Feykir - 03.05.2012, Blaðsíða 7
17/2012 Feykir 7
Kórstarfi slitið
eftir 30 ára hlé
Karlakór Sauðárkróks
Karlakór Sauðárkróks
kom saman í Safnaðar-
heimili Sauðárkrókskirkju
þann 23. apríl til þess að
slíta formlega starfi
kórsins, sem hefur legið
niðri í um 30 ár.
Karlakór Sauðárkróks var
stofnaður þann 20. nóvember
1935 og um sögu hans segir
Ingimar: „Kórinn hefur ekki
starfað samfleytt á undanförn-
um 77 árum, heldur tók hann
sér langar pásur á milli og
starfaði í raun ekki nema í 22 ár
samanlagt,“ útskýrir hann.
Eyþór Stefánsson var fyrsti
stjórnandi kórsins og voru þá
meðlimir hans 22 talsins. Hann
lagðist svo af árið 1942.
„Árið 1943 var stofnaður nýr
kór úr rústum hins gamla sem
kallaðist Ásbirningar og voru
söngmenn þá 28 talsins. Hann
starfaði þó aðeins í skamman
tíma, eða fram á mitt ár 1944,“
segir Ingimar. Á því tímabili
söng Karlakór Ásbirninga á
Sæluviku við góðar undirtektir
og kom m.a. fram í kirkjunni og
í Bifröst, eins og Ingimar bendir
á í ágripi Ögmundar Svavars-
sonar af sögu kórsins. Í skrifum
Ögmundar kemur m.a. fram að
karlakórinn Ásbirningar hafi á
sínum tíma tekið þátt í Heklu-
móti á Akureyri ásamt átta
öðrum karlakórum; Geysi,
Þrym, Karlakór Reykdæla,
Karlakór Mývetninga, Heimi og
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.
Söngmótið hófst í Akureyrar-
Karlakór Sauðárkróks árið 1981. Efsta röð frá vinstri: Gísli Pétursson, Ingimar Pálsson, Vigfús Hauks-
son, Kári Sveinsson, Jón Gunnlaugsson, Bragi Hrólfsson og Gísli Kristjánsson. Mið röð frá vinstri:
Björn Jóhannsson, Sverrir Svavarsson, Magnús Sigfússon, Björgvin Magnússon, Pétur Pétursson,
Þórhallur Þorvaldsson, Valgeir Þorvaldsson og Guðmundur Guðmundsson. Neðsta röð frá vinstri:
Ingimar Jóhannsson, Sigurður Hansen, Jóhann Már Jóhannsson, Hilmar Sverrisson söngstjóri, Stefán
Gíslason undirleikari, Jósep Sigfússon og Árni Gunnarsson.
kirkju en einnig var sungið í
Nýja-bíói. „Þetta söngmót var
allt kvikmyndað frá upphafi til
enda en það hefur enginn
fengið að sjá þá mynd, þar sem
hún fór í hafið er Goðafoss var
sökkt við Reykjanes í síðari
heimstyrjöldinni,“ ritar Ög-
mundur en filman hafði verið
sent til Bandaríkjanna til fram-
köllunar.
Ögmundur greinir einnig
frá því þegar kórinn söng á
lýðveldisskemmtun sem hald-
in var úti á Eyri. Þá hafði
kórinn fengið nýtt lag frá
Eyþóri Stefánssyni til að flytja
við ljóð Friðriks Hansen. Lagið
bar heitið Þjóðveldisdagur
Íslands 17. júní 1944 og hafði
verið samið fyrir lagasam-
keppni sem haldin var í sam-
bandi við lýðveldisstofnunina.
Sem fyrr segir lagðist kórinn af
síðla sumars 1944 þegar
þáverandi söngstjóri, Ragnar
Jónsson, flutti af svæðinu.
Skemmtilegur tími
Kórinn var svo endurvakinn
árið 1963 undir sínu upp-
runalega nafni, þegar verka-
mannafélagið Fram átti 60 ára
afmæli. „Óskað var eftir því að
hóað yrði saman mannskap til
að syngja við afmælisfagnað
verkamannafélagsins og af því
tilefni var Karlakór Sauðár-
króks endurvakinn,“ segir
Ingimar og bætir við að hann
hafi þá starfað til ársins 1968.
„Sumir vildu kenna tilkomu
sjónvarpsins um það að kórinn
hafi lognast útaf, þó ég vilji nú
ekkert fullyrða neitt nánar um
það,“ segir Ingimar og hlær.
