Feykir - 12.01.2012, Qupperneq 4
4 Feykir 02/2012
Ný smábátahöfn á Sauðárkróki
Rúmar alls um 60 báta
Á fundi byggðaráðs
Skagafjarðar þann 17.
nóvember sl. var lögð fram
greinargerð og grunnmynd
ásamt frumkostnaðar-
áætlun að nýrri smábáta-
höfn á Sauðárkróki en
greinargerðin var unnin hjá
Siglingastofnun í ágúst
2011 að beiðni Skagafjarð-
arhafna. Samþykkt var að
fullvinna útboðsgögn og
lagt til að verkið verði boðið
út í einum verkáfanga.
Í greinargerðinni sem
unnin var af Kristjáni Helga-
syni og Rob M.P. Kamsma hjá
Siglingamálastofnun að höfðu
samráði við Jón Örn Berndsen
og Gunnar Steingrímsson hjá
Skagafjarðarhöfnum má lesa
eftirfarandi:
Í apríl 2011 var óskað eftir
því af hálfu Skagafjarðarhafna
að Siglingamálastofnun ynni
útboðsgögn vegna fyrirhug-
aðrar smábátahafnar í Sauðár-
krókshöfn í samræmi við
samþykkt deiliskipulag. Í
viðræðum sem áttu sér stað í
framhaldinu kom fram að áður
en hafist væri handa við gerð
útboðsgagna væri rétt að ganga
frá málsettu plani af höfninni
ásamt greinargerð með kostn-
aðarmati og hugsanlegum
áfangaskiptum framkvæmda.
Við gerð grunmyndar að nýrri
smábátahöfn var í megin-
atriðum gengið út frá deili-
skipulagi hafnarinnar, þó með
lítilsháttar breytingum á fyll-
ingarsvæðum og afstöðu
flotbryggja. Næsti áfangi er að
vinna útboðsgögn samkvæmt
þeim hugmyndum sem hér eru
settar fram og útboð fram-
kvæmda við smábátahöfnina
þegar tilskyldar heimildir liggja
fyrir hjá stjórn Skagafjarðar-
hafna.
Núverandi aðstæður
smábáta í
Sauðárkrókshöfn
Núverandi smábátafloti, sem
aðstöðu hefur í Sauðárkróks-
höfn, telur alls rúmlega 50
báta. Þar af 10 stórir (10 – 15 m
langir), 24 minni bátar sem að
jafnaði eru á floti allt árið og á
bilinu 15 – 20 skektur sem
teknar eru á land hluta úr ári.
Í núverandi smábátahöfn er
38 m löng timburflotbryggja
(76 m viðlega) byggð 1987 og
47 m viðlegubryggja úr timbri
byggð árið 2006 við vesturkant
hafnarinnar. Auk þess er
tæplega 60 m viðlegukantur
sunnan á Suðurbryggju en þar
liggja að jafnaði stærri bátar.
Dýpi við flotbryggjuna er um
1,5 – 2,5 m, við trébryggjuna
2-3 m og við suðurkant
Suðurbryggju er dýpi 4,5 – 5,5
m nema á 15 m kafla efst er
dýpi 1- 3 m. Með sæmilegu
móti geta legið í núverandi
höfn um 30 smábátar. Þá er
miðað við 6 báta af stærri gerð
við trébryggjuna, 4 efst við
suðurkant Suðurbryggju og 20
bátar af minni gerð liggi við
flotbryggju. Það vantar því
talsvert upp á núverandi þörf
fyrir viðlegu smábáta í Sauð-
árkrókshöfn sé fullnægt.
Ný smábátaaðstaða og
breyting á núverandi
Reiknað er með að ný smá-
bátahöfn í krikanum innan
Suðurgarðs rúmi alls um 60
báta þegar hún er fullbyggð.
Þar af yrðu 14 pláss ætluð
stærstu gerð smábáta (10 – 15
m) og um 46 pláss fyrir minni
báta og skekktur.
Gert er ráð fyrir tveim
nýjum flotbryggjum. Önnur,
80 m löng og 3 m breið
(öldubrjótur), er frá norður-
kanti hafnarinnar austan
smábátaaðstöðunnar og skýli
fyrir vindbáru sem getur náð
sér upp innan hafnar á sæfleti
frá Norðurgarði. Vestan á
þeirri bryggju er reiknað með 7
stk. 12 m löngum fingrum, þar
verður örugg viðlega fyrir 14
smábáta af stærri gerð. Að auki
verður með aðgæslu hægt að
nýta útkant bryggjunnar þann
tíma þegar ekki eru stífar
norðlægar áttir. Hin nýja
bryggja yrði 6o m löng og 2,4
m breið, lögð út frá vesturkanti
smábátahafnarinnar í skjóli af
öldubrjótnum. Þar er gert ráð
fyrir allt að 36 báta plássi við 6
og 8 m langar fingur.
Loks er gert ráð fyrir að
færa timburflotbryggjuna sem
er í núverandi smábátahöfn og
staðsetja nyrst við vesturkant
nýju smábátahafnarinnar. Þar
er reiknað með viðlegu fyrir
um 20 smábáta af minnstu
gerð.
Við landgöngubrýr flot-
bryggja í nýju höfninni yrðu
sett upp læst hlið til að hindra
óviðkomandi aðgang. Á
bryggjum yrðu settir upp
tenglastólpar svo bátar gætu
tengst rafmagni úr landi og
gengið frá lýsingu á svæði við
höfnina og á bryggjum. Vatn
yrði lagt að hverri bryggju,
vatnsúttök staðsett við land-
ganga. Sunnan uppfyllingar
við vesturkant hafnarinnar er
gert ráð fyrir steyptri skábraut
5 x 24 m þar sem taka má upp
og sjósetja báta.
Í núverandi smábátaað-
stöðu yrði áfram viðlega fyrir
10 smábáta af stærri gerð við
trébryggjuna og á suðurkanti
Suðurbryggju. Svæðið þar sem
flotbryggjan var mætti í
framtíðinni fylla upp með efni
úr dýpkun og fá þar aukið
landrými.
Með framkvæmdum við
nýja smábátahöfn verður því
hægt að uppfylla núverandi
viðleguþörf og taka við hugs-
anlegri fjölgun smábáta í
framtíðinni.
Niðurstaða
Grunnmynd að nýrri smá-
bátahöfn við smábátahöfn í
krikanum innan við suðurgarð
gerir ráð fyrir u.þ.b. 60
viðleguplássum fyrir smábáta.
Fjölga mætti plássum enn
frekar með því að skipta út
gömlu timburflotbryggjunni
og setja þar í staðinn 60 m
steypta flotbryggju. /PF
Grunnmynd smábátahöfn 1:2000
Grunnmynd smábátahöfn 1:500
Er eitthvað að frétta?
Hafðu samband - Síminn er 455 7176