Feykir - 03.05.2012, Blaðsíða 6
6 Feykir 17/2012
Algjör Sæla
Sæluvika 2012 - Lista- og menningarhátíð í Skagafirði
Sæluvikan, lista- og menningarhátíð
Skagfirðinga var formlega sett á atvinnu-
lífssýningunni Lífsins gæði og gleði sl.
sunnudag er Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri
Sveitarfélagsins Skagafjarðar ávarpaði
gesti sýningarinnar.
Eins og jafnan áður er heilmikið á dagskrá
fyrir alla aldurshópa og má nefna tónlistar-,
myndlistar-, kvikmyndalistar- og leiklistar-
sýningar, matar- og kaffiveislur, ljóða-, smásögu-,
ljósmynda- og körfuboltakeppnir og dansleikir.
Má þar nefna að Sálin hans Jóns míns mætir á
Mælifell og heldur uppi stuði. Rúsínan í
pylsuendanum verður svo á laugardagskvöldið
þegar Rökkurkórinn og Karlakórinn Heimir
ásamt Karlakór Rangæinga og Samkór
Reykjavíkur hefja upp raust sína í Miðgarði á
kóramóti. Eftir tónleikana munu Hvann-
dalsbræður svo slá botninn í Sæluvikuna með
dansleik eins og honum er einum lagið.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í til-
efni af Sæluvikunni en fleiri myndir er hægt að
sjá á Feyki.is.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var ræðumaður á Kirkjukvöldi. Myndi: PIB
Sossa og Tolli við opnun sýningarinnar Stefnumót á Krók sem er í Safnahúsi Skagfirðinga.
Í Miðgarði var barna- og fjölskylduskemmtun með Draumaröddum norðursins. Mynd; Hjalti Árna
Gestastofa sútarans stóð fyrir tískusýningum á Skagafjörður – Lífsins gæði og gleði.
Karlakórinn Heimir tróð upp við setningu Sæluvikunnar.
Góðir gestir við opnun myndlistarsýningar Sossu og Tolla.
Multi Musica lét á sér kræla á sýningunni í íþróttahúsinu.
Nokkrir valinkunnir leikarar Leikfélags Sauðárkróks í Tveimur tvöföldum.
Helga Rós söng á Kirkjukvöldi við undirleik Helgu Bryndísar. Mynd: PIB
Heilmikið um að vera í bás Heilbrigðisstofnunarinnar.
Pardusmenn vígalegir á atvinnulífssýningunni.
Fjölmenni var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki við setningu Sæluvikunnar.