Eftir 1968 varð 10 ára hlé,
eða til ársins 1978 en þá var
blásið lífi í kórinn á ný og
starfaði hann til ársins 1982,
þar til hann lognaðist endan-
lega útaf. Samkvæmt Árna
Gunnarssyni, fyrrum kórmeð-
limi, var kórinn á tíðum
kallaður Jóreykur, í gamni hjá
gárungum héraðsins, og var
þar vísað til þess að kórinn hafi
notið aðstoðar þriggja stjórn-
enda á sinni skömmu ævi.
„Gunnlaugur Ólsen hóf starfið
með okkur og síðan tók við
Ingimar Pálsson söngkennari
og Hilmar Sverrisson skokkaði
með okkur endasprettinn,“
segir Árni.
Á fyrstu árum kórsins var
hann á hrakhólum með hús-
næði til æfinga, eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd, en þar
sjást kórfélagar við æfingar í
sláturhússal KS úti á Eyri.
„Líklegt er að það hafi spilað
þarna inn í að einn kór-
félaganna var sláturhússtjór-
inn Sigurjón Gestsson og að
kórinn hafi notið góðs af,“
bætti Árni við. „Þetta var
skemmtilegur tími og mér er
óhætt að segja að kórinn hafi
skilað góðum söng í góðum sal
eins og undirtektir áheyrenda
báru jafnan vott um. Þarna
voru í það minnsta nokkrir
afbragðsgóðir raddmenn sem
óþarft er að telja upp. En að
lokum urðu vandamálin með
söngstjóranna til þess að leysa
þennan hóp upp og slökkva á
söngnum.“
Að sögn Ingimars gengu
sumir meðlimir kórsins í
Karlakórinn Heimi og aðrir í
hina ýmsu kirkjukóra.
Gleðilegir
endurfundir
„Félagi okkar Sverrir Svavars-
son féll frá sl. haust en hann
hafði unnið mikið fyrir kórinn
á sínum tíma og geymdi þau
skjöl sem tilheyrði kórnum.
Ekkja hans óskaði eftir því að
við myndum fara yfir þau og
þá hóaði ég í Jóhann Má
Jóhannsson, síðasta formann í
stjórn kórsins, og Pétur Péturs-
son, ritara. Í sameiningu
ákváðum við að kallað yrði til
hinsta fundar Karlakórs Sauð-
árkróks og gengið yrði frá
öllum lausum endum,“ segir
Ingimar.
Á fundinum þurfti að ganga
frá ýmsum málefnum kórsins
sem hafði ekki verið gengið frá
á sínum tíma, þar á meðal átti
kórinn í fórum sínum píanó og
kom einnig í ljós dágóð summa
inn á bankabók. „Það kom í
ljós að kórinn átti aur inni á
reikning sem var búin að safna
vöxtum sl. 30 ár eða svo. Þetta
hafa verið tæpar 100 þúsund
krónur á sínum tíma en nú
voru þær orðnar um 414
þúsund,“ segir Ingimar en
ákveðið var á fundinum að
gefa peningana til Utanfara-
sjóðs sjúkra en hann styrkir
fólk sem þarf að leita lækninga
erlendis. „Píanóið hefur verið í
varðveislu Félags eldriborgara í
Skagafirði í Húsi frítímans og
því var ákveðið var að gefa
félaginu píanóið.“
„Mikil gleði og ánægja ríkti
á fundinum og þótti mönnum
gaman að koma saman og rifja
upp gamlar stundir,“ segir
Ingimar í lokin.
Ef einhverjir skyldu eiga í
fórum sínum myndir eða
upptökur frá starfsemi kórsins
væri vel þegið að viðkomandi
settu sig í samband við Ingimar
Jóhannsson. /BÞ
Kórstjórinn Gunnlaugur Ólsen situr við píanóið. Frá hægri: Sigurður Hansen, Sigurjón Gestsson,
Ingimar Pálsson, Sverrir Svavarsson, Jóhann Már stórtenór í Keflavík, Jóhann Friðgeirsson, Björn
Jóhannsson og Jón Árnason. (Mynd: Árni Gunnarsson)
Meðlimir Karlakórs Sauðárkróks á fundinum. Frá vinstri: Bragi Hrólfsson, Sigurður Hansen, Ingimar Pálsson, Jóhann Már Jóhannsson, Gísli Kristjánsson,
Björn Jóhannsson, Pétur Pétursson, Ingimar Jóhannsson og Gísli Pétursson.