Fréttablaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 10
Aðalfundur stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi verður haldinn miðvikudagskvöldið 30. maí 2018 kl. 20. Fundurinn fer fram á heimavelli stuðningsmanna SPOT Kópavogi. Atkvæðarétt á aðalfundi hafa þeir sem greitt hafa ársgjaldið 2017 - 2018. Aðalfundur Dagskrá 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Kosning stjórnarmanna 6. Önnur mál Stjórnin Fótbolti Levante vann óvæntan sigur á Barcelona í spænsku deild- inni í gær en með því varð Levante fyrsta liðið til að sigra Barcelona í deildinni á þessu tímabili. Komst Levante 5-1 yfir og stóðst sóknir Barcelona á lokamínútunum eftir að Börsungar minnkuðu mun- inn í 4-5 Mistókst Barcelona því að klára tímabilið án þess að tapa leik en Börsungar höfðu ekki tapað leik í deildarkeppninni í rúma þrettán mánuði. Hefur engu liði á Spáni tekist að fara í gegnum tímabil án ósigurs í 86 ár eða allt frá því að Real Madrid náði þessu afreki árið 1932. – kpt Óvænt tap hjá Börsungum Fótbolti Sara Björk Gunnars- dóttir varð í gær þýskur meistari annað árið í röð er Wolfsburg vann 2-0 sigur á Essen en þá var ljóst að Bayern München gæti ekki náð Wolfsburg að stigum þegar tvær umferðir eru eftir. Er þetta annar meistaratitill Söru og Wolfsburg í röð en hún er á öðru ári sínu hjá félaginu. Sara var ekki í leikmanna- hópi Wolfsburg í gær í fyrsta sinn í deildarkeppinnni en það kom ekki að sök, Ella Maser skoraði tvívegis áður en hún nældi í rautt spjald undir lok leiksins. Þær fá svo tæki- færi til að vinna tvöfalt annað árið í röð þegar Wolfsburg mætir Bayern München í úrslitum þýska bikarsins en handan hornsins er svo stærsti leikur ársins, leikur Wolfsburg gegn Lyon í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Kænugarði en Sara verður fyrsta íslenska knattspyrnukonan sem tekur þátt í úrslitaleik þess- arar sterkustu d e i l d a r h e i m s . – kpt. Sara Björk þýskur meistari Handbolti Ólafur Andrés Guð- mundsson bar fyrirliðabandið er hann, Gunnar Steinn Jónsson, Arnar Freyr Arnarsson og félagar í Kristi- anstad tryggðu sér sænska meistara- titilinn í handbolta á dögunum. Er þetta fjórði meistaratitill félagsins í röð og sá áttundi í sögu félagsins. Þurfti framlengingu til að útkljá hvort liðið yrði meistari í leik Kristi- anstad gegn Malmö en þar reyndist Kristianstad sterkara liðið og náði að innbyrða 23-22 sigur. Er þetta þriðji meistaratitill Ólafs með liðinu en Gunnar Steinn og Arnar Freyr voru að vinna sinn annan meistara- titil í Svíþjóð eftir að hafa komið til félagsins árið 2016.. Verðskuldað frí fram undan Ólafur tók sumarfríinu fagnandi þegar Fréttablaðið tók á honum púlsinn eftir langt og strangt tíma- bil. Kristianstad komst í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn ásamt því að fara alla leið í deildinni heima fyrir. „Þetta er annar titill minn sem fyr- irliði og þessi var virkilega ánægju- legur. Það voru miklar breytingar á leikmannahópnum á milli tímabila og þetta var mjög langt og strangt tímabil. Við vorum í sterkum riðli í Meistaradeildinni og sýndum þar að við erum eitt af sextán bestu liðum Evrópu. Ef ég á að vera hreinskilinn er bensíntankurinn alveg tómur, andlega og líkamlega þessa stundina. Við spiluðum næstflesta leiki í Evr- ópu í vetur en náðum samt að klára þetta og um leið tryggja okkur sæti í Meistaradeildinni á næsta ári. Það er gulrótin fyrir okkur, þar mætir maður sterkustu liðum heims og fær meiri prófraun, við viljum halda okkur þar,“ sagði Ólafur, sem segir að það sé pressa á liðinu frá heima- mönnum. „Það gat verið á köflum erfitt að halda einbeitingu í deildinni og halda okkur gangandi á sama tíma og áhuginn jókst með hverri viku í bænum. Það hélt manni á tánum og veitti manni aukna hvatningu til að gera þetta fyrir bæjarfélagið.“ Líður vel í Svíþjóð Ólafur framlengdi samning sinn hjá Kristianstad fyrir áramót en hann er með samning út næstu tvö tímabil. Hann vissi af áhuga frá Frakklandi og Þýskalandi en hann ákvað að fram- lengja frekar í Svíþjóð þar sem hann er fyrirliði meistaraliðsins. „Ég framlengdi í vetur enda líður mér mjög vel hér, þekki klúbbinn og þjálfarann ótrúlega vel og veit hvað félagið stendur fyrir,“ sagði Ólafur og bætti við. „Það voru klúbbar í Þýskalandi og Frakklandi sem sýndu manni áhuga og lið frá öðrum löndum, sumt af þessu var spennandi og það var alveg möguleiki á að prófa eitthvað nýtt en fjölskyldunni líður vel hér og ég nýt þess vel að spila hér. Það fylgir atvinnumennsku að það getur verið breytilegt hvar þú býrð en hér erum við búin að koma okkur vel fyrir og eigum í góðu sambandi við aðrar fjöl- skyldur hér.“ Hann vildi frekar leika áfram í Meistaradeildinni, sterkustu keppni Evrópu. „Ég spila í liði sem stefnir á titilinn heima á sama tíma og við erum að feta okkur áfram í Meistaradeildinni. Þar erum við að spila við sterkustu lið heims og ég kaus það frekar en að fara í sterkari deild eins og í Þýskalandi og vera ekki í Meistaradeildinni,“ sagði Ólafur. kristinnpall@frettabladid.is Bensíntankurinn alveg tómur Þrír Íslendingar voru í lykilhlutverki í meistaratitli Kristianstad á dögunum en Ólafur Andrés Guðmunds- son er fyrirliði liðsins. Hann kýs frekar titilbaráttu í Svíþjóð heldur en að vera í miðjumoði í sterkari deild. Íslendingarnir þrír, Arnar Freyr, Ólafur Andrés og Gunnar Steinn ásamt börnum Ólafs og Gunnars þegar meistaratitilinn var í höfn. Mynd/GuðMundur SVAnSSon Fótbolti Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar í Rosengard urðu sænskir bikarmeistarar í knatt- spyrnu í gær eftir 1-0 sigur á Lin- köpingsw í úrslitaleiknum. Er þetta annar bikarmeistara- titill Glódísar og Rosengard í röð en þær unnu einnig 1-0 sigur á Lin- köpings í fyrra. Sanne Troelsgaard Nielsen skoraði eina mark leiksins fyrir Rosengard en stuttu áður fékk Glódís gult spjald. – kpt. Bikarmeistari annað árið í röð 1 4 . m a í 2 0 1 8 m Á n U d a G U R10 S p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð sport 1 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 2 -0 D 4 4 1 F C 2 -0 C 0 8 1 F C 2 -0 A C C 1 F C 2 -0 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.