Feykir - 12.01.2012, Side 2
2 Feykir 02/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Hugleiðingar um veiðibann
Nú fer KS-deildin í
hestaíþróttum að fara af
stað enn eitt árið en úrtaka
fer fram miðvikudaginn 25.
janúar í Svaðastaðahöllinni
og hefst kl. 20:00. Keppt
verður í fjór- og fimmgangi
en alls eru sex sæti laus í
keppninni.
Þar sem tveir keppendur
hafa afboðað þátttöku vegna
flutnings af svæðinu, áskilur
stjórn MN sér rétt til að
úthluta tveimur sætum til
viðbótar ef viðunandi
árangur í úrtöku næst.
Skráning fer fram fyrir
föstudagskvöldið 20. janúar
hjá Eyþóri: 848-2725 og
Stefáni : 860-2050. /PF
Meistaradeild
Norðurlands
Sex sæti
laus
Tillaga hefur verið gerð um veiðibann í fimm ár á fimm
tegundum á svartfugli. Sitt sýnist hverjum um þær
hugmyndir og hefur umræðan undanfarið farið um víðan
völl í fjölmiðlum og ýmsar ásakanir á hendur vísinda-
mönnum fengið að fljúga um loftin. Virðist sem litlar sem
engar rannsóknir hafi farið fram á svartfugli á Íslandi en það
sem vitað er nú er að hann fær ekki æti fyrir sunnan land og
nær ekki að koma ungum sínum á legg. Afleiðingarnar eru
augljóslega þær að stofninn minnkar á því svæði. Aðra sögu
hafa veiðimenn á Norðurlandi að segja og vilja meina að
nóg sé af fugli og óþarfi að setja algjört veiðibann yfir allt
landið, enda veiðarnar það litlar að ekki skiptir máli fyrir
stofninn í heild. Hvort fuglinn er að drepast fyrir sunnan
eða færir sig á lífvænna svæði annars staðar á landinu er
ekki hægt að segja með vissu því það hefur ekki verið
rannsakað að mér skilst. Annar vinkill í umræðunni er að
bannið sé af pólitískum toga þar sem ESB hefur viljað friða
fuglinn á sínu umráðasvæði og sú tillaga sem Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra stendur fyrir sé einn þátt-
ur í meintu aðlögunarferli Íslands í sambandið, eins og
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður hefur bent á. Sé
raunin sú, er málið komið á algerar villigötur og niðurstaðan
getur aldrei orðið fagleg.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Útsvarslið Skagafjarðar
Komið í þriðju
umferð Útsvars
Skagfirsku kvenskörung-
arnir í Útsvari stóðu sig
með eindæmum vel í
gærkvöldi þegar þær
stöllur, Erla Björt Björns-
dóttir, Guðrún Helgadóttir
og Guðrún Rögnvaldar-
dóttir, gerðu sér lítið fyrir
og slógu út systkinin af
Seltjarnarnesi í spennandi
þætti.
Lið Skagafjarðar fór vel af
stað og náði forystu, Guðrún
Rögnvaldar lék eldhúsáhöld
af snilld og að orðaleiknum
loknum var staðan 49-38.
Seltirningar náðu sér á strik í
flokkaspurningunum og
jöfnuðu 51-51 en það var
síðan á lokakaflanum, í stóru
spurningunum, sem leiðir
skildu, lokatölur 76-51 fyrir
Skagafjörð og liðið komið í
þriðju umferð en svo langt
hafa lið Skagafjarðar aldrei
náð í þáttunum.
Í lokin skiptust liðin síðan
á gjöfum og fengu Skag-
firðingarnir bók Yrsu
Sigurðardóttur að gjöf en
færðu Seltirningum í staðinn
vetrarpakka í fjörðinn fagra;
miða á Vínartónleika
Karlakórsins Heimis sem
fram fara í Menningarhúsinu
Miðgarði um næstu helgi,
aðgang að skíðasvæði
Tindastóls, út að borða á
Ólafshúsi og síðan verða
systkinin að skipta á milli sín
gistingu á Hótel Varmahlíð,
Hótel Tindastóli og Mikla-
garði. /ÓAB
Áætlunarflug á Krókinn
Ögmundur skoðar málin
Mikið er lagt upp úr því af
hálfu sveitarstjórnarmanna í
Skagafirði að áætlunarflug
til staðarins hefjist að nýju
og hafa viðræður farið fram
milli þeirra aðila sem að því
koma. Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra sýnir
málinu áhuga og segist
vera að skoða það frá öllum
hliðum.
-Það kom mér á óvart að
flugið stöðvaðist eftir innspýt-
ingu í lokafjárlögum en er nú
að skoða alla valkosti í stöð-
unni, segir Ögmundur sem
ekki gat tjáð sig um málið að
öðru leyti að svo stöddu.
Ögmundur segist hafa fundið
fyrir áhyggjum og þrýstingi af
hálfu heimamanna og málið
verði skoðað frá öllum hliðum.
