Feykir - 12.01.2012, Blaðsíða 3
02/2012 Feykir 3
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS-bókin er með 2,25% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3,50% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
Norðurland vestra
Víða kvartað undan leka
Talsverður snjór er nú um
land allt og víða mikill
klaki. Þegar hlýnar og
rignir er töluverð hætta á
vatnstjónum og hafa
margir kvartað undan leka,
þá aðallega frá þökum og
svölum en einnig í
kjöllurum eða bílskúrum.
Nokkrar tilkynningar um
leka frá þökum bárust til VÍS
þegar hlýnaði s.l. föstudag og
samkvæmt Sigurbirni Boga-
syni á þjónustuskrifstofu Vís á
Sauðárkróki er mikilvægt að
allir séu meðvitaðir um þá
hættu sem geti skapast og
bregðist við henni.
Ef yfirborðsvatn verður
svo mikið í asahláku að
venjuleg vel hreinsuð niðurföll
hafa ekki undan er það tjón
bætt sem stafar af vatni sem
streymir inn í hús. Ekki er
skylt að bæta öll vatnstjón, til
dæmis ekki vegna:
- Vatns sem kemur inn frá
þökum, þakrennum eða
frárennslisleiðslum þeirra eða
frá svölum.
- Vatns sem þrýstist upp um
frárennslislagnir nema ef
leiðslan stíflast eða springur
innan húss.
Jafnframt er mikilvægt að
átta sig á því að við vissar
aðstæður verður mun meiri
þungi í snjónum. Þá er hætta á
að þök og þakkantar gefi sig ef
snjór er ekki hreinsaður af
þökum en nú þegar hafa slík
tjón verið tilkynnt til VÍS. /BÞ
Starfsmenn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fóru um götur
Sauðárkróks í upphafi
vikunnar og hreinsuðu upp
leifar áramótaskotelda sem
skildar voru eftir á götum
bæjarins af skotglöðum
bæjarbúum.
Það vill oft verða svo að fólk
hreinsar ekki eftir sig að loknu
skemmtilegu gamlárskvöldi og
kassar undan skottertum og
annar óþrifnaður skilinn eftir á
götunum. Þegar blaðamaður
smellti mynd af þeim Gunnari
Péturssyni og Steini Ástvalds-
syni voru þeir staddir við
Raftahlíðina að tína upp rusl
áramótanna en þar höfðu
krakkar rétt þeim hjálparhönd
með því að setja það á einn stað.
Voru þeir ánægðir með framtak
þeirra og sögðu að það flýtti
mikið fyrir þeim. Annars voru
þeir ekki ánægðir með sóða-
skapinn sem væri almennt
mikill í bænum eftir þetta
síðasta kvöld ársins. /PF
Krakkarnir í Raftahlíðinni höfðu safnað saman dágóðri hrúgu af skottertulíkum og fengu hrós fyrir frá
starfsmönnum sveitarfélagsins.
Sumsstaðar þurfti að draga hin ýmsu ílát til að taka við bleytunni sem kom ofan af loftinu.
Sauðárkrókur
Tekið til eftir
flugeldaskothríð
Hvammstangi
Iðjan tekur við kertaafgöngum
Þeir sem búa yfir kertaafgöngum mega
gjarnan skila þeim til Iðju, vinnustofu fyrir
fatlaða einstaklinga í Húnaþingi vestra, en
þar verða þau brædd upp og notuð til að
gera ný kerti.
„Vaxið er gott hráefni til endurvinnslu sem við
ættum ekki að láta fara til spillis,“ segir í
tilkynningu frá Iðjunni sem birt var á vefsíðu
Norðanáttar. Starfsmenn Iðjunnar sinna verk-
efnum af ýmsu tagi fyrir fyrirtæki og félaga-
samtök.
Hægt er að skilja poka eftir fyrir utan dyr
Iðjunnar að Brekkugötu 14 (neðri hæð) ef enginn
er á staðnum. Síminn í Iðju er: 451-2926 /BÞ
Vinstrihreyfingin
grænt framboð
Svæðisfélög VG í Húnavatnssýslu og Skagafirði boða til
sameiginlegs fundar í sal Samstöðu að Þverbraut 1, Blönduósi,
næstkomandi mánudag, 16. janúar kl. 20.00.
Gestir fundarins verða
alþingismennirnir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
og Jón Bjarnason
Allir velkomnir. Fjölmenn um
Stjórnir félaganna.
FUNDUR
Hópur drengja skemmtu sér vel í snjókasti á Skagaströnd sl. föstudag er blaðamaður Feykis átti leið hjá. Blaðamaðurinn notaði tækifærið smellti
mynd af piltunum í hita leiksins.
Svipmynd
Snjókast á Skagaströnd