Fréttablaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 9
Eftir því sem fleirum er
skítsama, því skemmtilegra
og meira skapandi verður
tilveran.
ÁRSFUNDUR 2018
Hilton Nordica
Þriðjudagur 15. maí kl. 14
Á traustum grunni
• Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Ávarp
• Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
Ávarp
• Hörður Arnarson forstjóri
Á traustum grunni - gott ár að baki
• Selma Svavarsdóttir forstöðumaður á starfsmannasviði
Að virkja jafnréttið
• Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri
Áhrif aukinnar eftirspurnar á raforkumarkað
• Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri markaðs-
og viðskiptaþróunarsviðs
Orka í dansi framtíðarinnar
Fundarstjóri
• Magnús Þór Gylfason yfirmaður samskiptasviðs
Landsvirkjun hvetur til opinnar umræðu um orkumál
og býður alla velkomna á ársfund.
Síðasta ár voru met slegin í sölu og vinnslu rafmagns.
Rekstrarafkoma fyrirtækisins hefur aldrei verið betri
og efnahagurinn er traustur.
Á ársfundinum verður fjallað um þessa góðu stöðu. Einnig
verða kynnt þau tækifæri og þær áskoranir sem framundan
eru og fjallað um raforkumarkaðinn í víðu samhengi.
Bein útsending verður frá fundinum á landsvirkjun.is.
Verið öll velkomin
Skráning á www.landsvirkjun.is
#lvarsfundur
Það er alltaf gaman að taka góða „hvað fór úrskeiðis?“ umræðu eftir að eitthvað
hefur rækilega mistekist. Framlag
Íslands í Eurovision þetta árið
gefur tilefni til að taka eina slíka.
Það er óhætt að segja að lagið hafi
ekki slegið í gegn. Í símakosningu
þjóða Evrópu og nágrennis fékk
lagið ekkert stig. Núll. Ekki einu
sinni Íslendingarnir í Danmörku
kusu lagið. Þetta minnir á afhroð
Framsóknarflokksins í borginni
einu sinni, þegar atkvæði greidd
flokknum voru færri en fjöldi fólks
á listanum.
Það er auðvitað ekkert annað að
gera en að hafa húmor fyrir þessu
eins og Daníel Ágúst og Valgeir
Guðjónsson um árið, þegar hið
ógleymanlega lag Það sem enginn
sér fékk núll stig. Þá var umsvifa-
laust stofnaður núll-hópurinn og
mynd smellt af honum við komuna
til landsins þar sem meðlimir
gerðu núllmerki með puttunum
og reyndu almennt að vera svoldið
kátir.
Þetta er auðvitað bara Euro-
vis ion.
Eldur og ís
En þetta er samt sárt. Ég meina:
Núll stig. Það var enginn að fíla
þetta. Nú verður maður auðvitað
að halda því til haga að Ari okkar
Ólafsson söng afskaplega vel og
hann virðist verða prýðisdrengur
og megi honum vegna sem allra
best, en það breytir ekki því að hér
er komin ástæða til að draga nokkra
góða lærdóma fyrir land og þjóð.
Jakki sem á að tákna eld og ís
er greinilega ekki að gera neitt
fyrir neinn. Aðrir voru beinlínis
með eld og ís, á sviðinu. Spyrja
má: Af hverju vorum við ekki með
logandi píanó eins og sumir? Og
snjó eins og Danir? Svo hefði Ari
getað komið niður úr loftinu. Og
bakraddirnar hefðu allar átt að
vera eins og skeggjaði, hvíthærði
maðurinn í serbneska atriðinu, sem
var sambland af Gandalfi og pró-
fessor Vandráði. Svo hefðum við átt
að láta rafmagnið detta út eins og
konan frá Slóveníu gerði. Þá hefði
Ari getað sagt eitthvað smart. Og
bingó. Atkvæði í hús. Og ein reyk-
sprengja í lokin.
Það er svoldið eins og teymið
á RÚV hafi verið þunnt þegar
íslenska atriðið var ákveðið. „Æ
krakkar, setjum bara eitthvað fólk
á sviðið í sparifötunum og allir fá
hljóðnema. Svo ganga þau að Ara í
lokin. Ok? Allir góðir?“
Góður blús
Væntanlega voru allir að gera sitt
besta, svo allrar sanngirni sé gætt.
En mér finnst samt mikilvægt að
nota þennan blús til að fara í nafla-
skoðun. Ekkert er hollara manni,
hvað þá heilli þjóð, en að fara í
naflaskoðun á góðum bömmer eftir
hrakfarir. Dæsa pínulítið saman.
Hvað gerir það að verkum að þessi
músíkalska, skapandi þjóð sendir
hvað eftir annað lag í Eurovision
sem enginn fílar? Hvað er í gangi?
Ég ætla að henda fram kenn-
ingu, af rælni. Mér finnst eins og
það sé einhver ótti í þjóðarsálinni.
Á vettvangi þar sem allt má – þú
mátt vera í sundgalla og dansa eins
og hæna eða koma upp úr gólfinu
á nærbuxunum og syngja um afa
þinn – er eins og framlög Íslands
einkennist af vissri varfærni og
fágun sem virkar eins og bremsa á
sköpunargleði og líf. Það er eins og
við þorum ekki. Við tökum bara
örstutt skref.
Kannski erum við hrædd um að
ferðamennirnir fari ef við gerum
ekki allt rétt. Enginn vill eyðileggja
stemninguna. Ég held líka að í sam-
félaginu eftir hrun hafi hreiðrað um
sig ákveðið óöryggi. Hér grasserar
hræðsla við einhvers konar rétt-
hugsun. Fólk er að vara sig, reyna
að vera kurteist og styggja ekki
reiða fólkið. Vera besta útgáfan af
sjálfum sér. Verða ekki krossfest á
Facebook.
En það er líka svo gríðarlega mik-
ilvægt að vera stundum fullkomlega
sléttsama um hvað öðrum finnst.
Bara gera, skapa, vera maður sjálfur
og láta vaða. Eftir því sem fleirum
er skítsama, því skemmtilegra og
meira skapandi verður tilveran.
Ísland er ekki alveg þar. Stemningin
er of þrúgandi. Þess vegna fáum við
núll stig í Eurovision.
Núll stig
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 4 . M a Í 2 0 1 8
1
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
2
-1
2
3
4
1
F
C
2
-1
0
F
8
1
F
C
2
-0
F
B
C
1
F
C
2
-0
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K