Feykir - 12.01.2012, Blaðsíða 8
8 Feykir 02/2012
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
Gerður Rósa Sigurðardóttir frá Hvammstanga
Að halda í barnið
í sjálfum sér
Ég hef alltaf sagt, og
hef alist upp við það,
að maður eigi að halda
eins lengi og maður
getur í barnið í sjálfum
sér. Í gegnum tíðina
hef ég nú yfirleitt ekki
átt erfitt með það og
þarf stundum að minna
sjálfa mig á að ég sé
komin í fullorðinna
manna tölu.
Á jólunum brýst
spenningurinn út og ég
á stundum erfitt með að
hemja barnaskapinn,
sérstaklega þegar kemur
að því að opna pakkana.
Á aðfangadagskvöld er
ég ávallt fyrst að borða
og byrja mjög fljótlega
að reka á eftir öðrum
fjölskyldumeðlimum,
á meðan ég sit hjá
jólatrénu og þukla
pakkana. Það fór alltaf
óstjórnlega í pirrurnar á
mér hvað hann bróðir
minn gat alltaf verið
lengi að borða og jafnvel
komu þær tillögur hvort
hann gæti nú ekki bara
tekið diskinn með sér inn
í stofu svo við gætum
byrjað á þessu. Já, það
er ekki tekið út með
sældinni að eiga bróðir
sem gerði í því að fá sér
oft og mikið á diskinn,
vitandi það að litla systir
var við það að æla úr
spenningi.
Þar sem dýrin hafa
alltaf verið álitin sem
hluti af fjölskyldunni á
mínu heimili, er ekkert
skemmtilegra en að
gera vel við þau líka á
jólunum. Þó það sé ekki
nema auka sag eða
nammi fyrir hrossin, leyfa
hundinum að vera inni
í stofu, slaufa á köttinn,
gefa fuglunum mat og
ég tala nú ekki um hvað
kýrnar verða glaðar með
smá auka fóðurbæti.
Þær slá nú ekki halanum
á móti því. Þetta er það
sem fullkomnar jólin
hjá mér.
Svona eru nú jólin
mín, það eiga allir að
eiga gleðileg jól hvort
sem maður er dýr eða
manneskja. Ég vona að
allir hafi hleypt barninu
í sér út á jólunum og
jafnvel skottast út í fjós
að kyssa kusurnar, það
eru nú bara jól einu sinni
á ári.
- - - - -
Ég var nú að spá í að
skora á bróðir minn fyrir
að vera lengi að borða
en ákvað að skora frekar
á Hrund Jóhannsdóttur,
því hún er svo sæt pía.
Bjórsetur Íslands er
félagskapur bjóráhugamanna
á Hólum í Hjaltadal þar
sem þeir Guðmundur B.
Eyþórsson, Broddi Reyr
Hansen og Bjarni Kristófer
Kristjánsson ráða ríkjum.
Bjórsetrið er staðsett á
efri hæð í gömlu útihúsi
Hólaskóla en á neðri
hæðinni er bruggaður bjór
og að sjálfsögðu er leyfi
fyrir öllu umstanginu,
bæði vínveitingaleyfi sem
og framleiðsluleyfi. Bjarni
Kristófer segir að um
tómstundargaman sé að
ræða en hann var spurður út
í það hvernig það hafi komið
til að bjórsetur var sett á
stofn.
-Það var bara áhuga-
mennska um bjór, enda gott
að drekka góðan bjór. Þá var
ákveðið að stofna klúbb sem
orðið er að litlu fyrirtæki.
