Feykir - 03.05.2012, Blaðsíða 3
17/2012 Feykir 3
Sérfræðikomur í maí
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Bjarki Karlsson,
bæklunarskurðlæknir, 7. til 10. maí
Haraldur Hauksson,
alm/æðaskurðlæknir, 15. og 16. maí
Sigurður Albertsson,
alm. skurðlæknir, 21. og 22. maí
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Rökkurkórinn og Karlakórinn Heimir
STJÓRNANDI: Sveinn Sigurbjörnsson STJÓRNANDI: Helga Rós Indriðadóttir
UNDIRLEIKARI: Tomas Higgerson UNDIRLEIKARI: Tomas Higgerson
Kóramót
Tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði
laugardaginn 5. maí kl. 20:30
MIÐAVERÐ KR. 3000
GESTAKÓRAR
Karlakór Rangæinga
STJÓRNANDI: Guðjón Halldór Óskarsson
Samkór Reykjavíkur
STJÓRNANDI: John Gear
EFTIR TÓNLEIKANA VERÐUR BALL Í MIÐGARÐI
HVANNDALSBRÆÐUR
spila inn í vornóttina
ALDURSTAKMARK 18 ÁRA
MIÐAVERÐ KR. 2000.-
Frjálsíþróttaskó
li
Ungmennafélags Í
slands
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
-
24
8.
22
2
2012
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er kjörið tækifæri
fyrir öll ungmenni á aldrinum 11–18 ára
til að efla sig í frjálsum íþróttum og
kynnast öðrum ungmennum.
Auk íþróttaæfinga verða ýmsar óvæntar
uppákomur, kvöldvökur, gönguferðir og
fleira skemmtilegt sem eflir félagsandann.
Skólinn hefst á mánudegi og lýkur á
föstudegi. Innifalið í verði, kr. 17.000, er
gisting, matur og kennsla.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
UMFÍ www.umfi.is og í síma 568-2929.
Frjálsíþróttaskólinn
verður haldinn á
eftirtöldum stöðum:
• Laugum í Reykjadal
11. – 15. júní,
• Egilsstöðum 11. – 15. júní,
• Sauðárkróki 11. – 15. júní,
• Borgarnesi 18. – 22. júní,
• Selfossi 16. – 20. júlí.
AÐSENT BJÖRN BJÖRNSSON SKRIFAR
Þakka skal það sem vel er gert
en „hingað og örlítið lengra“
Nú á síðustu vikum hafa
starfsmenn sveitarfélagsins
unnið að því að setja upp
ágætar gatnamerkingar, sem
sannarlega var full þörf fyrir
og er þetta góð framkvæmd
sem allt of lengi hefur verið
beðið eftir og full ástæða að
þakka fyrir.
Hins vegar er það svo, að
oftar en ekki fer nú á þann
veginn að mikið vill meira og
þegar komnar eru svona ágætar
merkingar á götunum, sem
verða gestum sem koma til
Sauðárkróks áreiðanlegar góð-
ar leiðbeiningar, þá er eitt til
viðbótar, sem verulega þyrfti að
taka til skoðunar.
Hér er átt við þann vanda
sem gestir sem koma annað
hvort yfir Þverárfjallið eða frá
austri eftir Strandveginum inn í
bæinn lenda í, þar sem raunar
engar merkingar eru við þau
gatnamót af Strandveginum
sem liggja inn í sjálfan
kaupstaðinn.
Að vísu er við Hegrabrautar-
gatnamótin merki sem vísar
vegfarendum á sjúkrahúsið, en
þar með er upptalið.
Miklu meiri upplýsinga er
þörf fyrir þá ókunnuga sem
koma að þessum gatnamótum
og mætti til dæmis hugsa sér að
þar væri ör sem vísaði vestur
Hegrabraut og síðan gæti þar
staðið t.d. Hlíðar- og Túna-
hverfi, FNV, Heimavist,
Kaupfélag, Árskóli, Íþróttahús.
Við Hólmagrundargatnamótin
mætti hugsa sér að við þá ör
sem þar væri stæði: Suðurbær,
Stígar, Grundir, Slökkvistöð,
Apótek.
Við Freyjugötugatnamót
syðri væri merkingin, Ráðhús,
Bankar, Safnahús, Íþróttavöllur,
Sundlaug.
Við Freyjugötugatnamótin
nyrðri mætti standa: Miðbær,
Kirkja, Lögreglustöð, Minja-
hús, Matsölustaðir, Golfvöllur,
Bakarí.
Við gatnamót Aðalgötunn-
ar við Villa Nova stæði: Gamli
bær, Veitingahús.
Því er þessari ábendingu
komið á framfæri, að um-
ræddar gatnatengingar inn í
kaupstaðinn eru allar lítið
áberandi, og það hefur undir-
ritaður heyrt frá gestum sem
komu eftir Strandveginum að
þeir hafi ekki séð þessi gatna-
mót fyrr en þeir voru rétt að aka
framhjá þeim og ekkert sem
vísaði veg inn í bæinn með
einhverjum fyrirvara.
Nú er það sjálfsagt svo að
Strandvegurinn er líklega
þjóðvegur í þéttbýli og því þarf
til að koma samvinna Vega-
gerðar og sveitarfélagsins, en
varla er líklegt að ekki náist um
þessa þörfu framkvæmd sam-
komulag.
Þessum ábendingum er hér
með vinsamlega komið á
framfæri.
Björn Björnsson
Á þessari mynd má sjá fjórar götumerkingar.