Fréttablaðið - 14.05.2018, Qupperneq 6
TILBOÐSVERÐ FRÁ
2.459.000 KR. ÁN VSK
3.050.000 KR. M
EÐ VSK
CITROËN JUMPY
MODUWORK - aukið flutningsrými
Nálægðarskynjarar að aftan
Þrjár lengdir í boði – allt að 4 metra
flutningsrými
FJÖLHÆFUR & STERKUR
LENGDIN SKIPTIR MÁLI
BAKKAÐU AF ÖRYGGI
KOMDU & MÁTAÐU
CITROËN JUMPY Í DAG!
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
300.000 KR.AFSLÁTTUR
KOSNINGAR Umboðsmenn framboða
hafa gert athugasemdir við öryggi
innsigla sem notuð eru á kjörkössum
hér á landi. Þeir sem um er að ræða
telja hættu á að þau geti losnað af
kössum og að hægt sé að eiga við þau
á auðveldan hátt. Dómsmálaráðu-
neytið telur ekki tilefni til breytinga.
„Það var tvímælalaust betrumbót
þegar byrjað var að nota númeruð
innsigli. Gallinn við þau er hins vegar
að það er hægt að taka þau af án þess
að skilja eftir sig verksummerki. Við
sáum það til dæmis í síðustu þing-
kosningum að innsiglin voru að
losna af kössunum,“ segir Björn Leví
Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Sum framboð hafa brugðist við
þessu með því að setja sín eigin inn-
sigli á kjörkassana á sama tíma og
þeir eru innsiglaðir af kjörstjórn.
Þau innsigli séu rammgerðari og
nær ómögulegt að fjarlægja þau af
kössunum án þess að lím verði eftir
á þeim. Þá sé ekki hægt að setja þau
aftur á kassann með góðu móti eftir
að átt hefur verið við þau.
Áður en Björn var kjörinn á þing
hafði hann nokkrum sinnum verið
umboðsmaður framboðs í kosning-
um. Í þeim kosningum segir Björn að
hann hafi séð ýmislegt ótrúlegt eiga
sér stað. Meðal athugasemda sem
hann hefur er að kjörkassarnir séu
ekki innsiglaðir fyrr en skipt er um
kjörkassa og eldri kassi fjarlægður.
„Í kosningunum 2013 komum við
inn í kjördeild þar sem kjörkassinn
var við það að verða fullur. Þegar við
spurðum hvað væri gert ef hann fyllt-
ist tók starfsmaður kjörstjórnar sig
til, opnaði kassann og tróð atkvæða-
seðlunum niður,“ segir Björn.
Athugasemdir hafa einnig verið
gerðar við hluta kjörkassanna en
þeir séu margir komnir til ára sinna.
Björn nefnir dæmi af tilviki þar sem
botninn féll úr kjörkassanum þegar
verið var að skipta um kassa.
„Atkvæðin flæddu um allt gólf í
kjölfarið. Því var reddað með því að
sækja límband, teipa botninn aftur
á og setja innsigli yfir límbandið,“
segir Björn. Þá bendir hann einnig á
að auðvelt sé að losa skrúfur á köss-
unum og eiga við atkvæðin.
Fréttablaðið beindi fyrirspurn til
dómsmálaráðuneytisins um öryggi
þeirra innsigla sem nú eru notuð
og hvort komið hafi til skoðunar að
breyta þeim. Í svarinu segir að kvört-
un vegna innsiglanna hafi borist fyrir
síðustu kosningar. Í kjölfarið var
kannað hjá yfirkjörstjórnum hvort
einhver vandamál hafi komið upp.
„Fram kom að ekki hefði orðið
vart við að innsiglin væru á einhvern
hátt ekki í lagi eða þjónuðu ekki
sínum tilgangi. Eitt tilvik var þekkt
um að innsigli hefði verið illa sett á
kassa með utankjörfundaratkvæð-
um þannig að það var illa strengt
yfir kassa en ekki voru tilvik um að
innsigli hefðu losnað af kössum eða
að unnt væri að taka þau af og setja
aftur á með einföldum hætti. ÖSE
fylgdist með alþingiskosningunum
hér í október síðastliðnum og gerði
ekki athugasemdir við innsiglin þó
athygli hefði verið vakin á áhyggjum
viðmælenda þeirra af innsiglum. Því
hefur ekki þótt tilefni til að skipta
um innsiglistegund,“ segir í svari
ráðuneytisins. joli@frettabladid.is
Umboðsmenn hafa
sett út á öryggi innsigla
Of auðvelt er að eiga við innsigli sem notuð eru við kosningar að mati þing-
manns Pírata. Fleiri athugasemdir hafa verið gerðar við framkvæmd kosninga
hér á landi af hálfu umboðsmanna. Ráðuneytið telur ekki tilefni til breytinga.
Til hægri sést innsigli sem losnað hefur frá. Auka innsigli
umboðsmanns sjást blá á hinni myndinni.
ÍSRAel Bandaríkjamenn opna nýtt
sendiráð sitt í Jerúsalem í Ísrael í
dag. Donald Trump forseti verður
ekki viðstaddur opnunina en dóttir
hans Ivanka og maki hennar, Jared
Kushner, komu til Ísraels í gær.
Ákvörðun Bandaríkjamanna
um að flytja sendiráð sitt frá Tel
Avív, sem alþjóðasamfélagið álítur
höfuðborg Ísraels, til Jerúsalem, sem
Ísraelar segja höfuðborg sína, vakti
mikla reiði þegar Trump tilkynnti
um áform sín í fyrra.
Ákvörðunin er afar umdeild.
Þegar Ísraelar og Palestínumenn
sömdu um frið 1993 var tekið fram
að framtíðarstaða Jerúsalem yrði
viðfangsefni viðræðna í framtíðinni.
Þær viðræður hafa ekki enn átt sér
stað og þykir Trump því vera að slá
vopnin úr höndum Palestínumanna
sem líta á Austur-Jerúsalem sem
höfuðborg sína.
Í desember síðastliðnum greiddi
mikill meirihluti allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna atkvæði með
yfirlýsingu um að viðurkenning
Bandaríkjanna á Jerúsalem sem
höfuðborg Ísraels væri ógild og
hefði ekkert vægi. Ísland studdi til-
löguna en Gvatemala, Hondúras,
Ísrael, Marshall-eyjar, Míkrónesía,
Nárú, Palá, Tógó og Bandaríkin
greiddu atkvæði gegn henni.
Sendiráð annarra ríkja eru
almennt í Tel Avív. Munu sendi-
herrar flestra ESB-ríkja ekki verða
viðstaddir opnun sendiráðsins í
dag í mótmælaskyni. Hins vegar
eiga Bandaríkjamenn von á erind-
rekum frá Ungverjalandi, Rúmeníu
og Tékklandi. – þea
Sendiráðið umdeilda opnað í dag
Ísraelskur maður, sveipaður fána Bandaríkjanna, fagnar Jerúsalemdeginum.
Dagurinn var haldinn hátíðlegur í gær en 51 ár var þá liðið frá því Ísraelar tóku
austurhluta borgarinnar í sex daga stríðinu. NorDicphoTos/AFp
1 4 . m A Í 2 0 1 8 m Á N U D A G U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t A B l A ð I ð
1
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
2
-2
5
F
4
1
F
C
2
-2
4
B
8
1
F
C
2
-2
3
7
C
1
F
C
2
-2
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K