Samt er klúbbstarfsemin
höfð í hávegum, segir Bjarni
og því til staðfestingar
sýnir hann blaðamanni
fundargerðarbókina þar
sem skráðir eru niður allir
fundir klúbbsins allt frá
árinu 2007. –Við erum svo
ríkir að við fjárfestum í dýrri
fundargerðarbók. Það er
að vísu misgáfulegt sem fer
þarna inn. Bjarni fullyrðir að
á Bjórsetrinu sé mesta úrval
á landinu af bjór eða um
sextíu tegundir víðs vegar
að úr heiminum og nokkrar
sérinnfluttar einungis á
þennan eina bar. Undirritaður
hefur það á orði að hann þekki
ekki margar tegundir sem eru
í kælinum og segir Bjarni að
reynt sé að hafa sem minnst
af hefðbundnum lagerbjór
sem mest eru drukknir á
íslenskum börum. -Við erum
mikið með belgíska bjóra,
en Belgía má segja er Mekka
bjórsins í heiminum og erum
við með ákveðnar gerðir af
bjór þaðan, segir Bjarni og
sýnir blaðamanni Belgian
Strong Ale sem er fullra 11%
og segir Bjarni þetta vera
alvöru bjór. –Svo höfum við
verið að láta flytja inn fyrir
okkur þýska Bock bjóra sem
eru einnig sterkir og mikið
bragð af þeim, það má jafnvel
kalla þá vetrarbjór. Bjarni
segir að nokkuð sé af breskum
bitter bjórtegundum, og
einnig amerískum Indian
Pale Ale enda sé mikil sveifla
á bjórhugmyndafræðinni
í Bandaríkjunum. –Við
erum einnig með bjóra
frá Danmörku sem heitir
Mikkeller en Mikkeller
er bruggmeistari sem er
listamaður á þessu sviði en
hann notar ekki striga heldur
bjór. Við höfum fengið
nokkrar tegundir frá honum
sem eru mjög flottar. Bjarni
segir að alltaf sé eitthvað
til af íslenskum bjór líka
og að sjálfsögðu er alltaf til
hinn skagfirski Gæðingur á
boðstólnum.
Ríkið á Króknum
með mesta úrvalið
Bjarni segir að mikið af
bjórnum sé pantaður í gegn
um Ríkið á Sauðárkróki og
stundum monti Bjórsetrið
sig af því að þar sé meira
úrval en hjá öðrum
landsbyggðaáfengissölum
vegna þess að það panti svo
mikið í gegn um það. –Við
kaupum einnig beint frá
framleiðendum og það er einn
þeirra sem við höfum samið
við sem flytur inn fyrir okkur
einn til tvo kassa af hverri
gerð, segir Bjarni stoltur. Fleiri
bjórar eru pantaðir beint og
sýnir Bjarni eina tegund sem
ekki fær náð fyrir augum
þeirra er ákveða hvað má selja
í Ríkinu, vegna miðans, en á
honum er mynd af byssum.
Vinsælar
bjórkynningar
Boðið er upp á bjórkynningar
á setrinu fyrir hópa og segir
Bjarni að þeir hafi komið
margir undanfarna mánuði
og segir hann þær hafi tekist
vel. -Þær kosta 3000 krónur
á mann og fer eftir því hversu
áhugasamir menn eru, hversu
lengi er spjallað. Það getur
tekið frá einum og hálfum
tíma og upp í tvo og hálfan.
Það sem við gerum er að
við höldum fyrirlestur um
bjórinn, hvernig hann varð
til og hvernig hann tengist
menningu landsins. Einnig
Bjórsetur Íslands heimsótt
Mesta úrval
landsins af bjór
erum við með tíu tegundir
sem við smökkum. Þá förum
við í gegnum bjórstíla í
mismunandi löndum og
berum saman.
Bruggað á
neðri hæðinni
Undir Bjórsetrinu er starfandi
brugghús þar sem bjórinn
Vesturfari er bruggaður
og að sjálfsögðu seldur á
efri hæðinni. Bjarni segir
að ýmsar hugmyndir hafi
komið upp varðandi nafnið
en það þurfti að vera eitthvað
skagfirskt. Vesturfarinn á
að skírskota til vesturfara
úr Skagafirði eða jafnvel
Bjarni glaðbeittur fyrir innan barborðið á Bjórsetri Íslands.
Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Það er Broddi Reyr sem er
bruggmeistarinn
Hægt er að brugga 40
lítra í einu sem ekki getur
talist mikið en að sögn
Bjarna er draumurinn að
auka framleiðsluna upp
í a.m.k. 100 lítra. –Þetta
er það skemmtilega við
Bjórsetrið að það er ekki
magnið sem ræður heldur er
um áhugamennsku að ræða
með allt löglegt. Þetta þarf
að standa undir sér en það er
enginn á launum.
Fyrir þá sem vilja fá panta
kynningu segir Bjarni best að
senda tölvupóst á bjorsetrið@
mail.holar.is eða hringja í
einn þeirra þriggja sem að
setrinu standa og er þá ekkert
mál að finna tíma. -Svo er
alltaf opið á föstudögum
bæði fyrir klúbbfélaga og
aðra sem geta komið líka. En
ef það er hópur sem vill vera
út af fyrir sig er hægt að opna
sérstaklega fyrir hann. /PF