Feykir - 04.04.2012, Page 6
6 Feykir 14/2012
Ferðasaga Kristrúnar Kristjánsdóttur
frá Melstað í Miðfirði
Með penna
í farteskinu
Kristrún Kristjánsdóttir frá Melstað
í Miðfirði lagði af stað heimsreisu
þann 15. febrúar sl., ásamt Lóu Dís
Másdóttur en vinkonurnar verða
á ferðalagi næstu þrjá mánuðina.
Kristrún var áskorendapenni Feykis
í febrúar sl. og komst Feykir þá á
snoðir um ferðaáætlanir hennar og
bað hana að deila ferðasögu sinni
austur á bóginn með lesendum
Feykis. Hér er komin færsla frá upp-
hafi ferðalagi hennar og svo fáum
við að fylgja þeim stöllum eftir á vit
ævintýranna í næstu blöðum.
Loksins er ég komin til Dubai. Það má
segja að ferðalagið hafi samt byrjað að
hálfu þann 15. febrúar, þá skellti
ég mér nefnilega til Köben með eitt
stykki kartöflu í hálsinum í leit að
Dönum til að æfa mig á. Það vildi svo
óheppilega til að lítið varð um dönsku
því helmingur þjóðar vorrar hefur
holað sér þarna niður. Ég fékk að gista
hjá einum þeirra; Kjartani en hann er
kokkur á Laundromat, mikill rokkari
og snillingur. Við fórum á alls kyns
pöbba og enduðum auðvitað á Blasen
þar sem allir íslendingarnir voru... en
þetta er saga sem við höfum öll heyrt og
upplifað.
Þann 26. febrúar var svo komið
að því að fara til Dubai, ég var með smá
hnút í maganum vegna klæðaburðar
og fór í leiðangur með Kjartani daginn
fyrir flug í leit að flík sem sýndi sem
minnst og huldi það mesta. Þegar ég
lenti svo loksins í Dubai voru flestir
frekar léttklæddir að undanskildum
Aröbunum auðvitað. Arabamennirnir
eða Emmerati-arnir eins og þeir eru
kallaðir þar í landi eru
allir klæddir í síða hvíta
kjóla, með hvíta eða
köflótta klúta á hausnum
og einhvers konar leður
eða kaðal band í hring
um hausinn til að halda
klútnum á réttum stað.
Konurnar eru klæddar í
svarta kjóla sem hylja allt
og með klúta á hausnum
sem hylja alltaf hárið
en misjafnt er þó hvort
sjáist í allt andlitið eða
einungis augun. Það kom mér á óvart
að karlmennirnir væru alltaf klæddir í
búning eins og konurnar, einhvernvegin
eru búningar kvenna mun áberandi í
vestrænu samfélagi.
Ég leitað mér að taxa og fann ágætis
bílstjóra að ég hélt, það endaði nú samt
þannig að ég borgaði 60$ (7000 kr.) fyrir
örstutta ferð á Gloria Hotel, því þetta
var í rauninni ekki alvöru taxi, bara
einhver svindlari. Taxarnir eru í raun
alls ekki dýrir hér og mun ódýrari en
heima. Hótelið reyndist dásamlegt, ég
fékk herbergi á 40. hæð með útsýni yfir
alla borgina sem lítur út eins og risastór
sandkassi með fullt af risastórum
sandhúsum, kuflklæddu sandfólki og
nýjustu og flottustu leikfangabílunum.
Þar sem ég var ein á hótelinu fyrstu
tvo dagana ákvað ég að skoða mig
aðeins um; þá komst ég að því að
reglurnar með klæðaburð eru alls ekki
svo strangar. Dubai er auðvitað mjög
ung borg og um helmingur búenda
eru útlendingar. Múslímarnir halda
þó í sínar hefðir, eins og t.d. var áfengi
ekki selt á hótelinu okkar og ekkert
svínakjöt á boðstólnum. Í staðinn
buðu þeir upp á shisha eða vatnspípur
svokallaðar og alls kyns öðruvísi kjöt
eins og kameldýr, lamb og þess háttar.
Þrátt fyrir að ekki var áfengi á hótelinu
er það samt selt á flestum hótelum
og skemmtistöðum, nokkurs konar
„friðhelgi“ fyrir túristana.
29. febrúar kom Hafsteinn vinur
minn frá Bahrain, þar sem hann býr og
vinnur sem einkaflugmaður fyrir sjeik
(fursta) og fjölskyldu hans. Sama dag
hitti ég fleiri vini hans, allir flugmenn,
og ákváðum að taka smá roadtrip í
vínbúð sem er opin almenningi en hún
er í rúmlega klst. fjarlægð frá Dubai.