Stefán Vagn Stefánsson forseti
sveitarstjórnar Skagafjarðar
segir að hart sé unnið í málinu
og hreyfing sé komin á það.
Finna þurfi lausn á því sem
fyrst, helst í næstu viku.
Ekki er laust við að heima-
menn hafi áhyggjur af því að
ekki er flogið á Krókinn en frá
áramótum er ekkert áætlun-
arflug á Norðurland vestra sem
varla getur talist viðunandi að
mati flestra. /PF
Háskólinn á Hólum
Hlaut tvo styrki
Hólaskóli hlaut tvo styrki
frá Rannsóknasjóði Rannís
sem úthlutaðir voru nýverið
til nýrra rannsóknarverkefna
fyrir árið 2012. Báðir
styrkirnir bjóða upp á
framhaldsumsóknir til allt
að þriggja ára og fáist
styrkur öll árin er
heildarstyrktarupphæð
hvors styrks fyrir sig um 20
milljónir.
Skv. heimasíðu Hólaskóla
var samkeppnin hörð en af
267 umsóknum fengu ein-
göngu 47 styrk, eða 17,7%.
Flestar umsóknir koma frá
stóru háskólunum, Háskóla
Íslands og Háskólanum í
Reykjavík, og til þeirra fara
flestir styrkir. Aðrir háskólar
fengu að þessu sinni fjóra
styrki og sem fyrr segir koma
tveir þeirra í hlut Háskólans á
Hólum.
Annað verkefnið sem hlaut
styrkinn kallast Dægursveiflur
í virkni bleikju í íslenskum ám
en verkefnisstjóri er Stefán Óli
Steingrímsson. Auk Stefáns
eru þátttakendur þeir Sveinn
Kári Valdimarsson (Náttúru-
stofu Reykjaness), James W.
Grant (Concordia University,
Kanada), Richard A. Cunjack
og Tomi Linnansaari (báðir
frá University of New
Brunswick, Kanada).
Hitt verkefnið kallast
Mikilvægi vistfræðilegra þátta,
svipgerðar og erfða fyrir
líffræðilega fjölbreytni hjá
hellableikju á Íslandi. Verk-
efnisstjóri er Skúli Skúlason
en aðrir þátttakendur eru
Bjarni K. Kristjánsson (Há-
skólanum á Hólum), Sigurður
S. Snorrason (Háskóla
Íslands), Moira M. Ferguson
(University of Guelph,
Kanada), Michael Morrissey
(University of Massachusetts),
Árni Einarsson (Náttúrurann-
sóknarstöðinni við Mývatn)
og Katja Räsänen (EAWAG,
Sviss). /BÞ
Maður ársins í Húnaþingi
Valið stendur yfir
Húnahornið stendur nú fyrir
vali á manni ársins í
Húnaþingi í sjöunda sinn og
stendur valið til miðnættis
þann 18. janúar nk. og
verða úrslit kynnt laugar-
daginn 21. janúar.
„Við biðlum til lesenda að
senda inn tilnefningu í gegnum
þar til gerðan rafrænan
atkvæðaseðil. Hver og einn
getur aðeins sent inn eina
tilnefningu og er jafnframt
óskað eftir ástæðu tilnefn-
ingarinnar. Maður ársins í
Húnaþingi getur verið einn
einstaklingur eða hópur
manna,“ segir á Húnahorninu.
Í fyrra var Bóthildur Hall-
dórsdóttir valin maður ársins
af lesendum Húnahornsins, þá
annað árið í röð.
Menn ársins í Húnaþingi
síðustu ár eru þessir:
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
Sjá nánar á Húni.is /BÞ
Ásmundur Einar Daðason
alþingismaður hefur óskað
eftir fundi hjá umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis
hið fyrsta til að ræða
hugmyndir um 5 ára friðun
á svartfugli.
Óskað er eftir því að
fulltrúi umhverfisráðuneytis
mæti á fundinn, auk fulltrúa
allra þeirra aðila sem upp-
haflega áttu sæti í starfshóp
ráðherra og skilaði nýverið af
sér skýrslu, eins og kemur
fram í bréfi Ásmundar Einars
til nefndarinnar.
Einnig óskar hann eftir því
að fulltrúar samninganefndar
Íslands vegna ESB umsókn-
arinnar komi á fundinn, í ljósi
þess að um er að ræða
fuglategundir sem ESB krefst
veiðibanns á. /BÞ
Friðun á svartfugli
Ásmundur
vill ræða
bannið
Breytingar standa yfir á
bókasafninu í Fellsborg um
þessar mundir og á meðan
framkvæmdir fara fram
flytur safnið starfsemi sína
í kjallara Bjarmaness.
Einungis hluti bókanna
verður í Bjarmanesi en leitast
verður við að setja upp safn
bóka sem inniheldur nýjustu
og vinsælustu bækurnar til
útláns. /BÞ
Skagaströnd
Bókasafn