íþróttar. Öfugt við eldri hópíþróttir
á borð við rúbbí, fótbolta og krikket,
sem allar eiga flókna og óljósa upp
hafssögu, er lítið mál að nefna upp
hafsmann og upphafsár blaksins.
Það var búið til árið 1895 af manni
að nafni William G. Morgan. Hann
var íþróttakennari sem starfaði innan
KFUMhreyfingarinnar í Massa
chusetts í Bandaríkjunum eða YMCA,
svo notast sé við ensku skamm
stöfunina. Fáeinum árum áður hafði
starfsbróðir Morgans í nálægum bæ,
James Naismith, fundið upp aðra
íþrótt ætlaða ruðningsköppum, sem
leika mátti innandyra að vetrarlagi
og hafði líka þann kost að vera ekki
jafn ofbeldisfull og ruðningur, sem
dró úr meiðslum. Sú íþrótt nefndist
körfubolti.
Körfuboltinn sló þegar í gegn hjá
meðlimum KFUM og var hann leik
inn í íþróttasölum hreyfingarinnar
víða um Bandaríkin. Hann naut eink
um vinsælda meðal yngri manna, en
William G. Morgan veitti því fljótt
athygli að íþróttin reyndist eldri
mönnum of erfið og jafnvel háskaleg.
Hann einsetti sér því að skapa grein
sem byði upp á spennu hópíþróttar
innar en væri þó hægari og algjörlega
laus við líkamlega snertingu.
Niðurstaða Morgans varð sú að
skapa einhvers konar blöndu af
körfubolta og tennis. Hann skipti
vellinum upp í tvo helminga með
neti á milli, þannig yrði tryggt að and
stæðingar í leiknum þyrftu ekki að
snertast. Netið var ekki strengt ýkja
hátt á nútímamælikvarða eða í rétt
tæplega tveggja metra hæð, en hafa
ber þó í huga að meðalhæð fólks var
nokkru lægri þá en síðar varð. Leikur
inn gekk svo út á að liðsmenn hvors
liðs halda boltanum á lofti með því
að slá hann sín á milli en freista þess
loks að vinna stig með því að koma
knettinum í gólf andstæðinganna.
Leikur eða íþrótt?
Öfugt við körfuboltann, sem skjótt
þróaðist yfir í harða keppnisgrein
með héraðsmótum, landsmótum og
skipulögðum keppnisflokkum, varð
blakið í þessari frummynd sinni
fyrst og fremst óformlegur leikur.
Fjöldi liðsmanna var fljótandi og
engar reglur um hversu oft liðsfélagar
máttu senda boltann sín á milli. Slíkt
var raunar markmið uppfinninga
mannsins, sem hugsaði fremur um
heilsubót en keppnisgildi.
Léttari blakboltar, sem unnt var að
senda af meiri krafti, komu fram um
aldamótin 1900 og urðu til að auka
hraðann í blakinu nokkuð. Engu að
síður lætur nærri að réttara sé að tala
um blak sem leik heldur en íþrótt á
þessu upphafsskeiði sínu. Ekkert
benti í það minnsta til þess að grein
in ætti eftir að brjóta sér leið inn á
stærstu íþróttahátíðir og mót.
Það var hins vegar á Filippseyjum
sem blakið stökkbreyttist úr því að
vera heilsubótartrimm miðaldra
karla yfir í að verða hröð keppnis
grein þrautþjálfaðra íþróttamanna.
Trúboðar á vegum KFUM höfðu
tekið með sér blakbolta og blaknet
víða um heiminn, þar með talið til
Filippseyja. Þar í landi hitti blakið
beint í mark og krydduðu Filipps
eyingar það með þáttunum úr sinni
eigin íþróttahefð.
Það voru Filippseyingar sem
kynntu til sögunnar „smassið“, þar
sem blakarar slá boltann upp í loftið
fyrir liðsfélaga sinn sem kemur aðvíf
andi og hamrar hann af krafti yfir á
vallarhelming andstæðinganna. Í
kjölfarið var fljótlega sett reglan um
að hvort lið megi að hámarki snerta
boltann þrisvar sinnum í röð.
Með filippseysku breytingunum
var blakið orðið margfalt hraðari
íþrótt og raunar var breytingin slík
að tala mætti um nýja íþróttagrein.
Það er því ef til vill til marks um
vestrænan hroka að blakmenn um
víða veröld hampi enn William G.
Morgan sem upphafsmanni íþróttar
sinnar, en fæstir hirði í neinu um þátt
Filipps eyinga í að umbylta greininni.
Það var hins vegar Bandaríkjaher
sem bar ábyrgðina á útbreiðslu blaks
ins með hinum nýju reglum. Banda
ríkin hófu þátttöku í fyrri heims
styrjöldinni á lokastigum hennar
og í kjölfarið voru bandarískir her
flokkar staðsettir víða um lönd. Árið
1919 mátu hernaðaryfirvöld það sem
svo að blak væri ódýr og holl afþrey
ing fyrir dátana í útlöndum og sendu
ókjörin öll af keppnisbúnaði til her
deilda sinna og bandalagsþjóða.
Blakiðkun bandarísku hermann
anna vakti forvitni margra Evr
ópubúa og nokkrum árum síðar, á
Ólympíuleikunum í París 1924, var
blak á meðal sýningargreina sem
hluti af sérstakri kynningu á banda
rískum íþróttagreinum.
Enn áttu þó fjörutíu ár eftir að líða
uns blak varð fullgild Ólympíugrein.
Það var á Tókýóleikunum 1964. Sú
ákvörðun var ekki að frumkvæði
Alþjóðaólympíunefndarinnar,
sem leit á blak sem fáránlega jaðar
íþrótt. Greinin var hins vegar vinsæl
í Japan, líkt og víðar í AusturAsíu og
á þessum árum þótti sanngjarnt að
gestgjafar fengju að hleypa greinum
sem nytu vinsælda heima fyrir inn á
leikana til að fá tekjur af miðasölu.
Japanir hlutu bronsverðlaunin
í karlaflokki, en augu þjóðarinnar
hvíldu á kvennaliðinu sem vann til
gullverðlauna. Úrslitaleikurinn fékk
meira en 85% áhorf, en einungis
fyrsta tungllendingin getur státað af
viðlíka áhorfstölum í gjörvallri sjón
varpssögu Japans. Blaksigurinn 1964
telst enn í dag mesta íþróttaafrek
Japana, en tilkoma blaksins sem
Ólympíugreinar átti eftir að valda
þáttaskilum fyrir íþróttina sem óx
hröðum skrefum næstu árin – einn
ig uppi á Íslandi, þar sem greinin
tók loksins skrefið úr íþróttahúsum
MA og ML … löngu eftir að reykvísku
kommarnir fóru fyrst að æfa upp
gjafir og smöss.
1 2 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R42 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
1
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
1
-0
8
D
0
1
F
C
1
-0
7
9
4
1
F
C
1
-0
6
5
8
1
F
C
1
-0
5
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K