Við keyrðum útúr borginni og við
okkur blasti óendanleg eyðimörk. Við
keyrðum framhjá, „draugaborginni“,
hún ber það nafn því rétt áður en
kreppan skall á var verið að byggja
hana af kappi en allar aðgerðir féllu
niður og nú standa margar tugir háhýsa
hálfkláruð og auð. Ég er ekki frá því
að minnsta kosti hálf
íslenska þjóðin kæmist í
þessar byggingar. Áfram
héldum við og mættum
svo hóp kameldýra, við
stoppuðum og fórum
út til að reyna að ná
myndum en þá gengu
þau bara til okkar,
ótrúlega gæf og leyfðu
okkur að klappa sér.
Loks komum við að
vínbúðinni eftir nokkrar
vitlausar beygjur, hún
stendur í lítilli húsaþyrpingu með
litlu resturanti við ströndina. Þarna
var mikið úrval reyndar svo mikið að
rassinn á bílnum snerti næstum jörðina
þegar við héldum heim á leið, enda var
einn vinurinn Þjóðverji.
Þegar við komum til baka var kominn
kvöldmatartími svo við ákváðum að
fara á mjög local veitingarstað við
höfnina. Staðurinn heitir Bu Qtair og
var æðislegur, fyrst fór maður bakvið í
eldhúsið þar sem fiskarnir lágu dauðir
í einhverri dressingu og þar völdum
við okkur tvo stóra fiska og slatta af
rækjum. Svo borguðum við og biðum
eftir að vera kölluð upp. Maturinn
var dásamlega góður, þarna var ekki
boðið upp á hnífapör
heldur voru það bara
guðsgafflarnir sem fengu
að njóta sín. Með þessu
var borin fram einhvers
konar sósa, grænmeti og
eitthvað það besta nan-
brauð sem ég hef nokkur
tímann smakkað. Eftir
matinn fórum við á
skemmtistað sem heitir
Barrasti. Þar var boðið
upp á vatnspípu að hætti Arabana
og vegna þess að þetta var hótel var
einnig boðið upp á vínveitingar. Við
skemmtum okkur vel en vorum þó
frekar þreytt eftir daginn svo við fórum
snemma heim á hótel.
2. mars kom Lóan mín til Dubai,
ég og Hafsteinn fórum á flugvöllinn um
morguninn að ná í hana og það urðu
miklir fagnaðarfundir. Við fórum beint
í Dubai-mall til að fá okkur morgunmat
sem var alls ekki af verri endanum, við
fengum okkur æðislega hörpuskel í
forrétt og skötusel í aðalrétt, alveg hreint
dásamlega gott. Í mollinu keyptum við
okkur miða í Bruj Khalifa sem er stærsti
turn í heimi eða allt að 829.84 m, það
var allt uppselt þannig að við keyptum
miða fyrir mánudag. Við gengum um
mollið og sáum þar risastórt fiskabúr
sem innihélt alls kyns fiska og hákarla,
þar var hægt að fá að kafa
með fiskunum en það
kostaði skildinginn svo við
ákváðum að sleppa því.
Um kvöldið fórum
við út að borða með
Hafsteini á stað sem
heitir Madina’s souk,
það er nokkurs konar
markaður, sem er í raun
hið mesta völundarhús,
með fullt af alls kyns
búð-um, restúröntum og klúbbum. Við
borðuðum dýrindismat og drukkum
alls kyns kokteila. Eftir matinn skildu
leiðir og við Lóa fórum upp í taxa
og báðum hann að skutla okkur á
einhvern góðann klúbb. Við enduðum
á skemmtiðstað sem heitir Circus, við
vissum ekkert við hverju mátti búast en
þegar við gengum inn sáum við dverga
dansa í glerbúrum, konur dansandi
með húllahringi, fólk á stultum og
eldspúandi menn á sviðinu. Þetta var
alveg hreint frábær endir á kvöldinu og
við fórum alsælar heim á Gloriu. /KK
~
„Ég fékk herbergi á
40. hæð með útsýni
yfir alla borgina sem
lítur út eins og risastór
sandkassi með fullt af
risastórum sandhúsum,
kuflklæddu sandfólki
og nýjustu og flottustu
leikfangabílunum.“
~
„Þegar við gengum
inn sáum við dverga
dansa í glerbúrum,
konur dansandi með
húllahringi, fólk á
stultum og eldspúandi
menn á sviðinu.“