Fréttablaðið - 14.05.2018, Side 41

Fréttablaðið - 14.05.2018, Side 41
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 8 0 8 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n m a í Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Sjálfskiptur, framhjóladrifinn Verð frá: 3.650.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 8 0 8 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n m a í 14. maí 2018 Tónlist Hvað? Sungið og leikið á lýru Hvenær? 20.30 Hvar? Iðnó Á tónleikunum kemur fram Inga Björk Ingadóttir, en hún syngur og leikur á lýru. Inga kynntist lýrunni við nám í Berlín og hefur hljóð- færið síðan þá skipað stóran sess í tónsköpun hennar. Á tónleikunum syngur Inga Björk og spilar eigin lög ásamt nokkrum lögum eftir íslenskar og erlendar tónlistarkon- ur sem hún hefur útsett sérstak- lega. „Sérstæður hljómur lýrunnar leiðir sköpunarferlið þegar ég sem lögin og textana. Lýran er einstakt hljóðfæri og finnst mér hljómur hennar kjarna og útvíkka í senn“ segir Inga Björk. Lýran er eitt af elstu þekktu strengjahljóðfær- unum og er hún notuð til tónlistar- sköpunar, meðferðar og kennslu um allan heim. Viðburðir Hvað? Nýjasta tækni og hugvísindi Hvenær? 08.00 Hvar? Kötlusalur, Hótel Sögu Í dag verður ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum haldinn í Kötlusal Hótel sögu, kl. 8-10. Á sama tíma verður ársskýrsla stofnunarinnar opin- beruð fyrir fundargestum og fleirum. Tæknibylting síðustu ára hefur haft mikil áhrif á rann- sóknir í hugvísindum. Á fundinum verður litið til framtíðar og nokkur þróunar- og rannsóknarverkefni stofnunarinnar verða kynnt. Sagt verður frá tímamótaviðgerð á Flat- eyjarbók, ný risamálheild verður sýnd og greint frá landvinningum vefnámskeiðsins Icelandic Online. Hvað? Frívika | Æsir og Reykjavík MMA Hvenær? 08.00 Hvar? Hnefaleikastöðin Æsir, Viðar- höfða Í þessari viku verður frítt að æfa hjá Hnefaleikastöðinni Æsi og Reykja- vík MMA, en áhugasamir geta komið og prófað bardagaíþróttir og þrek sér að kostnaðarlausu. Þeir sem skrá sig í fríviku hafa aðgang að öllum tímum í stundaskrá. Hvað? Fögnum Íslenska kraftaverkinu! Hvenær? 17.00 Hvar? Penninn, Austurstræti Í dag fögnum við útkomu bókar- innar Íslenska kraftaverkið – Á bak við tjöldin eftir Þorgrím Þráinsson í Eymundsson Austurstræti. Allir velkomnir ,léttar veitingar. Hvað? Ræktun matjurta Hvenær? 12.00 Hvar? Bókasafn Kópavogs Fjölbreytt ræktun matjurta í heimilisgarðinum er viðfangsefni fræðsluerindis Jóhönnu B. Magnús- dóttur sem haldið verður í Bóka- safni Kópavogs. Þetta er erindi sem nýtist bæði þeim sem eru óreyndir og lengra komnir. Einnig verður kynnt hvað Kópavogsbær býður upp á hvað varðar matjurtarækt, þ.e. skólagarða fyrir börn og garð- lönd fyrir þá eldri, en tekið er við umsóknum um hvort tveggja þessa dagana á vef Kópavogsbæjar, kopa- vogur.is Hvað? Svefnvenjur barna 1-6 ára Hvenær? 17.30 Hvar? Bókasafn Seltjarnarness Erindaröðin Heilsutengdur fyrir- lestur: Svefnvenjur barna á aldr- inum 1-6 ára. Arna Skúladóttir ,sérfræðingur í barnahjúkrun og höfundur metsölubókarinnar Draumaland – svefn og svefn- venjur, gefur góð ráð um svefn- venjur barna. Sýningar Hvað? Myndlist í anddyrinu – TRÖLL Hvenær? 11.00 Hvar? Norræna húsið Áður fyrr hélt fólk að ákveðnar kryddjurtir væru vörn gegn tröll- um. Brauð og salt var gjarnan inn- flutningsgjöf til að varna hungri. Langafi gat stoppað blæðingar með því að fara með þulu. Illt skyldi með illu út kveða. En það heyrir sögunni til að nota galdra gegn því sem vekur ugg og ótta. En óttinn er enn til staðar, þrátt fyrir allar heimsins tækniframfarir og þekk- ingu. Kannski er þetta sami ótti, í nýjum búningi. Við hræðumst það sem við skiljum ekki. Hvað? Listasýning Skunktúrar og Ofurhetjur – List án landamæra Hvenær? 11.00 Hvar? Norræna húsið Skunktúrar og Ofurhetjur er sam- sýning meðlima í Vinnustofu í myndlist, sem starfrækt er í Mynd- listaskólanum í Reykjavík. Sýning- in er partur af List án landamæra. Hvað? Reykjavík 1918, sýning í Aðal- stræti 10 Hvenær? 10.00 Hvar? Borgarsögusafn Reykjavíkur Ljósmyndasýningin REYKJAVÍK 1918 í Aðalstræti 10 er samstarfs- verkefni Þjóðminjasafns Íslands og Borgarsögusafns Reykjavíkur í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands og er styrkt af afmælis- nefnd viðburðarins. Höfundur texta sýningarinnar er skáldið Sjón og kemst hann svo að orði um við- fangsefni sýningarinnar: „Er maður hugsar til fólksins sem lifði árið 1918 þykir manni ótrúlegt að það hafi haft tíma til þess að lifa svo- kölluðu venjulegu lífi, það hljóti að hafa verið of önnum kafið að takast á við hina sögulegu viðburði til þess að elska, vinna, dreyma og þjást. En líkt og við sjálf, sem einn- ig þykjumst lifa viðburðaríka tíma, átti það sér sína daglegu tilveru, í sinni litlu en ört vaxandi Reykjavík og um það bera ljósmyndirnar á þessari sýningu vitni.“ Hvað? Torfhúsabærinn Reykjavík Hvenær? 10.00 Hvar? Borgarsögusafn Reykjavíkur Torfhúsabærinn Reykjavík er heiti sýningar Borgarsögusafns í Aðal- stræti 10, sem opnuð var 10. maí 2018. Sýningin fjallar um torfhús í Reykjavík frá upphafi landnáms til fyrstu áratuga 20. aldar. Í þúsund ár var Reykjavík torfhúsaþorp, svo tók við stutt timburhúsatímabil og í eina öld hefur Reykjavík verið steypuhúsabær. Fornleifarann- sóknir undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að þegar um árið 1000 hafði myndast lítið þorp torfhúsa í Reykjavík. Niðurstöður rannsókn- anna eru kynntar meðal annars á þrívíddar tölvulíkani sem sýnir torfhúsaþorpið. Þorgrímur Þráinsson fagnar útgáfu bókar sinna Íslenska kraftaverkið – Á bak við tjöldin í Pennanum Austurstræti í dag. Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur Hvar@frettabladid.is m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17m Á n U D A g U R 1 4 . m A í 2 0 1 8 1 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 2 -2 1 0 4 1 F C 2 -1 F C 8 1 F C 2 -1 E 8 C 1 F C 2 -1 D 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.