Fréttablaðið - 14.05.2018, Síða 38
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir og afi,
Albert Wathne
Sautjándajúnítorgi 1,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í
Garðabæ 8. maí 2018. Útförin fer fram
frá Langholtskirkju fimmtudaginn
17. maí kl. 13.00.
Maja Veiga Halldórsdóttir
Jóhann Ottó Wathne
Heiðar Davíð Wathne Elísabet Wathne
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón S. Sveinbjörnsson
prentari,
Boðaþingi 24,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 7. maí. Útför hans fer fram
frá Áskirkju föstudaginn 18. maí klukkan 13. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Karitas eða líknardeild
Landspítalans.
Símonía K. Helgadóttir
Jóhanna S. Guðjónsdóttir Vilhjálmur J. Guðbjartsson
Sveinbjörn Guðjónsson Kristín Viktorsdóttir
Ingibjörg H. Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ó lafur Ragnar Gríms-son, þáverandi for-seti Íslands, og Dorrit Moussaieff gengu í hjónaband 14. maí 2003, eða fyrir sléttum
fimmtán árum. Þau höfðu verið trúlofuð
frá árinu 2000. Forsetahjónin voru gefin
saman á afmælisdegi Ólafs Ragnars eftir
afmælishátíð sem haldin var í Borgar-
leikhúsinu í tilefni af sextugs afmæli for-
setans.
Guðmundur Sophusson, sýslumaður
í Hafnarfirði, gaf brúðhjónin saman.
Athöfnin var látlaus og fór fram í Bessa-
staðastofu að fjölskyldu forsetans við-
staddri og var það í fyrsta skipti í sög-
unni sem forsetabrúðkaup fór fram á
Bessastöðum.
Dorrit vakti strax athygli og vann
fljótlega huga og hjörtu íslensku þjóðar-
innar. Hún tók virkan þátt í embættis-
störfum Ólafs Ragnars alveg þangað til
hann lét af embætti, árið 2016. Hún var
áberandi í forsetakosningunum árið
2012 og til marks um það var vefslóðin
á heimasíðu framboðs Ólafs Ragnars þá
www.olafurogdorrit.is
Þau Ólafur og Dorrit hafa ekki flíkað
einkalífi sínu mikið í fjölmiðlum, en for-
setinn fyrrverandi sló þó á létta strengi
þegar þau voru í heimsókn á Fljótsdals-
héraði á Valentínusardaginn 2014. Í
fyrirspurnartíma í Menntaskólanum á
Egilsstöðum var Ólafur spurður hvort
hann ætlaði að gera eitthvað fyrir frúna
í tilefni Valentínusardagsins.
„Ég velti fyrir mér hvað ég ætti að gera
fyrir Dorrit og ákvað að bjóða henni í
fjósið. Ég veit það er ekki rómantískt en
stundum held ég að hún elski beljurnar
meira en mig. Henni finnst mjög gaman
að koma í fjós,“ sagði Ólafur Ragnar sam-
kvæmt frásögn Austurfréttar.
Ólafur Ragnar fagnar 75 ára afmæli
í dag. Hann er fæddur á Ísafirði, sonur
Gríms Kristgeirssonar rakara og Svan-
hildar Ólafsdóttur Hjartar húsmóður.
Fyrri eiginkona Ólafs Ragnars var Guð-
rún Katrín Þorbergsdóttir sem lést úr
hvítblæði árið 1998.
Fimmtán ár frá því að
Ólafur og Dorrit giftust
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, er 75 ára gamall í dag. Á þessum
degi fyrir fimmtán árum voru þau Dorrit gefin saman af sýslumanninum í Hafnarfirði í
látlausri athöfn. Forsetafrúin var fljót að vinna hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar.
1643 Loðvík 14. tók við völdum í Frakklandi fjögurra ára
gamall.
1912 Friðrik 8. Danakonungur fannst látinn í Hamborg.
Kristján 10., sonur hans, tók við krúnunni.
1922 Fimm skip fórust og með þeim 44 sjómenn í norðan
ofsaveðri, sem gekk yfir norðan- og austanvert landið.
1944 Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn George Lucas
fæddist.
1955 Varsjárbandalagið var stofnað í Varsjá í Póllandi.
1959 Pétur Ottesen, sem verið hafði þingmaður lengur en
nokkur annar, eða í 43 ár, hætti þingmennsku.
1965 Fokker Friendship-flugvél Flugfélags Íslands, sú fyrsta
sinnar tegundar, kom til landsins, en slíkar vélar voru síðan
notaðar í innanlandsflugi í áratugi.
1998 Frank Sinatra, bandarískur söngvari og kvikmynda-
leikari lést
Merkisatburðir
Frank Sinatra
Dorrit tók þátt í opinberum störfum Ólafs. Hér eru þau við vígslu Agnesar M. Sigurðardóttur í embætti biskups. FréttAblAðið/Anton
„Hersveitir Araba rjeðust inn í Palestínu
í nótt - Gyðingar lýsa yfir stofnun sjálf-
stæðs ríkis,“ sagði á forsíðu Morgun-
blaðsins þann 15. maí árið 1948. Degi
áður, eða fyrir réttum sjötíu árum, lýsti
þjóðráð gyðinga því yfir í Tel Avív að
gyðingaríkið Ísrael yrði stofnað eftir að
Bretar lögðu niður umboðsstjórn sína í
Palestínu.
Fleiri íslenskir miðlar sögðu Íslend-
ingum þessa forsíðufrétt. „… á miðnætti
í nótt réðust egipzkar hersveitir yfir
suðurlandamæri Palestínu og höfðu, er
síðast fréttist, náð nokkrum þorpum á
vald sitt. Samtímis hafa hin Araba ríkin,
Transjórdanía, Iraq, Sýrland og Libanon,
sent herlið til landamæra Palestínu og
virtust í nótt allar líkur benda á að innrás
verði gerð í landið úr þrem áttum og að
Gyðingar og Arabar muni útkljá deilumál
sín með blóðugu vopnavaldi,“ sagði til
að mynda í Alþýðublaðinu.
Þjóðviljinn horfði langt aftur í tímann,
sagði í fyrirsögn Ísraelsríki endurreist
eftir 1878 ár. „Með þessari yfirlýsingu
var Gyðingaríki endurreist í Palestínu
1878 árum eftir að rómverskar hersveitir
Títusar eyddu Jerúsalem.“
Stríðið varði í um eina meðgöngu, eða
þar til 10. mars 1949. Ísraelar höfðu sigur
í stríðinu og héldu því landsvæði sem
þeim var úthlutað með yfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna frá 1947 auk þess að
taka helming af svæði Palestínumanna.
Jórdanía tók hins vegar Vesturbakkann
og Egyptar tóku Gasasvæðið. – þea
Þ EttA G E R ð i St : 1 4 . M A Í 1 9 4 8
Stofnun Ísraelsríkis lýst yfir
Ólafur Ragnar er fæddur á
Ísafirði, sonur Gríms Kristgeirs-
sonar, raka, og Svanhildar
Ólafsdóttur Hjartar, húsmóður
David ben Gurion, sem síðar varð for-
sætisráðherra Ísraels, les yfirlýsinguna í
tel Avív. norDicpHotoS/Getty
1 4 . m a í 2 0 1 8 m Á N U D a G U R14 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð
tÍmamÓt
1
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
1
-F
E
7
4
1
F
C
1
-F
D
3
8
1
F
C
1
-F
B
F
C
1
F
C
1
-F
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K